Hugur og hönd - 01.06.1980, Page 40
norrænt heimilisiðnaðarþing 1980
Norrænt heimilisiðnaðarþing var haldið í 17. skiptið í
Tromsö í Noregi 1.—3. júlí sl. Það fór að mestu fram með
hefðbundnum hætti, í dýrðarinnar veðri og fögru um-
hverfi. Að þessu sinni tóku sex þjóðir þátt í þinginu. Fær-
eyingar voru með í fyrsta skipti, jafnréttháir og aðrir og
þökkuðu íslendingum forgöngu í því máli. Það var sér-
lega ánægjulegt að heyra hversu vel þingheimur tók fær-
eyingunum, klappaði þeim lof í lófa meir en öðrum. Þingið
var haldið í unglingaskóla, sem nefnist „Sommerlyst
skole“, sýning í kennslustofum, en þingið í húsi, sem virt-
ist bæði leikfimihús og samkomusalur.
Eins og venja er höfðu drög að dagskrá verið gerð á
tveim formannafundum milli þinga. Einkunnarorð þessa
þings voru „Heimilisiðnaður fyrir alla. Atvinna — frí-
stundir", og voru fyrirlcstrar og umræðuefni á dagskrá að
mestu byggð á þeim orðum.
Sá hluti þinghalds, sem flestir sýna jafnan mestan
áhuga er heimilisiðnaðarsýningin. Eins og á þinginu í
Reykjavík 1977, fékk hvert land eina kennslustofu til um-
ráða, setti þar upp sýningu á munum gerðum með 1—2
aðferðum sem eru að einhverju leyti sérstæðar fyrir land-
ið og hafði auk þess sýnikennslu, þeas vinnandi fólk sem
sýndi og útskýrði vinnuaðferðirnar. Þar að auki hafði
norska heimilisiðnaðarsambandið yfirlitssýningu, eins og
venja er til um heimalandið.
í sýningardeildununr var margt fróðlegt og fallegt að
sjá. Danir voru með tauþrykk, marga fallega muni, meðal
áhuga er heimilisiðnaðarsýningin. Eins og á þinginu í
annars úr dýrindis silkiefni. Finnar sýndu einföld leikföng
unnin úr tré og mjög vandaðan prjónafatnað. Færeyingar
byggðu sína sýningu á handspuna og komu með marga
góða gripi unna úr handspunnu færeysku bandi. Noregur
sýndi kljásteinavefstað og brekánsvoðir ofnar á sérstæðan
hátt í honum. Þetta er ævagömul tækni, sem lifað hefur á
afskekktum stöðum í Norður-Noregi, en búið er að taka
upp aftur sem almennan heimilisiðnað á þessum slóðum.
Þeir voru líka með skinnavinnu, barnahúfur, vesti og
fleira úr kiðlingaskinni. Yfirlitssýning Norðmanna var
einnig að mestu bj'ggð á ýmiss konar heimilisiðnaði frá
Norður-Noregi. Frá Svíþjóð kom uppsett á skerma kynn-
ing á gamalli prjónaaðferð sem þeir nefndu „Tváánds-
stickning" og er eins konar tvöfalt prjón. Þeir voru einnig
með hálmvinnu, búa til úr honum margs konar jólaskraut
og fleira. íslendingar fóru með útsaum unninn með refil-
saum og augnsaum. Þessar útsaumsgerðir eiga sér báðar
langa hefð í landinu, en hafa að nokkru leyti lent í glat-
kistunni hin síðari ár. Heimilisiðnaðarfélagið vill reyna
með þessu framtaki að vekja áhuga á ný fyrir þessum
sérstæðu útsaumsgerðum, hérlendis sem erlendis. (Sýn-
ingin verður væntanlega sett upp að Kjarvalsstöðum í
haust). Mörgum þótti Island fá nýtt andlit með þessari
sýningu. Áður hefur íslenska sýningardeildin jafnan verið
byggð á íslensku ullinni.
Þingið fór að öðru leyti fram þannig í stórum dráttum.
Eftir setningu þings, hátíðlega móttöku og ávörp gesta,
að rnorgni 1. júlí hélt Björn Aarsetth safnvörður í Tromsö,
afar fróðlegt og áheyrilegt erindi um menningu og sam-
félag samanna í norðurhéruðum Skandinavíu (Nordka-
lotten). Síðar sama dag flutti Folmer Bukh skólastjóri í
Kerteminde framsöguerindi um „Samstarf norræna heim-
ilisiðnaðarsambandsins í framtíð“. Bar hann fram ýmsar
eftirtektarverðar hugmyndir um samstarf, sem síðar voru
ræddar á hópfundum. Þennan dag kynntu Danmörk, Finn-
land og Færeyjar sýningardeildir sínar með stuttum er-
indum. Næsta morgun fór fram sams konar kynning á
íslensku, norsku og sænsku deildunum. Til kynningar á
þeirri íslensku var lesið erindi eftir Elsu E. Guðjónsson.
Síðan ræddu áhugamannahópar um sex fyrirfram ákveðin
málefni. Hafði hvert land umsjón með einum hóp og fluttu
stjórnendur stutt inngangserindi. Elínbjört Jónsdóttir sá
um það fyrir HÍ.
Um kvöldið var farið að skoða „Ishavskatedralen“, ný-
lega kirkju á fallegum stað.
Síðasta þingdag voru flutt sex framsöguerindi um tvö
málefni. Fyrir hádegi ræddu finnar, norðmenn og svíar
um efnið „Heimilisiðnaður sem atvinna“. Eftir hádegi
komu svo Danmörk, Færeyjar og ísland með erindi um
„Heimilisiðnað í frístundum“ og annaðist Gerður Hjör-
36
HUGUR OG HOND