Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 5
2. mynd. Þrír lausavasar. (a) Lausavasi með glitsaumi og drtali 1854. Stœrð: hœð 30 cm, breidd 22,5 cm. Þjms. 5459. (b) Lausavasi með
einfóldu ístagi í ofinn grunn. A honum er eignarmark konu, AIDA. Stærð: hœð 24,5 cm, breidd 17cm. Þjms. 1968-527. (c) Lausavasi með
bútasaumi. Stærð: hæð 33 cm, breídtd 9,2 cm. Þjms. 1965-346. Ljósmynd: Þjóðminjasafn Islands, Freyja Hlíðkvist Omarsdóttir.
skatteraða vasann kvenvasa, og eins var í Þjóðólfi 1862 auglýst
eftir lausum kvenvasa sem hafði tapast,[12] en samkvæmt
dánarbúum tveggja bændakvenna í Rangárvallasýslu 1835-
1836, voru slíkir gripir einnig nefndir lausavasar og beltisvas-
ar,[13] og í annarri heimild aukavasar, svo sem enn verður
getið. Orðmyndir þessar munu þó ekki vera gamlar í málinu;
má vera að þær hafi verið myndaðar til aðgreiningar frá vösum
á fötum eftir að þeir fóru að tíðkast.[l4] Þegar könnuð var
Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans kom enda í ljós, að elsta
- og eina - dæmið þar um lausavasa tengdist tóbaksbauki
sem Þjóðminjasafni Islands var gefinn 1866 og hafður var í
rauðum ,,lausa(?)vasa“ sem karlmenn báru „ofan á lærinu eða
ofanhalt á mjöðminni“ að því er Sigurður Guðmundsson hefur
eftir heimildarkonu, ekkju Eyjólfs Einarssonar í Svefneyjum,
Guðrúnu Jóhannsdóttur, sem um aldamótin 1800 er hún var
að alast upp í Garpsdal hjá föður sínum, sá menn bera tóbaks-
bauka eða tóbakspontur úr látúnsbúnum kókoshnetum með
þessum hætti.[15] Þegar leitað var að orðunum beltisvasi og
aukavasi í Ritmálsskránni fannst fyrra orðið ekki, en eitt dæmi
um hitt, sama og hér verður tilgreint síðar.
Að minnsta kosti þrír aðrir lausavasar eru varðveittir í
Þjóðminjasafni Islands; eru tveir með framhlið úr íslenskri
svartri ullareinskeftu og með opi að ofan. Annar (Þjms. 5459),
glitsaumaður með stílfærðum rósum í blómakeri og með ártal-
inu 1854, var raunar skráður í safnið sem lyklapoki (2. mynd
a).[l6] Hinn (Þjms. 1968-527) er saumaður með mislitu sam-
3. mynd. Lausavasarnir á 2. mynd, bakhlið. (a) Þjms. 5459, (b) Þjms. 1968-527 og (c) Þjms.
1965-346. Ljósmynd: Þjóðminjasafn Islands, Freyja Hlíðkvist Omarsdóttir.
4. mynd. Sýnishorn afeinfóldu ístagi
saumað í ofiinn grunn, hér í stramma
tilfrekari glöggvunar. Ofantil á
sýnishorninu er haft bil milli sporanna
svo aðþau sjáist betur, en neðantil liggja
sporin þétt saman líkt og á vasanum.
Höfundur vann sýnishornið árið 2008.
HUGUR OG HÖND 2008 5