Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 6
hverfu reitamunstri og stöfunum AJDA, eignarmarki konu að
nafni Ástríður Jónsdóttir, þ.e. Ástríður Jónsdóttir á [vasann]
(2. mynd b). Ástríður, sem var ættuð úr Skaftafellssýslum,
dó 1911, 93 ára; hún var amma gefanda, Ástu Málfríðar
Bjarnadóttur. Utsaumsgerðin á vasanum er óþekkt af öðrum
íslenskum útsaumi í ofinn dúk. I safnskránni er henni lýst sem
„hið sérstæða glit,“ en í raun á hún ekkert skylt við glitsaum.
Má helst líkja sporinu við einfalt ístag í sprangi,[17] nema hvað
það er saumað í dúk en ekki í hnýtt net eða varpaðan úrraks-
6. mynd. Konur með lausavasa eða pyngjur sem virðast festar
á belti með lyklasylgjum (konfund, vasahringum) til mótvægis,
líkt og í lýsingu séra Steingríms Jónssonar 1818. Spássíuteikning
í Jónsbókarhandriti, AM 345, fol.,f 38v, frá lokum 16. aldar.
Ljósmynd: Stofnun Arna Magnússonar á Islandi, Ljósmynd:
Jóhanna Olafidóttir.
grunn. Samkvæmt þessu er saumgerðin hér nefnd „einfalt ístag
saumað í ofinn grunn“ (4. mynd). Þriðji vasinn (Þjms. 1965-
346) er úr eigu Þuríðar Sveinbjarnardóttur (f. 1823, d. 1899),
konu séra Eiríks Kúld í Stykkishólmi og talinn sennilega unn-
inn af henni (2. mynd c). Hann er úr bútum afþrykktu bóm-
ullarefni, kattúni, fóðraður með hvítu bómullarlérefti og með
sniði ekki ólíku skatteraða vasanum (sjá 1. mynd).
Orðið beltisvasi bendir til að konur hafi fest vasa þessa við
belti. I skýrslu séra Steingríms Jónssonar í Odda, síðar bisk-
ups, til fornleifanefndarinnar dönsku 1818, lýsir hann og
dregur upp myndir af tveimur koparhringum með krosslaga
miðju og ílöngu haldi (5. mynd), en hringa þessa telur hann
að kunni að vera „papiskra allda leifar“ og segir að sumt fólk
kalli þá „Konfund en sumt vasahríng. þared þeir brúkuðust
af kvennfólki á belltinu til að vega á móti vasanum. Ecki vita
menn uppruna þeirra, enn nockrir segia séu í fyrstu frá álfa
fólki." Jafnframt segir hann neðanmáls að hann hafi heyrt að
bændakonur í Noregi noti viðlíka vasahringi „bædi til að hallda
uppi lausavasa og ad hengia a lykla.“[18] Eru koparhringar
af þessu tagi einmitt nefndir lyklasylgjur eða lyklahringar af
fræðimönnum seinni tíma hér á landi, en notkun þeirra mun
hafa lagst af á seinni hluta 18. aldar.[19] Aðferðin við að festa
á sig lausavasa sem Steingrímur nefnir virðist koma fram á
spássíumynd í íslensku handriti, AM 345 fol., f. 38v, frá lokum
16. aldar, nema hvað konurnar tvær á myndinni virðast frem-
ur bera pyngjur[20] en lausavasa (6. mynd). Bönd liggja frá
hvorri pyngju upp undir vasahring og að líkindum undir belti,
fram yfir það og niður í hringinn.[21] A annarri konumynd
íslenskri, á kirkjubekk frá Laugardal í Tálknafirði frá um 1700
að talið er (Þjms. 10571), sést pyngja eða lausavasi(?) við vinstri
hliði konunnar en hringur með lyklum við þá hægri, og verður
að ætla að hvort tveggja sé fest við belti hennar.[22]
Tvær heimildir aðrar um lausavasa eru annars eðlis en
innbyrðis líkar. Er önnur eftir Kristínu Sigfúsdóttur skáld-
konu (f. 1876), en hún segir um brauðveislu í brúðkaupi á
Möðruvöllum í nóvember 1851 að konur hafi haft „lérefts-
poka, sem þær nældu innan á svuntustrenginn og kölluðu
lausavasa,“ og að þær hafi, að siðvenju, haft leifarnar af síróps-
vættu brauði sínu og bænda sinna með sér heim í þeim handa
„þeim sem heima voru;“ var sagt að „þegar mikið var fram
borið hafi þær verið ósparar að hella sírópi yfir brauðið.“[23]
Hólmfríður Björnsdóttir Hjaltason (f. 1870) minnist þess frá
bernskuárum sínum 1875-1878), að húsfreyjan á bænum þar
sem hún dvaldist þá hafi átt poka saumaðan
úr alla vega léreftstuskum. Var hann dreginn saman um
opið með sterkri snúru. En upp úr pokanum var smálykkja
gerð úr sama efni og pokinn. Þegar hún lét á sig svuntuna,
smeygði hún lykkjunni upp á svuntustrenginn. Lá pokinn,
sem kallaður var aukavasi, niður með hliðinni, og lagðist
svuntan yfir aukavasann, svo að hann sást ekki. I þennan
poka lét hún svo alls konar afganga af veizlumatnum. Þegar
heim kom, gaf hún börnunum að bragða á þessu góðgæti.
Veislumaturinn var um þetta leyti „venjulega stórsteik,
brauð, og smjör, rísgrjónagrautur með rúsínum í sykri og kanel
út á,“[24] og má nærri geta hve vel þetta hefur farið saman í
vasanum!
I þessum tveimur heimildum var annar vasinn nældur innan
á svuntustreng en hinn var með lykkju sem smeygt var upp á
svuntustreng. Hvað varðar festingar varðveittu lausavasanna þá
6 HUGUROG HÖND 2008