Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Page 14

Hugur og hönd - 01.06.2008, Page 14
Heiður Vigfúsdóttir Arfur frá gengnum kynslóðum Ljósm. Binni Gömlu gripirnir og baukurinn sem þeir hafa verið geymdir í. Gamall gripur, lúinn eftir langa notkun grípur augað og ósjálfráð löngun gerir vart við sig að fara um hann höndum og skoða nánar. Hver skyldi hafa gert hann, hvert er efnið og áhöldin, hvernig var birtan, umhverfið þar sem hann varð til? Hver er saga hans? Fjöldi slíkra gripa er til í einkaeign. I Þjóðminjasafni hefur tvívegis í vetur verið opið hús beinlínis til þess að fólk með eigin muni geti leitað upplýsinga hjá fagfólki. Margt forvitnilegt hefur komið í Ijós. Aðsóknin að þessari þjón- ustu safnsins hefur verið mikil t.d., varð undirrituð að hverfa frá með þessa muni sökum langrar biðar. Eigendasaga þessara gripa sem hér er fjallað um nær til áranna um 1930 og hafa þeir verið geymdir í þessum gamla bauk síðan. Þeir voru gamlir og kon- unni kærir sem gaf þá. Hún hét Guðrún Sigurðardóttir frá Skiphyl, Hraunhreppi á Mýrum. Lausavasinn hefur verið handhægur til að geyma í smáhluti. Hann var hnýttur um mittið, var vasi en laus frá flíkinni sem hann var borinn við. Þessi lausavasi er saumaður úr þrykktu bómullarefni (kattúni), hvert spor fínlegt og haglega gert og litum raðað smekklega saman. Bútasaumur er í framhliðinni og hún fóðruð, en bakhliðin ekki. Fáir lausavasar hafa varðveist, vafalaust hafa þeir verið notaðir til daglegs brúks og verið slitið upp til agna. Þetta er annar af tveimur sem saumaðir eru úr efnisbútum og vitað er um að hafi varðveist frá fyrri tímum. Nytjahlutur saumakonunnar gæti hafa verið kallaður nálhús, nálaprilla, nála- 14 HUGUROG HÖND 2008

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.