Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Page 15

Hugur og hönd - 01.06.2008, Page 15
Nálhús. Stœrð: lengd 9,5 cm, ummál 3,3 cm. I því eru fínlegar saumnálar, þrístrendar nálar ogjjaðranál. Prjónakoddi. Stœrð: hœð 12 cm, breidd mest 9 cm. A bakhliðinni getur að líta fáséð munstur í knippli. Askja, karfa (Market Basket stendur á botninum), er einnig í bauknum. Stærð: lengd 5 cm, hæð 3,8 cm. eða prjónakoddi. Við vitum ekki hvaða nafni eigandinn kallaði gripinn. Lögunin á nálakoddanum er sérstæð, líkust stundaglasi, og er þétttroðin tróði af einhverju tagi, en ofan í það ganga þrír fjaðurstafir sem áður hafa geymt nálar. Lokinu hefur svo verið hneppt yfir þær og sjást ummerki eftir einhvers konar hnapp eða aðra festingu sem nú er horfin. Nálakoddinn er að framan klæddur silki- kenndu efni, blái liturinn er grunnlitur efnisins en sér í rauða og gula liti í munstri við brúnir, á bakhlið er annað efni líka blátt. Koddinn er bryddur ljósu efni. A lokinu er áttabiaðarós fallega baldýr- uð með silfurlitum málmþræði, snúð- hörðu Ijósu og bláu silki eða hör. Hneslan er svo kríluð úr sama ljósa og bláa þræð- inum. A bakhlið er knippluð legging úr silfruðum og bláum þræði, munstrið á henni er fáséð. Allt handbragð á þessum hlut er afar vandað. Attablaðarósin vísar til íyrri tíma, sver hún sig mjög í stíl rósa á krögum faldbúninga og á upphluts- borðum frá 19. öld eða jafnvel íyrr. Nálhús rennt úr viði er nett og fínlegt, það geymir nálar: fínlegar útsaumsnálar, þrístrendar nálar sem algengt var að nota við skósaum og fjaðranál sem notuð var við grófari saum. Græn askja er með körfulagi sem lok falla yfir sitt hvoru megin við hand- fangið. Hún er flauelsklædd og ber miða framleiðanda á botni sem skýrir hvað í henni var eitt sinn, silfruð fingurbjörg og fingurhlíf. Gamlir gripir sem þessir eiga sér sögu þótt aðeins hluti hennar sé ljós og minnir okkur á að sjálf getum við skráð það sem við vitum um eigin muni og með því forðað þeim frá glapkistunni. YFIR HAFIÐ OG HEIM íslenskir munir frá Svíþjóð 5. júní 2008 til 3 1. janúar 2009 [2 ÞJÓÐMINJASAFN ISIANDS National Museum of Iceland HUGUR 0G HÖND 2008 1 5

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.