Hugur og hönd - 01.06.2008, Síða 17
Fáeinir altarisdúkar í eigu kirknanna reyndust vera handofnir
og auk þess nokkrir ómunstraðir. Flesrir handunnir altarisdúk-
ar og altarisbrúnir í prófastsdæminu voru úr hör- og/eða bóm-
ullarefni. A elstu munstruðu dúkunum var hvítsaumur.
Jafnan var reynt að grafast fyrir um sögu munstranna á alt-
arisdúkunum. Ekki tókst þó að finna uppruna þeirra allra. Eins
og við mátti búast verða mörg altarisdúkamunstrin rakin til
munsturblaða og -bóka, bæði íslenskra og erlendra. Eins og við
þekkjum hafa ýmis handavinnumunstur löngum gengið á milli
hannyrðakvenna í láni og bendir verkefni okkar til að svipað
gildi um munstur í altarisdúka.
Sum altarisdúkamunstur komu oft fyrir í prófastsdæminu
en önnur sjaldnar. Af einstaka munstri mátti sjá fleira en eitt
afbrigði. Einnig voru í verkefninu skráð nokkur dæmi um að
við endurnýjun altarisdúks hafi verið unnin nákvæm eftirgerð
af fyrri dúk.
Altari í Tjarnarkirkju í Svarfaðardal. Altarisdúkurinn er nákvœm
eftirgerð eldri dúks kirkjunnar sem var með hvítsaumsmunstri (með
tjullundirlagi) frá verslun Augustu Svendsen í Reykjavík.
Síðast en ekki síst rákumst við á fáeina sérhannaða dúka og
munstur í altarisbrúnum (blúndum) í Eyjafjarðarprófastsdæmi.
Var þar einkum um að ræða hekl og harðangurssaum, oft í anda
hefðar, en í einni kirkju var sérhannaður handofinn altarisdúk-
ur með damaskvefnaði og trúarlegum táknum í munstri.
Eftir því sem næst varð komist eru elstu altarisdúkar í próf-
astsdæminu frá því snemma á 20. öld en þeir nýjustu frá upp-
hafi þeirrar 21. Eins og aðrir nytjahlutir úr textílefnum slitna
altarisdúkar smám saman við notkun og þvott, ganga úr sér og
eru þá endurnýjaðir.2 Breytingar á ölturum kirkna eða annað
2 Það kom íIjós í verkefninu aðfínlegir altarisdúkargetafarið illa ípvotta-
vélum en varfærnislegurpvottur (í höndum) stuðlar að góðri endingu.
Altarisdúkur Dalvíkurkirkju. Harðangursmunstrið er hannað af
Ingu Benediktsdóttur.
tilfallandi getur líka kallað á gerð nýrra dúka. Flestar kirkjur í
Eyjafirði reyndust eiga einn til tvo altarisdúka, sumar þó fleiri.
Oftast var aðeins einn dúkur í notkun en þeir aflögðu voru í
mörgum tilfellum varðveittir hjá kirkjunum eða á söfnum.
Gamall altarisdúkur með hvítsaumsmunstri, úr Akureyrarkirkju
(eldri). Nú varðveittur í Minjasafninu á Akureyri.
Kirkjum eru oft gefnir ýmsir gripir, þar á meðal dúkar.
Verkefnið leiddi í ljós að margir altarisdúkar hafa borist
kirkjum í Eyjafirði sem gjafir, gjarnan að ákveðnu tilefni. Voru
þeir víða í notkun, sumir nýlegir, aðrir eldri.
Allir þeir altarisdúkar sem upplýsingar fengust um í prófasts-
dæminu voru unnir af konum. Flin sérhönnuðu munstur sem
getið er um hér að ofan voru sömuleiðis verk kvenna, utan eitt
hvítsaumsmunstur sem eiginmaður teiknaði í altarisbrún fyrir
konu sína. Dæmi fundust um dúka sem voru samvinnuverk-
efni tveggja eða fleiri kvenna, jafnvel tveggja kynslóða. Margir
altarisdúkanna eiga sér þannig áhugaverða sögu. Má ef til vill
segja að þó umrætt verkefni miðist einkum við einn tiltekinn
þátt handverksmenningar í þjóðlífinu, þ.e. gerð altarisdúka,
snerti það um leið sögu íslenskra kvenna sérstaklega.
Þegar verkefninu lauk í Eyjafjarðarprófastsdæmi var ákveðið
að hefja sams konar vinnu í Þingeyjarsýslum og er hún nú
vel á veg komin. Ef unnt reynist er ætlun okkar að skoða alt-
arisdúka víðar um land. Skapast þá m.a. áhugaverð tækifæri
HUGUR OG HÖND 2008 17