Hugur og hönd - 01.06.2008, Side 18
Hekluð altarisbrún á dúk í Þverárkirkju í Laxárdal, Suður-
Þingeyjarsýslu. Þetta munstur, með örlitlum tilbrigðum, er algengt
í Þingeyjarprófastsdœmi en kom hvergifyrir á altarisdúkum í
Eyjafirði.
til samanburðar á munstrum, gerð og sögu altarisdúka milli
héraða. Má nefna að þegar hefur komið á daginn að algengasta
heklað altarisdúkamunstur í kirkjum Eyjafjarðar er sjaldséð í
Þingeyjarsýslum en munstur sem kemur margoft fyrir, með
örlitlum tilbrigðum, í Þingeyjarprófastsdæmi var hvergi að
finna í Eyjafirði. Nýjar munsturgerðir hafa einnig skotið upp
kollinum í Þingeyjarsýslum en fjölbreytilegar „vinnslusögur“
altarisdúka komu fram í báðum prófastsdæmunum.
Þótt stiklað hafi verið á stóru í þessari samantekt gefur hún
vonandi innsýn í umrætt verkefni, og vekur um leið athygli les-
enda á þeim ýmsu gersemum sem kirkjur landsins geyma.
Heimild:
Jenný Karlsdóttir og Oddný E. Magnúsdóttir (2006-2007).Altarisdúkar
í íslenskum kirkjum. Öútgefið efni.
Námskeið Heimilisiðnaðarskólans haustið 2008
Þjóðbúningasaumur
Saumaður er upphlutur eða peysuföt.
Herrabúningur
Lagfæringar á eldri búningum
Möttull eða skyrta og svunta
Faldbúningur: Þriggja ára námskeiðaröð 2008-2011.
Kynning á námskeiðinu verður 4. okt. kl. 14 í Nethyl 2E.
Baldýring: Baldýring eða gullsaumur er gömul útsaumsgerð sem finnst víða
um heim. Hér á landi hefur aðferðin einkum verið notuð á þjóðbúningum og
kirkjugripum. Á námskeiðinu eru kenndar útfærslur á upphlutsborðum, uppsetning,
baldýring og frágangur. Einnig er hugað að baldýringu til annarra nota.
Knipl: Knipl er blúndugerð sem er unnin á sérstakt kniplbretti og með kniplkeflum.
Nemendur læra að knipla úr hörþræði og gera nokkur munstursýnishorn.
Perlusaumur og flauelsskurður: Aðferðir sem notaðar eru til að skreyta
búninginn, einkum kraga og treyju, eru kenndar.
Treyja og samsetning á pilsi og kraga.
Höfuðbúnaður: Saumaður spaðafaldur eða krókfaldur.
Sauðskinnsskór og íleppar: Kennt er að gera sauðskinnsskó og prjóna íleppa eins
og lengi hefur tíðkast.
Umsjónartímar: Nemendur geta sótt 2-3 umsjónartíma á önn. Þar geta þeir leitað
upplýsinga, fengið aðstoð og lokið verkefnum t.d. í útsaumi, gerð höfuðbúnaðar.
Upplýsingar og skráning í síma 895-0780 / 551-7800 /551-5500
mánud. til föstud. kl. 12.00-16.00 eða á hfi@heimilisidnadur.is
18 HUGUR 0G HÖND 2008