Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 19
Gréta María Bergsdóttir
Strammaskáldið
Guðrún Bergsdóttir
Ljósm: Binni
Guðrún hefur ávallt teiknað með tússlitum bœði áður og eftir að húnfór að sauma út. Myndirnar eru unnar á A4 blöð.
Guðrún Bergsdóttir fæddist þann 27. júlí 1970. Hún ólst upp í Hafnarnrði og sótd í
fyrstu Lækjarskóla og Víðistaðaskóla en fór síðan í Oskjuhlíðarskóla og var þar í 7 ár.
Fyrsta krosssaumsmyndin. Arið 2000. Stœrð
35x23 cm.
Á yngri árum sat Guðrún gjarnan
við eldhúsborðið með tússlitasettið sitt
og teikniblokkina og tússaði. I fyrstu
voru viðfangsefnin barnslegar fígúrur
en fljótlega fór Guðrún að beita tússinu
markvisst á autt blaðið, byrjaði stundum
á að gera ramma til að afmarka vinnu-
svæðið eða skipti blaðinu upp í ferninga,
ólíka að stærð. Síðan skipti hún ferning-
unum upp, teiknaði form innan í formin
og fyllti að lokum upp í með öllum
heimsins litum. Tússmyndirnar hennar
urðu flóknari og við fórum að taka eftir
ákveðinni formhugsun og þróun í mynd-
unum.
Mörgum árum síðar fór Guðrún á
ýmis námskeið hjá Fullorðinsfræðslu
fatlaðra, sem nú heitir Fjölmennt, og
lærði m.a. textílsaum og vélsaum. Upp
úr því fór hún að æfa sig í krosssaumi,
og ég held að mamma okkar hafi átt
stóran þátt í því með því að gefa henni
í fyrstu stramma með áteiknuðu mynstri
og útvegað henni æ síðan efni í hannyrð-
HUGUR 0G HÖND 2008 1 9