Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 20

Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 20
irnar. Allt garn sem Guðrún notar eru afgangar frá hinum og þessum konum sem henni hafa verið gefnir, og hún safnar þeim saman í bakpokann sinn. Þannig eru engin mynda hennar gerð úr sömu tegund garns, heldur ægir saman ýmsum tegundum í mismunandi grófleika og litabrigðum. Það gerir myndirnar svo lifandi sem raun ber vitni. Þær eru nánast þrívíðar, ólgandi eins og náttúran eða framandi heimur sem hægt er að sökkva sér í og skoða endalaust. I fyrstu virðist sem Guðrún velji garn af handahófi, en það er af og frá, hún hættir ekki fyrr en hún finnur rétta litinn, áferðina og grófleikann. Sumt garn vill hún alls ekki nota og verður afgangs. Það er ekkert handahófskennt við vinnuna. Og pokann sinn hefur hún með sér hvert sem hún fer, í vinnuna, sumarfríið, heimsóknir og við sjónvarpið þar sem hún saumar mest. Guðrún er starfsmaður í Asi, verndaðri vinnustofu, þar sem hún vinnur m.a. við að falda klúta á saumavél. I kaffitímanum tekur hún upp strammann sinn og saumar nokkur spor eins og tíminn leyfir, jafnvel fullkomnar listaverkið, áður en hún sest aftur við klútasauminn. Arið 2000 byrjaði Guðrún að sauma í auðan stramma, en alllöngu síðar áttaði fjölskyldan sig á því að krosssaumsmyndir Guðrúnar voru nánast bein yfirfærsla af tússmyndunum yfir í strammann. Fyrstu krosssaumsmyndirnar eru einfaldar eins og fyrstu tússmyndirnar, formin eru stór, fletirnir fáir, litirnir hreinir og einfaldleikinn er í fyrirrúmi. Fljótlega fara fletirnir að minnka og litunum að fjölga, mynstrin verða flóknari. Nú átta árum síðar eru verkin hennar alveg ótrúleg og svo flókin að því er virðist, en eru í raun algjörlega úthugsuð af hennar hálfu að uppbyggingu forms og lita. Guðrún vinnur alltaf aðeins eina mynd í einu og ef henni mislíkar myndin eyðir hún stundum Krosssaumur. ÁriS 2001. Stœrð 37x34 cm. 1 c Ét Hjj ■ ): 1 1! - 1 flféfgi LnHHnnJ ’ Frd sýningu Guðrúnar í Gerðubergi árin 2006-2007. 20 HUGUR 0G HÖND 2008

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.