Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Síða 26

Hugur og hönd - 01.06.2008, Síða 26
Sigurjón Ólafsson Fluguhnýtingar Ljósm. Ólafur Geir Sigurjónsson Fyrstu heimildir um hnýtingar á veiði- flugum er að finna í bók sem gefin var út árið 1496, „The TreatyseofFysshynge wyth an Angle“ eftir Dame Julyana Bernes. Snemma hafa menn því farið að reyna að heilla fisk með fjaðurskreyttum önglum. Það hlýtur þó að hafa verið talsvert fyrr sem fyrstu flugurnar komu fram, því að varla var byrjað að hnýta flugur eingöngu fyrir þessa bók. Eftir þetta virðist ekki mikið minnst á veiðiflugur í bókum eða ritum fyrr en komið er fram á 19. öld þó að finnist ein og ein grein á stangli. A 19. öld fara hins vegar í hönd miklir upp- gangstímar í hnýtingum, sem enn sér ekki fyrir endann á. Bókaútgáfa var talsverð, tímaritagreinar birtast víða og fjölmargir hnýtarar koma fram. Bretaveldi var upp á sitt besta og teygði anga sína um allan heim. Hnýtarar höfðu aðgang að þeim efnum sem þeim datt í hug og gilti einu af hvaða skepnu það var. Sjómenn breska heimsveldisins komu heim með hami og feldi hvaðanæva að. Margar fallegustu flugur sögunnar komu fram á þessum tíma. Nú eru flugur af þessari gerð kallaðar klassískar flugur og eru nánast eingöngu hnýttar til sýnis og innrömmunar. Friðun dýra var á þessum tímum nánast óþekkt og því eru núlifandi hnýtarar grænir af öfund yfir þeim fjöðrum sem í boði voru, en eru nú nánast ófáanlegar. Framboð hefur þó lagast undanfarin ár með ræktun á sjaldgæfum dýrum, en sumar þeirra fjaðra sem notaðar voru í flugur á 19. Laxafluga. öld eru enn mjög dýrar. Nokkrar fjaðr- ir, sem nægja aðeins í eina flugu geta jafnvel kostað tugi þúsunda króna, já, í eina flugu. Hingað til lands virðast veiðiflugur hafi komið með erlendum veiðimönnum snemma á 20. öld. Fluguhnýtingar hóf- ust þó ekki hér á landi að nokkru ráði fyrr en eftir miðja öldina og hafa farið hraðvaxandi síðan. Islenskir hnýtarar hafa almennt á sér gott orð fyrir hnýt- ingar sínar og þykja gera góðar, fallegar og fengsælar flugur. Að sjálfsögðu er keppt í flugu- hnýtingum víðs vegar um heim. Heimsmeistaramótið í Kanada er afar fjölsótt en sennilega er fjölsóttasta keppnin í Noregi sem má helst líkja við Olympíuleika. I slíkri keppni er ekki óal- gengt að það taki 20 klst. að hnýta eina flugu. Lengsti tími sem ég veit um, er frá frönskum kunningja mínum, en hann var tæpar 200 klst. að hnýta eina keppn- isflugu sem síðan vann gull í Noregi. Algengur hnýtingartími fyrir venjulega veiðiflugu er samt ekki nema 4-10 mín- útur, þó að sumar þeirra taki lengri tíma, það er helst að talsverður tími fari í að lakka hausinn, því að umferðir þurfa að minnsta kosti að vera þrjár og góður þurrktími á milli umferða. Hnýtingasýningar eru einnig haldn- ar víða um heim. Þar koma saman fluguhnýtarar til skrafs og ráðagerða og sýna gestum og hver öðrum hnýtingar. Sjálfur hef ég farið á slíkar sýningar erlendis og lært mikið og eignast frábæra félaga beggja vegna Atlantshafsins sem ég held stöðugu sambandi við. Sumt af því sem ég hef séð hnýtara gera á svona sýningum er hreinlega ekki hægt að gera þó að maður horfi á það gerast, augun Bjalla. 26 HUGUR OG HÖND 2008

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.