Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 32
Gallerí Snærós á Stöðvarfirði
Á Stöðvarfirði hafa hjónin og mynd-
listarmennirnir Ríkharður Valtingojer
og Sólrún Friðriksdóttir rekið Gallerí
Snærós síðan árið 1988.
Þegar þau fluttu til Stöðvarfjarðar árið
1985 með tvö ung börn sín keyptu þau
gamalt hús sem þau gerðu upp. Þau
byggðu síðan við húsið, gerðu þar vinnu-
stofur og innréttuðu lítið gallerí sem svo
hefur stækkað í áranna rás.
I galleríinu hafa þau sýnt og selt mynd-
list sína og listhandverk og á síðari árum
hefur Rósa dóttir þeirra einnig komið að
því starfi með þeim.
Það sem þau hafa til sýnis og sölu
í galleríinu eru aðallega grafíkmyndir,
akrýlmálverk, skartgripir, litaðar silki-
slæður, þæfð sjöl úr ull og silki, vefnaður,
litríkar töskur, textílarmbönd og máluð
kort. I galleríinu eru jafnframt haldnar
myndlistarsýningar.
I ágúst 2007 lauk fjölskyldan við bygg-
ingu nýs húss á lóðinni sem hýsir full-
komið grafíkverkstæði eða „Grafíksetrið”.
Jafnframt voru innréttuð vel búin text-
ílverkstæði og keramikverkstæði og gall-
eríið stækkað. Fyrir utan betri aðstöðu
nú fyrir eigin vinnu, bjóða þessi góðu
húsakynni upp á lifandi listastarfsemi í
formi námskeiða, vettvangsnáms fýrir
grunnskóla- og framhaldsskólanemendur
og samvinnu við aðra myndlistarmenn.
Gallerí Snærós er opið daglangt yfir
sumartímann og er vinsæll viðkomustað-
ur innlenra og erlendra ferðamanna en á
veturna er opið eftir samkomulagi.
Nemendur í vettvangsferð.
32 HUGUR 0G HÖND 2008