Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 33

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 33
Margrét Valdimarsdóttir « W heppnað Norrænt heimilisiðnaðar- þing á vegum HFÍ haustið 2007 Norrænt heimilisiðnaöarþing I tilefni af formennsku Heimilisiðnaðarfélags Islands í Nordens Husflidsforbund hélt félagið Norrænt heimilisiðnaðarþing í lok september 2007. Norræn nefnd innan félagsins hélt utan um þingið og fjölmörg samstarfsverkefni tengd því. Verkefnið í heild var skemmtilegt og tókst vel, margir voru virkjaðir til þátttöku, tengsl mynduðust og HFI fékk jákvæða kynningu. Samstarfsaðilar og sýningar Yfir tuttugu aðilar tóku þátt í samstarfi í tilefni af þinginu. Arangur af samstarfinu mátti m.a. sjá á þremur sýningum á vegum félagsins en auk þess er mánaðarlegt prjónakaffi og væntanleg nútíma sjónabók afrakstur þess. Sýningarnar reyndust afar mikilvægur hluti þingsins. Mikill fjöldi tók þátt í sýningunum og margir heimsóttu þær sem að öðru leyti tóku ekki þátt í þinginu. Þema sýninganna var það sama og þingsins: Handverkshefð í hönnurt. Ljósm. Guðrún Pálína Haraldsdóttir Gestir þingsins skoða sýningu HFI í Gerðuhergi. Bergrós Kjartansdóttir segir frá verki sínu. Nomena húsið Samsýning allra skólastiga var haldin í Norræna húsinu. Þar voru sýnd verk þriggja grunnskóla (Hagaskóla, Ingunnarskóla og Lágafellsskóla), fimm framhaldsskóla (Borgarholtsskóla, Fjölbrautarskóla Suðurlands, Iðnskólans í Hafnarfirði, Verkmenntaskólans á Akureyri og Hússtjórnarskólans á Hallormsstað), Listaháskóla Islands auk Heimilisiðnaðarskólans og Den klassiske broderiskole frá Skals í Danmörku. Yfir 400 nemendur tóku þátt í sérstökum verkefnum af þessu tilefni en verk tæplega 130 þeirra voru á sýningunni. Skólastjórnendur, kennarar og nemendur voru afar ánægðir enda tókst vel til, sýningin fjölsótt og öllum til sóma. Gestir þingsins skoða sýninguna í Norrœna húsinu. Gerðuberg Hönnuðum, handverks- og listiðnaðarfólki var boðin þátttaka í sýningu félagsins í Gerðubergi. Sýningin var haldin í samráði við Handverk og hönnun og Gerðuberg. Fimmtíu manns sendu inn yfir 300 verk en nefnd valdi úr verk þrjátíu og fjögurra einstaklinga til sýningarinnar. Gefin var út vegleg sýningarskrá sem dreift var ókeypis til gesta. Sýningin var fádæma vel sótt. Arbajarsafn Faldafeykir, hópur áhugakvenna um íslenska faldbúninginn, sýndi verk í Listmunahorni Árbæjarsafns. Sýningin kallaðist Hliðarspor en þar gaf að líta verk þar sem faldbúningurinn var nýttur sem innblástur að nýjum verkum. Auk þinggesta nutu almennir gestir safnsins sýningarinnar. Þingið Þema þingsins var Handverkshefð í hönnun og undirtitill þess — framtíðin er í okkar höndum. Dagskrá þingsins samanstóð af setningu og móttöku fyrsta kvöldið, fyrirlestrum, pallborðsumræðum um UNESCO samninginn og heimsóknum í Norræna húsið og verslunina Kraum annan daginn. Þriðja daginn var farið um Borgarfjörð og fjórða og síðasta daginn voru fyrirlestrar og heimsóknir í Gerðuberg og Arbæjarsafn ásamt lokakvöldverði. Auk þess var haldinn formannafundur að kvöldi annars dags. Erlendu gestirnir tóku þátt í allri dagskránni en Islendingum gafst kostur á að taka þátt í hlutum hennar, til dæmis að hlusta á stök erindi. HUGUROG HÖND 2008 33

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.