Hugur og hönd - 01.06.2008, Side 34
Fyrirlesarar
Það var samdóma álit þátttakenda að erindi á þinginu
hefðu verið einstaklega fjölbreytt og skemmtileg og myndað
góða heild um þema þingsins: Handverkshefð í hönnun.
Fyrirlesararnir voru listamenn, hönnuðir og fræðimenn frá sex
löndum.
Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur) prófessor við
Listaháskóla Islands hélt fyrsta erindið sem hann kallaði Rýnt
í skraut og mynstur íþjóðararfmum. I erindinu fjallaði Goddur
um eðli hugmynda, þ.e. hvernig hugmyndir ferðast og að þær
séu hvorki þjóðlegar né persónulegar heldur hvernig unnið
er úr þeim. Máli sínu til stuðnings sýndi hann myndir af
mynstrum hvaðanæva að auk mynda úr væntanlegri sjónabók.
Marie Koch ráðgjafl og fyrr-
verandi rektor í Kerteminde í
Danmörku flutti næst erindið
Hvernig getur heimilisiðnaður
gegnt Lykilblutverki í afþrey-
higariðnaðinum? Frásögn
um hefðir, gildi, hönnun og
verðmati upplifunarinnar.
Eins og titillinn ber með sér
fjallaði hún um hvernig nýta
má staðbundna þekkingu og
handverk í ferðaþjónustu.
Einnig vísaði hún til þess hvernig hefðbundið handverk er nýtt
sem innblástur m.a. í hönnun. Að auki sýndi hún dæmi um
hvernig handverk er í auknum mæli notað í menningarlegum og
jafnvel pólitískum tilgangi m.a. í prjónuðum götulistaverkum.
UNESCO. Hlutverk hans er m.a. að hefja til virðingar ósnert-
anlega hluta menningararfsins, t.d. siðvenjur, framsetningu,
tjáningarform, þekkingu, færni og verkkunnáttu. Fram kom
að skiptar skoðanir eru um samninginn, m.a. telja sumir að
með skráningu á lista verði til ný tegund „hluta“ sem í raun sé
andstætt þeim óhlutbundnu gildum sem samningnum er ætlað
að vernda. I kjölfar erindisins fóru fram pallborðsumræður
þar sem fulltrúar allra aðildarlanda Nordens husflidsforbund
skiptust á skoðunum um ótvírætt mikilvægi samningsins fyrir
heimilisiðnaðarfélögin.
Prjónað götulistaverk (prjónað
grafíttí) lír fyrirlestri Marie
Koch.
Ljósm. www.knittaplease.com
Guðrún Lilja Gunn-
laugsdóttir hönnuður
og húsgagnasmiður
fjallaði um eigin hönnun
í erindi sínu Hvernig
handverk og nútímatizkni
sameinast í nýjum hlutum.
Guðrún notar m.a.
gömul útskurðar- og
handavinnumynstur í
verkum sínum auk þess
sem þjóðsögurnar eru
henni oft innblástur.
Meðal þess sem bar á góma
í erindinu voru umhverfissjónarmið ásamt kostum og ókostum
framleiðslu á Islandi.
„Heklað stál” hilla eftir Guðrúnu
Lilju Gunnlaugsdóttur.
Lars Strannegárd prófessor í fyrirtækjahagfræði frá Svíþjóð hélt
erindið Mótun eigin ímyndar. Hjá honum kom fram að vörur
og þjónusta eru í auknum mæli seld með því að höfða til til-
finninga fólks. Þetta gerir það að verkum að fagurfræði og
hönnun skiptir sífellt meira máli. Við þessar kringumstæður
eykst gildi þjóðlegs og staðbundins handverks svo sem heim-
ilisiðnaðar.
Valdimar Tr. Hafstein lektor í þjóðfræði við Háskóla íslands
flutti erindið Hof hátíðir, handverk: Menningarerfðir mann-
kyns og sáttmáli UNESCO. Þar rakti hann tilurð og sögu
samningsins sem ætlað er að vera mótvægi við heimsminjaskrá
Fatnaður frá norsku fatahönnuðunum Arne & Carlos. Ljósm. Bent
René Synnevág.
„Brisings Stole” hluti af
stœrra verki eftir Lori
Talcott. Ljósm. Doug Yaple.
Lori TaLcott gullsmiður og sagn-
fræðingur frá Bandaríkjunum
nefndi erindi sitt Framvinda
handverksins en í því fjallaði hún
um starf sitt sem listamanns. Lori
er af fimmtu kynslóð gullsmiða
og þekkir vel þá ögrun að vera
handverksmaður í nútímasam-
félagi. Meðal þess sem fram kom
er mikilvægi þess að verðleggja
vinnu sína rétt til þess að hand-
verkið ávinni sér virðingu og haldi
henni.
Eija Váhálá deildarforseti Kupio
design í Finnlandi fjallaði um
mikilvægi handverks á andlega og líkamlega heilsu í erindi sínu
Sá sem ftzst við handverk stefnir að ánagjulegri oggefandi framtíð.
Þar kom fram hvernig ástundun handverks hefur áhrif á sköp-
unargáfu, sjálfstraust og jákvæðar tilfinningar eins og þolgæði
og ímyndunarafl.
HiLdur Bjarnadóttir myndlistarmaður flutti erindið Bakgrunnur.
Hún greindi frá uppvexti sínum og áhrifavöldum á list sína.
Handverk hefur ætíð skipað stóran sess hjá Hildi og sjást þess
greinilega merki í myndlist hennar sem m.a. sýnir samspil lista
og handverks kvenna. Hildur sagði frá fimm einkasýningum
sem hún hélt árið 2006 og hvernig henni verður handverkið
sífellt hugleiknara í myndlistinni.
34 HUGUR OG HÖND 2008