Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 35

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 35
Arne Nerjordet & Carlos Zachrison fatahönnuðir frá Noregi fluttu erindið Frá hefð til tísku. Félagarnir vinna sameiginlega að fatalínu sem kallast einfaldlega Arne & Carlos. Þeir sýndu fjölda mynda af hönnun sinni og sögðu frá vinnuaðferðum sínum þar sem hefðir, búseta, handavinnuáhugi og gamlar konur gegna m.a. stóru hlutverki. Nýlega gaf Norsk husflid út bók um Arne & Carlos ásamt prjónauppskriftum þeirra. Karl Aspelund kennari við Universiry of Rhode Island flutti síðasta erindi þingsins: Flandverkshefðin: Fyrirmynd til kennslu í visthœfri hönnun. Ekki verður fjölyrt um innihald erindisins hér þar sem Karl skrifar sérstaka grein um efnið annars staðar í þessu blaði. Heimsókn þinggesta í Haraldarhús á Akranesi í boSi bœjarstjórnar. Þátttaka Rúmlega 130 manns tóku beinan þátt í þinginu sjálfu, þar af rúmlega áttatíu Islendingar og tæplega fimmtíu erlendir gestir, að ógleymdum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í tengdum verkefnum eða heimsóttu sýningar. Mjög mikil ánægja var á meðal gesta þingsins með dagskrána, fyrirlesara og innihald erinda og viðburði tengda þinginu. Ákjósanlegt hefði verið að enn fleiri hefðu notið þeirra góðu fyrirlestra sem í boði voru en þó ber að hafa í huga að þingið er fyrst og fremst ætlað starfsfólki Heimilisiðnaðarfélaganna. Þátttakendur frá Finnlandi á lokakvöldverðinum á Fjörukránni. Vibeke Mohr formaSur Norsk husflid tekur viS formennsku í Nordens husflidsforbund úr hendi Margrétar Valdimarsdóttur. A milli þeirra stendur Sigrún Helgadóttir, formaSur HeimilisiSnaSar- félagsins. Að lokum Formennska HFI í Nordens husflidsforbund hefur fært félaginu jákvæða reynslu sem nýtast mun í framtíðinni. Frændur okkar í aðildarlöndum Nordens husflidsforbund dáðust að því að eins fámennt félag og okkar hefði bolmagn til að standa jafn veglega að málum og raun bar vitni. Norðmenn sem nú gegna formennsku munu halda næsta þing þar í landi árið 2010. Þingin eru mikil upplifun og skemmtileg fyrir alla þá sem unna heimilisiðnaði. Norskir og samískur þátttakandi á lokakvöldverSi þingsins. HUGUROG HÖND 2008 35

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.