Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 40
Ásdís Birgisdóttir
Kvenvettlingar
Munstrið á tvíþumla
karlmannsvettlingunum
er fyrirmyndin að þessari
uppskrift.
Efni: Lanette baby
ullargarn.
Litir: hvítt og grænt,
tvær 50 gr. dokkur.
Sokkaprjónar nr. 2 - 2Vi.
Aðferð:
Prjónað er á 5
sokkaprjóna í hring.
Prjónað er stroff (2 L
sl, 2 L sl) og slétt prjón
tvíbanda (tveir litir).
Fitjið upp með hvítu og
grænu til skiptis 2 og 2
L, samtals 48 L.
Prj. stroff sl, (2 L sl hvítt,
2 L sl grænt), prj. 22
umf.
Aukið út eftir stroff svo
að rendur haldi áfram
upp vettlinginn, í 66 L.
Þegar komið að þumli,
prj. þá 14 L með mislitu
bandi, það verður svo
rakið úr þegar þumallinn
er prjónaður.
Hefjið úrtöku eftir 58.
umf. Dragið að lokum
bandið í gegnum síðustu
8 L.
Þumall: Rekið úr mislita
bandið og prj. upp 28 L.
Hefjið úrtöku eftir 22.
umf. Dragið að lokum
bandið í gegnum síðustu
4 lykkjurnar.
Gangið frá endum á
röngu, þvoið í volgu
vatni og leggið til þerris.
40 HUGUROG HÖND 2008