Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 44

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 44
Hulda Orradóttir Konunglegi enski útsaumsskólinn The Royal School of Needlework Tbe Royal School of Needlework eða kon- unglegi enski útsaumsskólinn var stofn- aður af Lafði Viktoríu Welby og frú Anastasiu Dolby árið 1872 og hét þá School of Art Needlework. Fyrsti for- seti skólans var prinsessan Christian af Schleswig-Holstein, þriðja dótt- ir Viktoríu drottningar. The School of Art Needlework fékk konunglegan titil þegar Viktoría drottning samþykkti að verða fyrsti verndari skólans árið 1875. Meginmarkmið með stofnun skólans voru annars vegar að hleypa nýju lífi í fallega listgrein sem farið hafði hnign- andi og hins vegar að sjá menntuðum konum fyrir atvinnu. I upphafi var skólinn starfræktur í litlu herbergi fyrir ofan hattabúð í London en var fluttur árið 1903 í stærra hús- næði nálægt Viktoríu og Alhert safninu. Nú er skólinn staðsettur í Hampton Court höllinni í Surrey sem er í újaðri London. Einn frægasti íbúi hennar var Hinrik VIII. Höllin sem þekkt er fyrir mikinn íburð er nú opin almenningi. Hallargarðurinn er einnig frægur og þar er þriggja alda gamalt völundarhús. Mjög vinsælt er að heimsækja skólann en panta þarf tíma með góðum fyrirvara. I skólanum bjóðast námskeið bæði löng og stutt þar sem hægt er að læra útsaum eins og svartsaum (e. blackwork), gullsaum (e. goldwork), útsaum í sauma- vél (e. machine embroidery) og margt fleira. Þessi námskeið eru bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Kennt er í litlum hópum, ekki fleiri en átta nemendum í senn. Allir kennararnir eru fyrrverandi nemendur í skólanum og margir þeirra vinna einnig á vinnustofu hans. I skólanum er einnig mikið safn af útsaumuðum munum og öðru tengt handavinnu. Á vinnustofunni er tekið við alls kyns verkefnum, stórum og smáum, fyrir bæði einstaklinga og stofnanir. Meðal verkefna má nefna hreinsun og lagfæringar á göml- um verkum, nýir munir eru hannaðir og saumaðir eða mynd er máluð á stramma eftir ósk viðskiptavinar sem hann saum- ar svo sjálfur. Meðal viðskiptavina má m.a. nefna kirkjurnar Westminster Abbey, Canterbury Cathedral, og tónlist- armanninn Paul McCartney. Skólinn styrkir einnig góðgerðarstofnunina og fangahjálpina (Fine Cell Work), en kenn- arar skólans eru meðal sjálfboðaliða sem kenna föngum útsaum. Með náminu öðlast fangar færni og kunnáttu sem nýt- ist til atvinnu bæði innan veggja fangelsis og utan. Veturinn 1997-1998 var ég í svoköll- uðu diploma námi í skólanum. Hægt var að velja um að mæta einu sinni, tvisvar eða þrisvar í viku. Því oftar sem var mætt, því meira var saumað út og því fleiri aðferðir lærðar. Þar sem ég var á annað borð komin í skólann, valdi ég að mæta þrjá daga í viku, en þess á milli sat ég heima og saumaði, það varð ekki mikill tími aflögu til að sinna öðru. Kennararnir voru mjög vinsamlegir og einstaklega hæfileikaríkir, fengu allir nemendur næga athygli þar sem hóparnir voru litlir. Skólastofurnar voru staðsettar á efstu hæð hallarinnar og því gott útsýni yfir hallargarðinn og var aðstaðan heim- ilisleg og þægileg. Við höfðum aðgang að fjölda bóka til að leita hugmynda en nánast allar myndir sem við saumuðum áttum við að teikna sjálf. AUtaf voru þó gefin ákveðin fyrirmæli um viðfangsefni, t.d. blóm, dýr eða manneskja, og vísað á það sem hentaði í hvert skipti. Síðan var garnið valið og var úrvalið nánast óendanlegt. Skólinn var frá tíu á morgn- ana til fjögur á daginn, að mig minnir, með klukkutíma matarhléi, þá var gott að rétta úr sér og fá sér göngutúr um hallargarðinn. Bæði morgna og síðdegis var boðið upp á te og kex eins og góðra Englendinga er siður. Eftirfarandi vefsíður eru fræðandi um skólastarfið og höllina. www.royal-needlework.co.uk www.finecellwork.co.uk www.hrp.org.uk/hamptoncourtpalace Úr garSinum við Hampton Court höllina. Ljósm. Halldór Kristjánsson. 44 HUGUR OG HÖND 2008

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.