Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 45

Hugur og hönd - 01.06.2008, Qupperneq 45
Margrét Valdimarsdóttir Prjónakaffi HFÍ stærsti saumaklúbbur landsins? í janúar 2008 flutd prjónakaffið úr Iðu í Lækjargötu í AMOKKA í Hlíðasmára 3, Kópavogi. Þar er prjónakaffið nú haldið kl. 20 fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, jafnt yfir sumarmánuðina sem og aðra mánuði, í fallegum og rúmgóð- um salarkynnum. Það var Norræna nefnd HFI sem kom prjónakaffinu af stað en nú hefúr Funda- og fræðslunefnd félagsins tekið við skipu- lagningunni. Ekkert lát er á vinsældum prjónakaffisins og standa því vonir til að því verði haldið áfram lengi enn. Opnuð hefur verið bloggsíða um prjónakaffið: www.prjonakaffi.bIog.is Heimilisiðnaðarfélagið hefur síðan í febrúar 2007 staðið fyrir prjónakaffi fyrsta fimmtudagskvöld hvers mánaðar. I prjónakaffi hittist áhugafólk um handavinnu yfir kaffibolla og meðlæti. Prjónakaffinu hefur verið afar vel tekið og er algengt að 80-100 manns mæti með prjóna eða aðra handavinnu með sér. Haldnar eru stuttar kynningar um ýmislegt sem á einn eða annan hátt tengist hannyrðum. Meðal þess sem hefur verið kynnt er Istex, Árval, Gyðjan í vélinni, rósaleppaprjón, Prjónablaðið Tinna, Handprjónasambandið, Nálin, Heimilisiðnaðarfélagið, Storkurinn, Prjónanámstefnur á Norðurlöndum, bækur frá forlaginu Sölku, stuðnings- púðar frá Bjargeyju Ingólfsdóttur og Skals handavinnuskólinn í Danmörku. HUGUR 0G HÖND 2008 4 5

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.