Hugur og hönd - 01.06.2008, Side 46
IW/I Námskeiö Heimilisiðnaðarskólans haustið 2008
Námskeið í eldsmíði og hnífagerð í september 2008
Kennari er Jorgen Hanghei, eigandi Hanghoi Knive, sem sérhæfir sig í námskeiðahaldi og sölu á efni til
hnífagerðar. Hann hefur kennt hnífagerð í mörg ár í Danmörku og er þetta í þriðja skiptið sem hann
kennir við Heimilisiðnaðarskólann. Kennt er í Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Eldsmíði-hnífsblöð: Nemendur kynnast eldsmíði, kennt er að gera hnífsblað úr stáli. Járnið er slegið
og mótað þegar það er orðið rauðglóandi, einnig er kennd hersla og slípun á járni. Farið verður yfir
efnisfræði, kynnt hvers konar verkfæri eru nauðsynleg við eldsmíðina. Nemendur sem lengra eru
komnir fá tækifæri til að gera erfiðari hluti.
Skepti úr beinum og tönnum dýra: Unnið er úr ýmiss konar efni og eru nemendur hvattir til að
koma með eigið efni t.d. hreindýrshorn, hvaltönn eða annað.
Hnífaslíður eftir norskri aðferð: Grunnhönnun á slíðri með saum á bakhlið er kennd, einnig er
kennd máltaka, leðursaumur, litun leðurs o.fl.
Haustönn:
Leðursaumur
Spjaldvefnaður
Hekluð lopateppi
Prjónaðir tvíbandavettlingar með
tungu (fyrir þumal) og áttablaða
rós
Orkering
Heklaðir lopavettlingar
Baldýring
Baldýring byrjendanámskeið
Tóvinna
Vattarsaumur
Byrjendanámskeið í hekli
Byrjendanámskeið í prjóni
Keðjugerð og skartgripagerð
Upplýsingar og skráning í síma 895-0780 / 551-7800
mánud.-föstud. kl. 12-16 eða hfi@heimilisidnadur.is
Lítið skilti var gert til að auðkenna ákveðinn stað í húsi
Heimilisiðnaðarfélagsins.
Skiltið er saumað í stramma með sérlituðu kambgarni
og gamla krosssaumnum. Við frágang er verkið pressað
frá röngu með votum klút, síðan lagt á stinnt karton
og strekkt með því að tylla saman brúnum á röngunni.
Riflás (velchro) er notaður til að festa skiltið á hurðina.
Letur teiknaði Asdís Birgisdóttir.
Kambgarnið litaði Asa Olafsdóttir svo listavel.
fl
■
ARBÆJARSAFN
- GOTT HEIM AÐ SÆKJA
OPIÐ ALLA DAGAISUMAR FRA10-17
Nánari upplýsingar á vefslóðinni
www. minjasafnreykjavikur. is
Minjasafn
Reykjavíkur
M á
mmmm
ÁRBÆJARSAFN
Kistuhyl •110 Reykjavík • Sími 411 6300
www.minjasafnreykjavikur.is
46 HUGUR 0G HÖND 2008