Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 8
Aðalfundur BÍ 2020
Fimmtudaginn 30. apríl kl. 20.00 í Síðumúla 23
Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2020 verður
haldinn fimmtudaginn 30. apríl n.k. að Síðumúla 23, 3.
hæð, 108 Reykjavík þar sem félagið er til húsa og hefst
fundurinn stundvíslega kl. 20.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrslur frá starfsnefndum
Kosningar*
Lagabreytingar
Önnur mál
BÍ-félagar eru hvattir til að mæta
*Framboð til formanns BÍ þarf að berast skrifstofu BÍ ekki
síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund.
Ath.:
Athygli er vakin á að vegna veirunnar, covid-19,
og röskunar af hennar völdum, gæti komið til
frestunar fundarins.
AUSTURSTRÆTI
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI
AKUREYRI
VESTMANNAEYJUM
Að öllu samanlögðu
er niðurstaðan sú
að hér takast sérfræðingar á
og að málið þarf að leysa af
kviðdómi.
Michael Machat, lögmaður
Jóhanns Helgasonar
DÓMSMÁL Lögmannsteymi tón-
listarrisanna Warner og Universal
vill nú að dómari í lagastuldar-
máli Jóhanns Helgasonar gegn
þeim og höfundum lagsins You
Raise Me Up taki til skoðunar
niðurstöðu í nýlegu dómsmáli sem
höfðað var gegn hljómsveitinni Led
Zeppelin.
A l l t f r á þv í m u n n l e g u r
málf lutningur lögmanna Jóhanns
og gag naðila hans varðand i
frávísunarkröfu í málinu um lagið
Söknuð fór fram í dómsal í Los
Angeles 6. desember síðastliðinn,
hefur úrskurðar um frávísunina
verið beðið. Ekkert bólar enn á
niðurstöðunni þótt dómarinn hafi
í desember sagt að hennar væri
að vænta eftir um það bil hálfan
mánuð.
Lögmenn Universal og Warner
lögðu í síðustu viku fram nýtt skjal
sem styður þá kröfu að máli Jóhanns
verði vísað frá. Í skjalinu er vitnað
til niðurstöðu dómstóls þar vestra
um að lagið Stairway to Heaven
með Led Zeppelin frá árinu 1971 feli
ekki í sér stuld á laginu Taurus eftir
gítarleikara hljómsveitarinnar
Spirit. Byggist sá dómur meðal
a nna r s á þv í að svoköl luð
aðgengisregla eigi ekki við í því máli.
Aðgengisreglan kveður á um að eftir
því sem aðgengi þess sem sakaður
er um stuld að viðkomandi lagi er
meira, þess minni þurfi líkindi með
lögum að vera til þess að um stuld
teljist að ræða.
„ Dómstól l inn út sk ý rði að
aðgengisreglan sé ekki hluti af
höfundarréttarlögum, sé órökrétt
og skapi óvissu fyrir dómstólinn og
málsaðilana,“ segir í hinu nýja skjali.
Krafa um að þetta nýja skjal verði
ekki hluti af málsgögnunum hefur
þegar verið gerð af hálfu lögmanns
Jóhanns, Michaels Machat. Segir
Machat að í skjalinu sé látið undir
höfuð leggjast að taka fram að í
dóminum í Led Zeppelin-málinu sé
í lykilatriðinu vitnað í eldri dóma,
þann elsta 36 ára gamlan. Þess
vegna hafi sú túlkun legið fyrir
allan tímann og of seint sé að bera
hana á borð núna sem andsvar.
Þá segir lögmaður Jóhanns að í Led
Zeppelin málinu hafi verið tekist á
um miklu minni líkindi heldur en
séu milli laganna Söknuðar og You
Raise Me Up. Fram hjá því atriði
komist lögmenn andstæðinga
Jóhanns ekki. Þar af leiðandi sé
frávísunarkrafan áfram óviðeigandi,
burtséð frá því hvort dómurinn taki
þetta nýja skjal til skoðunar. „Að
öllu samanlögðu er niðurstaðan sú
að hér takast sérfræðingar á og að
málið þarf að leysa af kviðdómi,“
segir Michael Machat.
Þetta nýja útspil lögmanna
Un iver s a l og Wa r ner mu n
væntanlega leiða til þess að málið
tefst enn frekar. Að auki eru nú
miklar hömlur í samfélaginu í
Kaliforníu vegna útbreiðslu COVID-
19 og seinkar það líklega málinu sem
átti samkvæmt áætlun frá í fyrra að
leiða til lykta í desember á þessu ári.
gar@frettabladid.is
Led Zeppelin-dómur
eigi ekki við í málinu
Nýr dómur í lagastuldarmáli gegn hljómsveitinni Led Zeppelin er af lög-
mönnum Warner og Universal sagður styðja kröfu þeirra um að máli Jóhanns
Helgasonar varðandi meintan stuld á laginu Söknuði eigi að vísa frá dómi.
SAUÐFJÁRRÆKT Nýlega féll dómur
í héraði þar sem íslenska ríkið var
sýknað vegna kröfu um skaða- og
miskabætur upp á 17 milljónir
króna vegna þvingunaraðgerða á
bóndabæ árið 2012. Á heimasíðu
Matvælastofnunar er sagan rakin,
en bóndinn sem stefndi ríkinu var
með allt of margar kindur í of litlu
fjárhúsi. Gerði MAST kröfu um
úrbætur vegna fóðrunar, brynn-
ingar og húsakosts og hafði sérstakt
eftirlit vegna ófullnægjandi aðbún-
aðar og umhirðu á sauðfé á bænum.
Eftir að MAST hafði þrábeðið
bóndann um að fækka hjá sér í
bágbornum fjárhúsunum var lög-
regla send á vettvang til að fækka.
Þá hafði bóndinn selt 329 kindur
og náð að fækka niður í þann fjölda
sem talið var að rými væri fyrir.
En bóndinn var ósáttur og stefndi
ríkinu.
Í dómnum segir að í ljósi þeirra
fresta sem veittir voru til úrbóta og
lagfæringa yrði ekki fallist á að brot-
ið hafi verið gegn meðalhófsreglu
stjórnsýslulaga. Umráðamönnum
hafi gefist tóm til að selja umfram-
féð með frjálsum samningum og
slíkt hafi verið gert.
Í ljósi atvika málsins yrði ríkið
ekki gert ábyrgt fyrir því hvort
salan teldist umráðamönnum hag-
stæð eður ei. Þá hafnaði dómstóll-
inn miskabótakröfu þar sem fyrir
lágu upplýsingar um bágan húsa-
kost og aðbúnað sauðfjár á jörð-
inni sem umráðamenn báru sjálfir
ábyrgð á. – bb
Ríkið sýknað af kröfum bænda
Bóndinn þurfti að selja á fjórða hundrað fjár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Jóhann Helgason í desember talin var von á úrskurði um frávísunarkröf-
una. Enn er beðið eftir niðurstöðu um hana. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
COVID-19 „Staðan er nokkuð góð
þessa dagana. Það eru fáir sem leita
til okkar, fólk fær góða þjónustu frá
heilsugæslunni. Við erum að sjá
aukinn fjölda einstaklinga sem eru
með einkenni sem þarf að skoða
hvort séu vegna COVID-19, enn
sem komið er ráðum við vel við
ástandið,“ segir Jón Magnús Krist-
jánsson, yfirlæknir bráðalækninga
á Landspítalanum. „Við erum á fullu
að undirbúa okkur fyrir komu ein-
staklinga sem leita til okkar vegna
COVID-einkenna.“
Vika er síðan starfsmaður bráða-
móttöku var greindur með COVID-
19 smit. „Það er starfsfólk hjá okkur
í sóttkví en við höfum ráð á því að
leysa úr því,“ segir Jón Magnús.
Öllum valkvæðum aðgerðum
bæði innan og utan Landspítalans
hefur verið frestað til maíloka.
Upp hafa komið áhyggjur hvort
það leiði til þess að sjúklingar sem
hefðu ellegar leitað á einkastofu
leiti þá frekar á bráðamóttöku. Jón
Magnús hefur ekki fundið fyrir því.
„Þeir einstaklingar eru sjaldan með
bráð einkenni og leita því ekki til
okkar, við höfum ekki fundið fyrir
því.“ – ab
Fáir leita á bráðamóttöku
Jón Magnús Kristjánsson, yfir-
læknir bráðalækninga á Landspítal-
anum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð