Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 50
Leikurinn Hvísl Leikurinn hefst á því að leikmenn setjast í hring. Sá sem „er hann“ á að hvísla einhverri spurningu í eyrað á næsta manni sem hvíslar að næsta manni og svo koll af kolli. Sá sem er síðastur í röðinni, og næstur spyrjandanum í lokin, á að svara spurningunni upphátt. Þar sem spurningin vill oft breyt- ast á leiðinni getur verið gaman að heyra svarið. Sá sem svaraði á svo að búa til nýja spurningu og láta hana ganga sama hring. Ekki brosa og ekki hlæja Allir þátttakendur standa í einni röð, hlið við hlið, nema einn. Hann stillir sér upp framan við hina og gerir þar ýmsar grettur, fettur og brettur til að reyna að fá þá til að brosa eða hlæja. Allir fylgjast með honum og sá sem fyrst brosir eða hlær á að verða stjórnandi næst. Þá er komið að honum að gretta sig sem best hann getur. Haraldur Fróði Elvarsson er nýlega orðinn sjö ára og hélt upp á það með dálítið óvenjulegum hætti. Hvenær er afmælið þitt Haraldur Fróði? Það er 21. mars og ég fæddist árið 2013. Hvað var sérstakt við afmælið þitt núna? Það var svoldið skrítið af því það mátti enginn koma inn í afmælisveislu til mín vegna þess að ég var í sóttkví. En ég var mjög hissa að fá afmælisvídeó frá Daða úr Eurovision keppninni! Hvort hlakkaðir þú til afmælisins eða kveiðst fyrir? Hlakkaði til, ég elska afmæli. Var hægt að halda veislu? Ekki alveg, út af því að ég var í sóttkví en samt komu amma, afi og pabbi í afmæliskaffi og voru fyrir utan gluggann í brjáluðum stormi! Hann pabbi var ekki í sóttkví með okkur nefnilega. Kannski höldum við veislu í sumar í staðinn og þá geta allir verið úti að leika. Fengu gestirnir á pallinum eitt- hvað í svanginn? Að sjálfsögðu. Amma og afi komu sjálf með kaffi í brúsa og svo var súkkulaðikaka sem Almar bakari bakaði fyrir afmælið. Hann setti líka kökusneiðar á sér diska og pakkaði þeim inn. Svo keyrði ég, mamma og Steingrímur bróðir minn með kökudiskana og gáfum vinum mínum og fjölskyldu. Þurftum að vera með hanska og bara setja diskana fyrir utan húsin hjá öllum. Fékkstu einhverja pakka? Já fullt! Galdradót, Pacman tölvu, bolta með dótakalli inn í, spil, Harry Potter Lego, könguló og skemmtilegar bækur. Ertu í skóla? Já, ég er í Grunnskól- anum í Hveragerði í fyrsta bekk. Ertu farinn að lesa? Já, mér finnst mjög gaman að bókum og uppá- haldsbækurnar mínar núna sem við mamma og pabbi erum að lesa saman á kvöldin eru Goðafræði, Múmínálfa- og Harry Potter bæk- urnar. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Kennari og ísgerðar- maður. Fékk afmælisvídeó frá DAÐA Haraldur Fróði segist örugglega alltaf muna eftir þessum afmælisdegi. Amma, afi og pabbi voru í afmæliskaffi fyrir utan gluggann í brjáluðum stormi en ég og bróðir minn, Steingrímur Darri, vorum inni í hlýjunni. HANN PABBI VAR EKKI Í SÓTTKVÍ MEÐ OKKUR NEFNILEGA. KANNSKI HÖLDUM VIÐ VEISLU Í SUMAR Í STAÐINN ÞÁ GETA ALLIR VERIÐ ÚTI AÐ LEIKA. „Og hvað eigum við eiginlega að gera við þessa þríhyrninga,“ spurði Kata snúðug. „Þetta eru endalausir þríhyrningar.“ „Ekki alveg endalausir,“ sagði Lísaloppa. „Við eigum að telja alla þá þríhyrninga sem við getum séð út úr myndinni og þá líka þá þríhyrninga sem verða til úr öðrum.“ „Þú meinar ekki bara þessa einföldu heldur líka þá sem verða til eins og þessi stóri utan um þá alla?“ spurði Kata. „Já einmitt,“ sagði Lísaloppa. Konráð horfði á þessa þríhyrningamynd og byrjaði að telja í huganum, hann fann að hann ruglaðist o„ þegar hann var farinn að sjá þríhyrninga alls staðar í myndinni. Konráð á ferð og ugi og félagar 397 Getur þú talið hvað eru margir þríhyrningar á þessari mynd? ? ? ? ? ? Lausn á gátunni SVAR: 13? 2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.