Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Heimkaup.is er stærsta netverslun á landinu, er eingöngu á vefnum og selur matvöru og flesta sérvöru. Markaðsstjóri heimkaup.is, Hildigunnur Þráinsdóttir, segir að eins og við var að búast hafi sala á matvöru margfaldast. „En það er ekki bara vöxtur í matnum, heldur í afþreyingunni heldur betur. Það er engu líkara en að hálf þjóðin sé nú sest við púsl, við höfum aldrei selt jafnmikið af púsluspilum, ekki einu sinni fyrir jólin. En höfum sem betur fer úr nægu að moða. Við höfum stært okkur af því að vera með landsins mesta úrval af púsluspilum og þau rjúka út núna eins og heitar lummur.“ Hildigunnur segir að þetta komi svo sem ekkert sérstaklega á óvart. „Margir láta sig dreyma um að hafa tíma til að púsla – svei mér þá ef sá draumur er ekki bara að rætast núna. Þetta er auðvitað erfitt og margir eru órólegir en við vitum að þetta tekur enda og vonandi geta allir þeir sem eru frískir nýtt tímann til að gera eitthvað sem annars erfitt er að finna tíma í.“ Stærsta púslið sem fæst á Heim- kaup er 6.000 bita en 1.000 bita púslin eru alltaf vinsælust, og Hildigunnur segir að það sé úr hátt í tvö þúsund myndum að velja. Bækur, Lego og æfingatæki Krakkarnir eru líka mikið heima, margir fara bara í skólann annan hvern dag og mega lítið hittast utan skóla. Þetta reynist örugg- lega mörgum erfitt og það verður að bjóða upp á eitthvað annað en skjá. „Það er mjög mikið keypt af Lego og alls konar kubbum fyrir krakka, litabókum, föndri og svoleiðis, en við erum með flotta leikfangadeild og mikið úrval af kubbum, föndri og þrautum. Hvað jafnast á við spilakvöld með fjöl- skyldunni?“ Nú kemst fólk ekki í ræktina eins og venjulega og heimkaup. is hefur líka orðið vart við það. Lóð, teygjur og önnur æfingatæki klárast jafnharðan og þau koma inn. Hildigunnur segir að enn sé eitthvað til og þau hafa alla anga úti til að vera sér úti um æfinga- vörur. Bókamarkaðsverð á bókum Heimkaup.is hefur ætíð verið með flotta bóksölu. Hildigunnur segir að margir bókaútgefendur hafi gefið heimkaup.is bókamarkaðsverð af bókum áfram eftir að hefðbundnum mörkuðum lauk í febrúar. „Það er bara gaman að geta gert vel við viðskiptavinina og boðið mikið af bókum á góðu verði svo auðveldara sé að smella spennusögu með í matarkörfuna,“ segir Hildigunnur og greinilegt að margir fagna því að geta fengið afþreyinguna heim að dyrum. Heimsendingar hafa margfaldast undanfarið Heimkaup.is er stærsta netverslun landsins og hefur verið starfandi í sjö ár. Verslunin fer stöðugt stækkandi og munar þar miklu um matvöruna sem heimkaup.is hefur selt síðan í nóvember 2018. Matvörusalan fór mjög vel af stað að sögn Hildigunnar og greinilegt að Íslendingar vilja þessa þjónustu og kunna að meta þægindin. „Við stefnum að vexti eins og öll önnur fyrirtæki. Vöxtur skellur þó sjaldan svona hastarlega á eins og núna og við þurftum að bregðast skjótt við. Okkur hefur tekist að anna margfaldri eftirspurn og erum mjög stolt af starfsfólkinu okkar en það stendur sig ótrúlega vel svo ekki sé meira sagt. Hér gengur maður undir manns hönd á hverjum einasta degi, álagið er meira, vinnuaðstæður breytast stöðugt, nýtt fólk kemur til starfa og svo þarf að passa fjarlægðir hvert við annað í vöruhúsinu. Skrifstofufólkið vinnur allt heima en hittir fólkið í vöruhúsinu á fjarfundum á hverjum morgni til að taka stöðuna,“ segir Hildigunnur. „Við settum mjög strangar reglur í vöruhúsinu strax fyrir samkomu bannið, enda kom á daginn að við erum að sinna mjög mikilvægri þjónustu sem má ekki undir nokkrum kringumstæðum klikka þegar fólk kemst ekki út í búð. Við verðum að halda hópnum hraustum og starfseminni gangandi hvað sem tautar og raular. Enn höfum við náð að afhenda vörur samdægurs og í versta falli daginn eftir fram að þessu. Það gengur ef samtakamátturinn er mikill, og við höfum hann.“ Hildigunnur hvetur fólk til að vera saman við dund, spil og púsl. Hildigunnur segir marga fagna því að geta fengið mat, afþreyingu og æfingatæki upp að dyrum, þar sem fólk er hvatt til að halda sig heima. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Það er mikið úrval af púsluspilum á heimkaup.is, það stærsta er 6.000 bita. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Við erum að sinna mjög mikilvægri þjónustu sem má ekki undir neinum kringum- stæðum klikka þegar fólk kemst ekki út í búð. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.