Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 28.03.2020, Blaðsíða 26
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Þjóðin getur hlakkað til kvöldsins því Helgi hefur einstakt lag á að koma henni í gott skap. Gleyma erfiðum stundum og hlýða á töfrandi músík. Helgi segir að hugmyndin að tónleikunum Heima, eins og hann kallar þá, hafi komið frá vinum hans á Ítalíu. „Ég þekki marga ítalska tónlistarmenn og þeir voru að pósta á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum alls kyns tónlistaruppákomum sem fengu mjög góðar viðtökur. Mig langaði að gera þetta líka og setti mig í samband við Símann til að athuga hvort þetta væri framkvæmanlegt. Þeir tóku þessu fagnandi. Í fyrstu áttu tónleikarnir að vera heima hjá mér en þar sem ég bý í gömlu húsi þar sem ekki er mjög vítt til veggja var ekki hægt að framfylgja þeirri reglu að nægileg lengd væri á milli manna. Við fengum því hliðarsal í Hlégarði til að gera þetta mögulegt og útbjuggum hann eins og heimili. Ég fór til dæmis með eigin húsgögn og hluti til að gera umhverfið kósí,“ segir Helgi. „Þótt ég hafi tilkynnt það í þættinum að þetta væri í Hlégarði voru margir sem héldu að þetta væri heima hjá mér,“ segir hann. Óvæntur leynigestur „Mig langaði að gleðja fólk og sá fyrir mér að allir væru lok- aðir heima. Ég var búinn að sjá að hverju stefndi og að það kæmi að þessu samkomubanni. Það var byrjað að fresta ýmsum við- burðum og ég þar á meðal mínum eigin. Tónlistarmennirnir sem eru með mér í þættinum tóku strax vel í að gera þetta með mér og við pössuðum auðvitað að enginn væri að faðmast eða snertast. Auk þess héldum við ákveðinni fjarlægð á milli okkar,“ segir Helgi en hann verður með nýjan gest í útsendingunni á laugardag. Um síðustu helgi söng Salka Sól með nokkur lög. Helgi segir að þetta sé leyni- gestur. „Mig langar til að það komi fólki á óvart hver hann er,“ segir hann. Það gekk ekki að ná því upp úr Helga hver hann yrði en hann upplýsti þó að þetta væri mjög vin- sæll söngvari, karlkyns og frekar yngri en eldri. Nú verður fólk bara að geta í eyðurnar og horfa svo á þáttinn í kvöld og athuga hvort það hefur getið rétt. Snortinn yfir viðbrögðunum Í ljós kom að Helgi fékk gríðar- legt áhorf á þáttinn og hann er í skýjunum með viðbrögðin. „Við- brögðin á eftir komu mér algjör- lega í opna skjöldu. Það streymdu til mín þakklætiskveðjurnar og allir voru svo glaðir. Þetta hefur svo sannarlega hlýjað mér enda voru þetta hjartnæmar þakkir og margir báðu mig að endurtaka leikinn. Sumir voru búnir að horfa þrisvar og sungu alltaf með. Ein hjón sögðust hafa tekið fram gítar og bassa og síðan var bara spilað og sungið með. Kveðjurnar voru svo einlægar að ég var snortinn yfir þeim,“ segir Helgi. Hvort þætt- irnir verði f leiri segir hann að verði að koma í ljós. „Maður tekur bara eina helgi í einu í þessu ástandi. Lagavalið verður með svipuðum hætti og síðast. Mögulega getur fólk valið á milli laga á þeim lista sem við munum gefa upp og þá reynum við að syngja þau. Við erum að skoða hvernig við getum framkvæmt það. Við höldum sama forminu og síðast, verðum með lög sem þjóðin þekkir.“ Það er allt stopp í tónlistarbransanum og ekkert Helgi syngur með þjóðinni Helgi Björns söngvari kom með óvæntum og skemmtilegum hætti í heimsókn til þjóðarinnar síðasta laugardagskvöld með Sjónvarpi Símans og endurtekur það í kvöld enda viðbrögðin góð. Helgi Björns fékk mörg hundruð hlýjar kveðjur frá áhorfendum sem fylgdust með tón- leikum hans um síðustu helgi. Hann hlakkar til kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR ARI Það var kósí stemming hjá Helga og Reiðmönnum vindanna síðasta laugardag. Nú endurtaka þeir leikinn í kvöld og fjörið heldur áfram fyrir Salka Sól kom fram í síðasta þætti. Í kvöld kemur annar óvæntur gestur. að gera hjá listafólki. Helgi segir að árshátíð þar sem hann átti að koma fram í maí hafi verið frestað í heilt ár. Auk þess hafi hans eigin tónleikum 24. apríl, Sumarhátíð með Helga Björns, verið frestað þar til í lok sumars. „Það er ekkert hlaupið að því að fá húsnæði þegar líða fer á sumar og haust því það var löngu búið að bóka þau. En það verða örugglega allir tilbúnir til að skemmta sér þegar þessu ástandi lýkur. Núna þurfum við að lifa þetta af með æðruleysi og vera jákvæð. Svo tökum við hitt þegar þar að kemur.“ Tónlistarmenn- irnir sem eru með mér í þættinum tóku strax vel í að gera þetta með mér og við pöss- uðum auðvitað að eng- inn væri að faðmast eða snertast. Helgi Björnsson FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins Sími: 550-5654 / jonivar@frettabladid.is VORHREINGERNINGIN Sérblað Fréttablaðsins, Vorhreingerningin, kemur út mánudaginn 6. apríl. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.