Fréttablaðið - 28.03.2020, Qupperneq 26
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Þjóðin getur hlakkað til kvöldsins því Helgi hefur einstakt lag á að koma henni
í gott skap. Gleyma erfiðum
stundum og hlýða á töfrandi
músík. Helgi segir að hugmyndin
að tónleikunum Heima, eins og
hann kallar þá, hafi komið frá
vinum hans á Ítalíu. „Ég þekki
marga ítalska tónlistarmenn og
þeir voru að pósta á Facebook og
öðrum samfélagsmiðlum alls kyns
tónlistaruppákomum sem fengu
mjög góðar viðtökur. Mig langaði
að gera þetta líka og setti mig í
samband við Símann til að athuga
hvort þetta væri framkvæmanlegt.
Þeir tóku þessu fagnandi. Í fyrstu
áttu tónleikarnir að vera heima hjá
mér en þar sem ég bý í gömlu húsi
þar sem ekki er mjög vítt til veggja
var ekki hægt að framfylgja þeirri
reglu að nægileg lengd væri á milli
manna. Við fengum því hliðarsal
í Hlégarði til að gera þetta
mögulegt og útbjuggum hann eins
og heimili. Ég fór til dæmis með
eigin húsgögn og hluti til að gera
umhverfið kósí,“ segir Helgi. „Þótt
ég hafi tilkynnt það í þættinum að
þetta væri í Hlégarði voru margir
sem héldu að þetta væri heima hjá
mér,“ segir hann.
Óvæntur leynigestur
„Mig langaði að gleðja fólk og
sá fyrir mér að allir væru lok-
aðir heima. Ég var búinn að sjá
að hverju stefndi og að það kæmi
að þessu samkomubanni. Það
var byrjað að fresta ýmsum við-
burðum og ég þar á meðal mínum
eigin. Tónlistarmennirnir sem eru
með mér í þættinum tóku strax
vel í að gera þetta með mér og við
pössuðum auðvitað að enginn
væri að faðmast eða snertast.
Auk þess héldum við ákveðinni
fjarlægð á milli okkar,“ segir Helgi
en hann verður með nýjan gest í
útsendingunni á laugardag. Um
síðustu helgi söng Salka Sól með
nokkur lög.
Helgi segir að þetta sé leyni-
gestur. „Mig langar til að það komi
fólki á óvart hver hann er,“ segir
hann. Það gekk ekki að ná því upp
úr Helga hver hann yrði en hann
upplýsti þó að þetta væri mjög vin-
sæll söngvari, karlkyns og frekar
yngri en eldri. Nú verður fólk bara
að geta í eyðurnar og horfa svo á
þáttinn í kvöld og athuga hvort
það hefur getið rétt.
Snortinn yfir viðbrögðunum
Í ljós kom að Helgi fékk gríðar-
legt áhorf á þáttinn og hann er í
skýjunum með viðbrögðin. „Við-
brögðin á eftir komu mér algjör-
lega í opna skjöldu. Það streymdu
til mín þakklætiskveðjurnar og
allir voru svo glaðir. Þetta hefur
svo sannarlega hlýjað mér enda
voru þetta hjartnæmar þakkir og
margir báðu mig að endurtaka
leikinn. Sumir voru búnir að horfa
þrisvar og sungu alltaf með. Ein
hjón sögðust hafa tekið fram gítar
og bassa og síðan var bara spilað
og sungið með. Kveðjurnar voru
svo einlægar að ég var snortinn
yfir þeim,“ segir Helgi. Hvort þætt-
irnir verði f leiri segir hann að verði
að koma í ljós. „Maður tekur bara
eina helgi í einu í þessu ástandi.
Lagavalið verður með svipuðum
hætti og síðast. Mögulega getur
fólk valið á milli laga á þeim lista
sem við munum gefa upp og þá
reynum við að syngja þau. Við
erum að skoða hvernig við getum
framkvæmt það. Við höldum sama
forminu og síðast, verðum með lög
sem þjóðin þekkir.“
Það er allt stopp í
tónlistarbransanum og ekkert
Helgi syngur með þjóðinni
Helgi Björns söngvari kom með óvæntum og skemmtilegum hætti í heimsókn til þjóðarinnar
síðasta laugardagskvöld með Sjónvarpi Símans og endurtekur það í kvöld enda viðbrögðin góð.
Helgi Björns
fékk mörg
hundruð hlýjar
kveðjur frá
áhorfendum
sem fylgdust
með tón-
leikum hans um
síðustu helgi.
Hann hlakkar
til kvöldsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Það var kósí stemming hjá Helga og Reiðmönnum vindanna síðasta
laugardag. Nú endurtaka þeir leikinn í kvöld og fjörið heldur áfram fyrir
Salka Sól kom fram í síðasta þætti.
Í kvöld kemur annar óvæntur gestur.
að gera hjá listafólki. Helgi segir
að árshátíð þar sem hann átti að
koma fram í maí hafi verið frestað
í heilt ár. Auk þess hafi hans eigin
tónleikum 24. apríl, Sumarhátíð
með Helga Björns, verið frestað
þar til í lok sumars. „Það er ekkert
hlaupið að því að fá húsnæði þegar
líða fer á sumar og haust því það
var löngu búið að bóka þau. En
það verða örugglega allir tilbúnir
til að skemmta sér þegar þessu
ástandi lýkur. Núna þurfum við að
lifa þetta af með æðruleysi og vera
jákvæð. Svo tökum við hitt þegar
þar að kemur.“
Tónlistarmenn-
irnir sem eru með
mér í þættinum tóku
strax vel í að gera þetta
með mér og við pöss-
uðum auðvitað að eng-
inn væri að faðmast eða
snertast.
Helgi Björnsson
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins
Sími: 550-5654 / jonivar@frettabladid.is
VORHREINGERNINGIN
Sérblað Fréttablaðsins, Vorhreingerningin,
kemur út mánudaginn 6. apríl.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R