Fréttablaðið - 28.03.2020, Page 10

Fréttablaðið - 28.03.2020, Page 10
Ég mun vinna heima og vera í einangrun. Það er það rétta í stöðunni. Boris Johnson Alls hafa um 86.500 tilvik verið skráð í landinu, yfirvöld telja hins vegar að óskráð tilvik séu mun fleiri. Að minnsta kosti 860 menn voru teknir af lífi á árunum 1946 og 1947. .      VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | WWW.VR.IS VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs- íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 8. apríl 2020. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhver fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði: – Lýsing á eign og því sem henni fylgir – Ástand eignar og staðsetning – Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár – Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni B R E T L A N D B o r i s J o h n s o n , forsætisráðherra Bretlands, og Matt Hancock heilbrigðisráðherra, hafa báðir greinst með COVID-19. Báðir eru þeir með væg einkenni og munu halda áfram störfum sínum í sóttkví. „Ég mun vinna heima og vera í ein angrun. Það er það rétta í stöð- unni,“ sagði John son í myndbandi sem hann birti á Twitter. Tæplega tólf þúsund manns eru nú smitaðir af COVID-19 í Bretlandi og hafa 580 manns látið lífið. Michel Barnier, aðalsamninga- maður ESB í viðræðum við Breta um samband þeirra, er einnig smitaður af COVID-19. Síðastliðinn þriðjudag var öllum tilraunum til að halda samningafundi í gegnum fjarfunda- búnað hætt. – ab Johnson með COVID-19 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segist ætla í einangrun. ÍTALÍA Hátt í þúsund manns létust af völdum COVID-19 á Ítalíu í gær, þar af fjórir læknar. Alls hafa meira en níu þúsund manns látist af völdum faraldursins í landinu. Staðfestum smitum í landinu fer fækkandi, rúmlega fjögur þúsund ný tilvik voru skráð í gær. Alls hafa um 86.500 tilvik verið skráð í landinu, yfirvöld telja hins vegar að óskráð tilvik séu mun fleiri. Miklar vonir eru um að árangur fari að sjást af ströngu útgöngubanni, en háar sektir liggja við því að vera utandyra án gildrar ástæðu. „Við höfum ekki náð toppnum,“ sagði Silvio Brusaferro, yfirmaður Heilbrigðisstofnunar Ítalíu, við AFP í gær. „Það er margt sem bendir til að hægist á faraldrinum, sem þýðir að möguleiki sé á að við náum toppnum á næstu dögum.“ – ab Hafa ekki náð toppnum HOLLAND Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur dæmt hollenska ríkið til að greiða skaðabætur fyrir fjölda- morð á nýlendutímanum. Ættingjar 11 manna sem teknir voru af lífi í frelsisstríði Indónesíu á fimmta ára- tugnum munu hljóta bætur. Hollenska ríkið hafði óskað eftir að kröfurnar yrðu felldar niður vegna þess tíma sem liðinn er síðan brotin voru framin. Málin snerust um menn sem drepnir voru af hermönnum í indónesíska héraðinu Suður-Sula- wesi í svokölluðum „hreinsunarað- gerðum“ Hollendinga. Að minnsta kosti 860 menn voru teknir af lífi á árunum 1946 og 1947 í Sulawesi, og hafa fleiri indónesískar fjölskyldur sóst eftir bótum vegna þeirra. Einn bótaþega var Andi Monji, 83 ára, sem ferðaðist til Hollands til að segja sögu sína en hann var aðeins tíu ára gamall þegar hann var neyddur til að fylgjast með aftöku föður síns eftir að hafa verið laminn illilega. Monji þakkaði dómstólnum fyrir niðurstöðuna. Í úrskurði dómsins kemur fram að upphæðirnar sem veittar verði bæti ekki þann sársauka og sorg sem aftökur mannanna hafi valdið fjölskyldum þeirra. – atv Hollendingar greiða fyrir brot á nýlendutímanum Hollendingar tóku marga af lífi í sjálfstæðisbaráttu Indónesíu. 2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.