Fréttablaðið - 28.03.2020, Qupperneq 16
Það er mjög margt
frumlegt og flott
sem er að gerast í augna-
blikinu.
Auður Inga
Þorsteinsdóttir,
framkvæmda-
stjóri UMFÍ
2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
ÍÞRÓTTIR „Hljóðið er tvíþætt í okkar
fólki. Annars vegar er það ótrúlega
lausnamiðað og hugmyndaríkt að
spila úr þeim aðstæðum sem við
erum öll í og svo hins vegar þessi
óvissa varðandi framtíðina. Þá
erum við ekkert að spá í apríl eða
maí heldur horfum við langt fram í
tímann. Stórar tekjur íþróttafélaga
eru frá utanaðkomandi aðilum sem
allir eru að draga saman seglin.
Þannig að langtímaáhrifin munu
birtast síðar í íþróttastarfinu. Þetta
tvennt kristallast í okkar sam
tölum,“ segir Auður Inga Þorsteins
dóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Stjórnendur og þjálfarar eru allir
í sömu sporum enda liggur allt
íþróttastarf niðri meðan á sam
komubanni stendur. Jónas Halldór
Friðriksson, framkvæmdastjóri
Völsungs á Húsavík, segir að
ástandið hafi mikil áhrif bæði
á Völsung og iðkendur, andlega
og ek k i síðu r f já rhag sleg a .
Mikilvægasta hlutverkið sé þó
að halda iðkendum við efnið og
í starfinu. Þá sé mikilvægt að
íþróttafélögin gleymist ekki í
umræðunni þegar samfélagið fer
að ganga sinn vanagang aftur.
Jónas segir stærstu áskorun
Völsungs og f leiri íþrótta og ung
mennafélaga að stoppa ekki starfið
þótt æfingar falli niður.
„Nú þegar skólastarfið er tak
markað þá þurfum við að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að halda
áfram. Við getum nýtt tímann til að
skipuleggja starfið svo það gangi
áfallalaust þegar við komumst aftur í
gang. En öllu skiptir að halda iðkend
um virkum. Jafnvel þótt þeir geri sitt
heima eða úti. Um leið og fólk tekur
sér hlé frá íþróttum þá tökum við
skref aftur á bak. Og þá fyrst lendum
við í vanda. Þess vegna verðum við
að halda áfram,“ segir hann.
Auður segist vita til þess að ein
hver félög muni ná að standa við
sínar skuldbindingar um þessi mán
aðamót og standi þokkalega. Önnur
séu að grípa til ráðstafana. „Að vissu
leyti þarf kannski að skoða íþrótta
félög og félagasamtök almennt með
öðrum augum og nota önnur gler
augu á það. En allt samfélagið er á
hliðinni og ég hef alveg skilning á
að íþróttastarf sé ekki í fyrsta for
gangi en einhvern tímann hljótum
við að komast að. Við erum í góðum
samskiptum við yfirvöld og þau
hafa sagt við okkur að ef það þurfi
að gera meira þá muni þau gera það.“
UMFÍ er með þrjú landsmót í
sumar, unglinga, 50 plús og hið
hefðbundna, og segir Auður að þau
séu enn á dagskrá en öll eiga þau að
fara fram seinna í sumar. „Við ætlum
aðeins að bíða og sjá og tökum svo
einhverja skynsamlega ákvörðun
þegar við sjáum hvernig þetta er að
þróast.
Það er ekki búið að pressa okkur
út í horn en við ætlum ekki að þvinga
neitt í gegn sem er ekki skynsamlegt
að gera. Þannig að við erum að bíða
og vonum að kúrfan fari eins og við
vonumst eftir.“
Flest lið stunda nú heimaæfingar
með sínum iðkendum og segir
Auður að flest félög haldi úti starf
inu á nýjan og frumlegan hátt. „Ég
get ekki svarað fyrir öll félög að
sjálfsögðu en mín upplifun er að
mikill meirihluti félaga er að halda
úti starfinu með öðrum hætti,
hvort sem það er með fjaræfingum
eða jafnvel „live“ æfingum þar sem
þjálfarinn er heima en iðkendur eru
þá að herma eftir heima og enn aðrir
senda inn myndbönd af sér. Það er
mjög margt frumlegt og flott sem er
að gerast í augnablikinu.
En við höfum áhyggjur af heildar
myndinni því það eru brestir í
henni, eins og styrkir fyrirtækja,
mótin sem eru að falla niður og svo
þessir útleigupóstar, hvort sem það
eru árshátíðir eða sýningar eða hvað
sem er.
Ég heyri á framkvæmdastjór
unum að þeir eru hræddir við
brottfall líka í framhaldinu. Það eru
ekki bara rekstrartölurnar sem við
þurfum að hlúa að, jafnvel þó að þær
séu rauðglóandi í augnablikinu.“
benediktboas@frettabladid.is
SPORT
Óttast brottfall iðkenda frá
félögum í fjárhagsvanda
Íþróttafélög í landinu eru lausnamiðuð og hugmyndarík gagnvart sínum iðkendum í því ástandi sem
nú gengur yfir. Flest ef ekki öll eru með einhvers konar heimaþjálfun í gangi. Þó að rekstrartölurnar séu
slæmar þá eru einhver félög sem ná að standast sínar skuldbindingar. UMFÍ óttast þó brottfall iðkenda.
Allt íþróttastarf liggur niðri meðan á samkomubanni stendur og æfa því flestir heima hjá sér. MYND/UMFÍ
F Ó T B O LT I E g g e r t G u n n þ ó r
Jónsson var í gær orðaður við
FH, en þátturinn Dr. Football,
greindi fyrst frá. Eggert er 31 árs
og á 21 landsleik með íslenska
landsliðinu. Í desember var greint
frá því að miklar deilur væru innan
FH eftir að knattspyrnudeildin
tók sex milljóna lán frá barna
og unglingastarf inu. Eftir þær
f réttir hef ur FH key pt einn
efnilegasta leikmann landsins,
L eik nisma nninn Vu k Osk a r
Dimitrijevic á rúma milljón og
lánað hann strax aftur til Leiknis.
Þá gekk Daníel Hafsteinsson í
raðir liðsins á láni frá Helsingborg
FH heldur
áfram að eyða
FÓTBOLTI Leikmaður Everton,
Oumar Niasse, var stöðvaður af
lögreglunni í Bretlandi fyrir að
vera ekki með beltið spennt. Þegar
lögreglan nálgaðist bílinn sá hún
að Niasse var með þrjá farþega
með sér en Bretland, líkt og nánast
allur heimurinn, er í sóttkví og má
enginn fara að heiman nema til að
fara í búð eða apótek. Samkvæmt
e n s k u m f j ö l m i ð l u m v o r u
lögreglumennirnir sem stoppuðu
hann langt frá því að vera ánægðir
með kauða og lásu honum pistilinn.
Tvær konur voru í bílnum og fengu
þær að fara heim með Uber. Niasse
var skipað að keyra heim og halda
sig heima eins og breska þjóðin þarf
að gera næstu vikurnar. – bb
Beltislaus með
fjóra í bílnum
Eggert er orðaður við heimkomu.
Oumar Niasse í leik með Everton.
BAKARÍIÐ
FRÁ KLUKKAN 09:00 - 12:00
Eva Laufey og Svavar Örn
opna Bakaríið alla laugardagsmorgna.