Fréttablaðið - 28.03.2020, Side 21
Það er ekkert ólíklegt að eitthvað af
þessum stökkbreytingum finnist
utan Íslands ef menn raðgreina
meira.
En hún er að stökkbreytast, og
afleiðingin af því er að ef þú skoðar
raðir niturbasa, þá geturðu séð
alls konar mynstur. Þar sér maður
mynstur sem finnst í Austurríki,
annað mynstur sem f innst á
Ítalíu, þriðja á Englandi, fjórða í
Bandaríkjunum, fimmta í Kína
og svo framvegis. Þetta gerir það
að verkum að þegar við horfum á
þessa rúmlega 800 sem hafa greinst
á Íslandi þá getum við, með því að
skoða raðirnar af niturbösum,
ák varðað hvaðan veiran sem
einstaklingur er með, hefur komið
inn í landið.
Til að byrja með þá var meiri-
hluti tilfellanna sem Landspítalinn
greindi, frá Ítalíu og Austurríki.
Hægt og rólega breyttist það þegar
við vorum að skima og gátum sýnt
að sýkingarnar voru líka að koma
frá öðrum stöðum og því var það
fólk skoðað nákvæmar.
Núna er minnihluti veiranna sem
hér finnast frá þessum svæðum sem
fyrst voru greind. Þegar við skoðum
sýkingarnar sem eiga sér stað
innanlands og verða ekki raktar út
á við, þá er ýmislegt sem bendir til
þess að þær komi ekki frá Ítalíu og
Austurríki heldur frá Englandi og
þar í kring.
Þannig að á meðan við vorum
að einbeita okkur að Ölpunum var
veiran að lauma sér inn í landið með
fólki frá Englandi og öðrum löndum.
Sú staðreynd að smitin sem eiga sér
stað hér eru með annað mynstur
heldur en það sem verið er að greina
uppi á Landspítala, bendir til þess að
þó það séu kannski ekki eitt prósent
Íslendinga smitaðir, þá er mjög lík-
legt að veiran sé komin mjög víða.“
Hvað þýðir það fyrir framgang
sjúkdómsins að hann stökkbreytist
svo ört?
Kári segist ekki vera með svarið
við því, bæði komi til greina að
stökkbreytingar veirunnar hafi
engin áhrif eða þær geri hana meira
smitandi eða grimmari. „Flestar
þessara stökkbreytinga hafa lík-
lega engin áhrif. Við fundum einn
einstakling sem var með tvö form
af veirunni, annað með stökk-
breytingu en hitt ekki. Þeir sem
smituðust af þessum einstaklingi
voru allir með það form sem var
með stökkbreytinguna. Sem gefur
þann möguleika að stökkbreytingin
hafi gert hana hvassari en það er líka
vel mögulegt og kannski líklegra að
þetta gerist af tilviljun einni saman.
Það segir okkur ekkert örugglega að
sú stökkbreyttari sé grimmari.“
Tilviljun ræður öllu
Hvers vegna eiga f lestar veirusýk-
ingar upptök sín í Kína?
„Þetta er ekki sanngjörn spurn-
ing. Ef veira sem hefur búið í leður-
blöku fer í aðra skepnu og síðan í
mann, ef hún gerir það á annað borð
eru býsna stórar líkur á að hún geri
það í Kína því þar býr fjórðungur
mannkyns. Ég held að það sé ekki
hægt að kenna lifnaðarháttum Kín-
verja þar um. Tilviljun ræður öllu í
þessu lífi, hún er hinn eini sanni
guð.“
Er hægt að fyrirbyggja slíkan
faraldur?
„Faraldur af þessari gerð er
nokkuð sem menn hafa verið að
velta fyrir sér í dálítið langan tíma.
Þú getur til dæmis fundið á You-
tube fyrirlestur frá TED-ráðstefnu
sem Bill Gates flutti fyrir svona sex,
sjö árum. Þar lagði hann áherslu á
að við værum ekki undirbúin undir
svona faraldur, svo illvíga veiru.
Hann lýsti því sem myndi gerast
ef hún kæmi og það er næstum því
eins og ljósmynd af því sem er að
gerast núna. Þótt þetta væri óvænt
þá var það ekki endilega ófyrir-
sjáanlegt að svona gæti gerst.“
AIDS var mikið erfiðari veira
Vísindasamfélagið, getur það lagt
meira af mörkum í baráttunni?
„Það er verið að vinna að því
um allan heim að búa til bóluefni
og finna leiðir til að takast á við
þetta.“ Kári rifjar það upp að hann
starfaði við Chicago háskóla þegar
AIDS-faraldurinn kom upp og segir
hann að mikið erfiðara hafi verið að
takast á við þá veiru. „Okkur fannst
eins og um væri að ræða fyrsta
kaf lann í endalokum mannkyns.
En á ótrúlega skömmum tíma tókst
vísindasamfélaginu að ná tökum á
þessari veiru. Ég held því fram að
sigur vísindasamfélagsins á AIDS sé
stærsti sigur þess í heila öld. Þetta
var miklu erfiðari veira.“
Kári segir kórónaveiruna sem
veldur Covid 19 vera mun einfaldari
veiru sem jafnframt sé líkari
því sem áður hafi sést, auk þess
sem vísindamenn búi yfir meiri
tækni og geti unnið hraðar. „Þessi
veira kom fram í lok desember og
menn eru nú þegar farnir að prófa
bóluefni í klínískum tilraunum á
fólki. Þetta hefur tekist á aðeins
þremur mánuðum og það er alveg
stórkostlegt. Ég hef fulla trú á því
að innan tiltölulega skamms náist
einhvers konar stjórn á þessu.“
En hvað á hann við með innan til-
tölulega skamms tíma?
„Ég held að samfélagið okkar
verði alveg á hliðinni í tvö ár. Ég
held að efnahagslegar af leiðingar
muni reynast okkur erfiðar og við
eigum fyrir höndum hálft ár eða svo
þar sem verður erfitt með aðföng.
Við getum lifað hér mjög vel en
ég held að neyslumynstur okkar
breytist.“
Dugleg þegar áföll steðja að
Ertu þá að tala um vöruskort?
„Skort á sumum vörum sem eru
kannski meiri lúxus en þörf. Við
höfum kannski bara ósköp gott af
því að fara í gegnum þannig lagað
en það má víst ekki segja þannig
vitleysu.“
Kári segist finna fyrir mikilli
samstöðu fólks og gaman sé að
verða var við það hversu mikið fólk
sé reiðubúið að leggja á sig. „Okkur
vantar pinna og ég hef fengið sím-
töl frá forstjórum sirka 10 fyrir-
tækja sem spyrja hvernig þeir geti
lagt af mörkum. Menn hafa verið
að hringja út um allan heim til að
reyna að finna fyrir okkur pinna.“
Talið berst að íslenskri þjóð,
brestum hennar og styrkleikum.
„Við kunnum ekki að vera rík og
við kunnum ekki að láta okkur
líða vel í þessu samfélagi. En við
erum býsna dugleg að takast á við
áföll. Þetta er auðvitað of boðslegur
persónuleikabrestur að geta ekki
látið sér líða vel,“ segir Kári og hlær.
„Að geta einungis brugðist vel við
þegar skellurinn kemur. En það er
erfitt að verða ekki klökkur núna
þegar maður verður vitni að fólki
rjúka upp til handa og fóta til að
gera hvað sem er til að hjálpa.“
Eigum nú að snúa
bökum saman
Finnst þér ríkisstjórnin hafa staðið
sig í sínum aðgerðum?
„Mér finnst ríkisstjórnin hafa
staðið sig ótrúlega vel með því að
hafa ekki skipt sér af því hvernig
fagmennirnir eru að stjórna þessu.
Nú finnst þér þetta kannski ekki
mikið hrós en þetta er mikið hrós.
Í löndunum í kringum okkur
hafa ríkisstjórnir tekið fram fyrir
hendurnar á fagaðilum og lokað
landamærum, lokað skólum og
gert alls konar ráðstafanir, gegn
ráðum þeirra sem eiga að vita betur.
Okkar ríkisstjórn hefur staðið sig
stórkostlega hvað þetta snertir og
ég er mjög montinn af þeim.“ Kári
segist svitna örlítið við að hrósa
ríkisstjórninni en bætir þó við að
hana skipi gott fólk. „Nú er ekki sá
tími sem maður á að þykjast vita
betur og gagnrýna. Það verður að
bíða betri tíma. Núna eigum við
að snúa bökum saman og róa öll í
sömu áttina.“
Kári hefur verið óspar á hrós til
handa þríeykinu í framlínu barátt-
unnar, þeirra Ölmu Möller, Þórólfs
Guðnasonar og Víðis Reynissonar.
„Þetta er bara svo gott fólk! Það er
að vinna sína vinnu vel. Ég er mikill
aðdáandi Ölmu landlæknis, hún
er alveg stórkostleg. Ég hafði reynt
hana að svo mörgu góðu áður en við
byrjuðum á þessu verkefni,“ segir
Kári og fer jafnframt fögrum orðum
um kollega hennar tvo.
„En maður kemst ekki hjá því að
leiða hugann að því, nú þegar til-
fellum fer að fjölga og færast yfir á
spítalann, hvernig það muni ganga
að höndla þetta fólk sem er orðið
það lasið að það þarf hjálp öndun-
arvéla. Það er töluvert áhyggjuefni
en ég held samt að við komumst í
gegnum þetta án þess að allt koðni,
ég held að það séu meiri líkur en
minni á því. Ég hef tröllatrú á þessu
fólki.“
Fólk tekur þessu ofsalega vel
Dætur Kára og barnabörn búa
bæði í London og Los Angeles og
heyra má á Kára að honum þætti
þægilegra að fá sitt fólk heim. „Ég
var alltaf að reyna að hvetja Sólveigu
dóttur mína til að koma heim en
hún hlustaði ekkert á mig, heldur
ferðaðist til Suður-Afríku. Hún
hringdi svo í mig fyrir nokkrum
dögum og ég hélt að hún væri loks
farin að taka þetta alvarlega en þá
sagði hún bara: „Pabbi, ég var að
horfa á viðtal við þig í sjónvarpinu
áðan og þú verður að fara að taka
úr þér blinda augað – þetta er allt of
ljótt!“ rifjar Kári upp og skellihlær.
„Það var nú allt áhyggjuefnið!
Það virðist engin þjóð vera að
takast á við þetta eins vel og við. Ég
verð ekki var við neitt panikk hér á
landi. Ég verð ekki var við að það sé
verið að tæma hillur í búðum. Mér
finnst fólk taka þessu bara ofsalega
vel.“
Þó einhverjir kalli eftir hertari
aðgerðum hér á landi segist Kári
treysta dómgreind þeirra sem séu
við stjórnvölinn fullkomlega. „Það
er hægt að setja röksemdir fram
fyrir öllu milli himins og jarðar en
það er mjög mikilvægt að gæta þess
að aðgerðirnar sem við ráðumst í
hafi ekki verri afleiðingar en veiran
sjálf. Mér finnst þau feta þennan
milliveg ansi skemmtilega og nota
kommon sens mikið. Ég hef ekkert
út á það að setja hvernig þau vinna
þetta. Mér finnst þau perfekt.“
Æðruleysisbænin á vel við núna
Óttastu að sýkjast sjálfur?
„Nei, það held ég ekki. Ég held
að ég væri ekki í vinnunni ef ég
væri mjög hræddur við þetta. Nú
ef ég sýkist þá sýkist ég. Ég vona að
ef ég sýkist þá jafni ég mig en ef ég
jafna mig ekki þá er ég búinn að lifa
býsna góðu lífi. Þetta er eitt af því
sem maður getur í raun ekkert gert
við. Ég held að þetta sé eitt af þeim
augnablikum þar sem einhvers
konar æðruleysisbæn myndi passa
mjög vel.
Það er sumt sem við getum
gert: Við getum þvegið á okkur
hendurnar, haldið svolítilli fjarlægð
og verið heima hjá okkur eins
mikið og hægt er. Við getum lifað
heilbrigðu lífi, borðað vel og hreyft
okkur og svo framvegis. Þegar
maður er búinn að því þá er þetta
bara í höndum þessa guðs sem heitir
tilviljun.“
ÉG HELD AÐ ÞETTA SÉ EITT
AF ÞEIM AUGNABLIKUM
ÞAR SEM EINHVERS KONAR
ÆÐRULEYSISBÆN MYNDI
PASSA MJÖG VEL.
Kári segir meira vitað um dreifingu veirunnar hjá íslenskri þjóð heldur en nokkurri annarri þjóð í nokkru öðru landi, því hér hafi verið skimað svo miklu meira. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21L A U G A R D A G U R 2 8 . M A R S 2 0 2 0