Fréttablaðið - 28.03.2020, Page 46
Við stöndum upp og teygjum úr
okkur eftir þörfum. Hjörleifur
fer í sund á morgnana og ég
hoppa og dansa í Kramhúsinu í
hádeginu þrjá daga í viku. Svo
eru gönguferðir líka vinsælar
hjá okkur.
Ástkæra móðir okkar, systir okkar,
amma og langamma,
Sigrún Ragnarsdóttir
lést á heimili sínu í Vestmannaeyjum
9. mars og í ljósi aðstæðna hefur útför
farið fram í kyrrþey.
Ragnar Gíslason
Jón Gíslason
Erla Björk Gísladóttir
Erla Ragnarsdóttir
Björg Ragnarsdóttir
Guðbjörg Ragna Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Aðalheiður Katrín
Hafliðadóttir
lést á Landspítalanum 21. mars.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Guðlaugur Helgason
Júlía Laufey Guðlaugsdóttir Hjörtur Hoffmann
Viðar Guðlaugsson Bryndís Kristjánsdóttir
Ólöf Hafdís Guðlaugsdóttir
Aldís Katrín Guðlaugsdóttir Ívar Örn Ómarsson
Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir Hörður Ómarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Eysteinn Sigurðsson
PhD. íslenskufræðingur
og kennari,
lést laugardaginn 21. mars og fór útför
hans fram föstudaginn 27. mars í kyrrþey
sökum aðstæðna í samfélaginu.
Þökkum hlýhug og góðar kveðjur.
Sigríður Eysteinsdóttir
Jóhannes Hermannsson
Þóra Björk Eysteinsdóttir
Gunnar Wedholm
Helgi Valur Wedholm
Eysteinn Örn Jóhannesson
Baltasar Máni Wedholm
Hugheilar þakkir fyrir samúð, hlýju
og fallegar kveðjur við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og bróður,
Leonhards Inga Haraldssonar
tannlæknis.
Þökkum sérstaklega starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sóltúns ómetanlega umönnun,
vináttu og virðingu.
Amalía Halla Skúladóttir
Haraldur Ó. Leonhardsson Anna K. Engilbertsdóttir
Ásta Leonhardsdóttir Þóroddur Björgvinsson
Halla I. Leonhardsdóttir Einar Ö. Jónsson
Ingunn Leonhardsdóttir
Haukur Haraldsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Ingvarsson
Þrúðvangi 20, Hafnarfirði,
lést á öldrunardeild, Vífilsstöðum,
miðvikudagskvöldið 25. mars.
Útförin fer fram í kyrrþey í ljósi
núverandi aðstæðna.
Ágústa Jónsdóttir
Ingvar Sigurðsson Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
Jón Helgi Sigurðsson Sara Lind Ólafsdóttir
Tómas Sigurðsson Arnfríður Kr. Arnórsdóttir
Agnar Sigurðsson Eva Rós Sigurðardóttir
börn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Sigfríð Valdimarsdóttir
Heiðarbrún 88,
Hveragerði,
lést þann 19. mars á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Útförin fór fram í kyrrþey í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.
Minningarathöfn mun fara fram síðar.
Ásdís Birna Stefánsdóttir Sigurður Hjalti Magnússon
Ragnhildur Guðmundsdóttir
Einar Guðmundsson Inga Pála Línberg Runólfsdóttir
Valdimar Ingi Guðmundsson
Hrefna Guðmundsdóttir
Ásta María Guðmundsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg S. Karlsdóttir
lést 22. mars á Hrafnistu, Reykjavík.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fer
útför fram í kyrrþey en minningarathöfn
verður auglýst síðar.
Karl Jónsson Guðrún H. Aðalsteinsdóttir
Þóra Kristín Jónsdóttir Grétar Viðar Grétarsson
Kristján Jónsson Diljá Þórhallsdóttir
börn og barnabörn.
Það hefur runnið upp fyrir ok k u r hjónakor nu nu m núna á þessum sóttkvíar-t ímu m að v ið höf u m eiginlega verið í nokkurs konar sjálfskipaðri sóttkví
árum og áratugum saman. Við vinnum
bæði sjálfstætt á sömu vinnustofunni
sem er tengd íbúðarhúsinu okkar og
þurfum ekki að fara út til að komast í
vinnuna,“ segir Sigrún Eldjárn rithöf-
undur um starfsaðstæður hennar og
eiginmannsins, Hjörleifs Stefánssonar
arkitekts. Þau eru ánægð hvort með
annars félagsskap, að hennar sögn.
„Við hittum ekkert marga en förum þó
auðvitað stundum á fundi og mannamót
eftir þörfum. Það er alls ekki þannig að
við séum í algjörri einangrun,“ tekur
hún fram.
Vakna snemma
Sigrún segir þau Hjörleif hafa vanið sig á
ákveðna rútínu. „Við vöknum snemma
á morgnana og komum okkur fyrir á
vinnustofunni með kaffibollana og
vinnum nokkurn veginn á venjubundn-
um vinnutíma,“ lýsir hún og bætir við,
brosandi út í annað: „Oft skýst maður
líka í verkefnin á kvöldin ef sá gállinn
er á manni.“
Kaffibollana segirðu. Drekkið þið
mikið kaffi í vinnunni? „Nei, kaffi-
drykkjan er ekki óhófleg, einskorðast
við tvo til þrjá bolla af vönduðu kaffi,“
svarar Sigrún og verður ekki sökuð um
ofneyslu. Hún segir þau líka passa upp
á að hreyfa sig. „Við stöndum upp og
teygjum úr okkur eftir þörfum. Hjör-
leifur fer í sund á morgnana og ég hoppa
og dansa í Kramhúsinu í hádeginu þrjá
daga í viku. Svo eru gönguferðir líka vin-
sælar hjá okkur.“
Þau hjón eru svo sem ekkert mikið að
spjalla saman meðan þau vinna en segja
þó hvort öðru frá viðfangsefnunum og
leita oft álits hins, að sögn Sigrúnar.
„Heimilisverk in ger u m v ið svo
saman á laugardagsmorgnum,“ segir
hún. „Ryksugum, skúrum og sinnum
almennu skrúbbi.“
Hafa bæði skrifað bækur
Hjörleifur hefur mest fengist við
eldri hús og þar að auki sinnir hann
rannsóknum á sögu torf bæjanna á
Íslandi. Grúskar í gömlum skjölum og
þess háttar. Hann hefur meðal annars
gefið úr stóra og flotta bók sem heitir Af
jörðu og fjallar um íslenska torfbæinn.
Sigrún er bæði myndlistarmaður og
rithöfundur. „Ég sit ýmist við tölvuna
og skrifa bækur fyrir börn eða er með
teikniblokkina, blýantana og litina
að gera myndir í þessar sömu bækur.
Þessa stundina er ég að fást við þriðju
og síðustu bókina í þríleik sem hófst
með Silfurlyklinum 2018. Sú bók fékk
Íslensku bók menntaverðlaunin í
f lokki barna- og ungmennabóka og
var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Næst kom Kopareggið
2019 og nú er ég að leggja lokahönd
á Gullfossinn sem er væntanlegur í
haust.“ Í næsta mánuði verður fyrsta bók
Sigrúnar endurútgefin. Hún heitir Allt í
plati og kom út fyrir 40 árum, eða 1980.
gun@frettabladid.is
Hafa deilt vinnustofu
á heimilinu í áraraðir
Hjónin Sigrún Eldjárn rithöfundur og Hjörleifur Stefánsson arkitekt hafa áralanga
reynslu af því að stunda atvinnu sína heima, eins og er hlutskipti margra þessa dagana.
Þau vinna skipulega virku dagana og skrúbba svo heimilið á laugardagsmorgnum.
Hjónin Sigrún Eldjárn og Hjörleifur þurfa ekki að fara út á morgnana í vinnuna.
Fyrsta bók Sigrúnar kom út fyrir 40
árum og verður brátt endurútgefin.
2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT