Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —7 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 3 0 . M A R S 2 0 2 0
Við hjálpum þér að leita réttar þíns
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
HAFÐU SAMBAND 511 5008UMFERÐARSLYS VINNUSLYS FRÍTÍMASLYS
Átt þú rétt á slysabótum?
FANGELSISMÁL Fari allt á versta
veg gætu þrjátíu refsingar fyrnst
á árinu. Þetta kemur fram í svari
Fangelsismálastofnunar við fyrir-
spurn Fréttablaðsins. Í fyrra fyrnd-
ust 16 refsingar sem var töluverður
árangur frá árinu á undan þegar 35
refsingar fyrndust.
Meðan neyðarstig viðbragðs-
áætlunar er í gildi verða ekki teknir
inn fangar nema í ýtrustu neyð og
þá aðeins þeir dómþolar sem teljast
hættulegir umhverfinu.
Um 600 manns eru nú á boðunar-
lista Fangelsismálastofnunar en
þeir voru 552 í árslok 2019. Um
86 prósent þeirra eiga að afplána
stutta dóma, eitt ár eða minna. Af
þeim eru rúmlega fimmtíu farnir
úr landi, f lestir útlendingar sem
fengu dóma fyrir skjalafals og brot á
útlendingalögum. Þá hefur 77 verið
heimilað að ljúka afplánun með
samfélagsþjónustu en neyðarstig
almannavarna og samkomubann
hafa þó þau áhrif að verr gengur að
útvega þeim verkefni.
Páll Winkel forstjóri Fangelsis-
málastofnunar segir að boðunar-
listinn hafi tekið töluverðum breyt-
ingum á undanförnum árum. Þegar
hætt var að úrskurða þá sem komu
til landsins á fölsuðum skilríkjum í
gæsluvarðhald bættust þeir í stað-
inn á boðunarlista í kjölfar dóms.
Þegar röðin komi að þeim hafi þeim
í flestum tilvikum þegar verið vísað
úr landi.
Páll segir fleira en farsóttina hafa
áhrif á hvaða fjölda fangelsin geti
tekið inn til afplánunar á hverjum
tíma. „Það hefur orðið alger spreng-
ing í fjölda gæsluvarðhaldsfanga og
í raun slegið fjöldamet mánuð eftir
mánuð,“ segir Páll.
Til afplánunar á síðasta ári komu
inn 206, en dómþolar voru þó innan
við helmingur þeirra sem alls komu
til vistar í fangelsi því auk þeirra
komu 177 til gæsluvarðhaldsvistar
og 57 til afplánunar vararefsinga. – aá
Tugir refsidóma gætu fyrnst
Tugir refsidóma gætu fyrnst á árinu. Hættulegir dómþolar hefja afplánun meðan neyðarstig er í gildi.
Fjölgun gæsluvarðhaldsfanga hefur einnig áhrif. Verr gengur að finna verkefni fyrir samfélagsþjónustu.
Það hefur orðið
alger sprenging í
fjölda gæsluvarðhaldsfanga
og í raun slegið fjöldamet
mánuð eftir
mánuð.
Páll Winkel for-
stjóri Fangelsis-
málastofnunar
Á iðjagrænu gervigrasinu við Hagaskóla voru þessir piltar í fótbolta þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar þar að garði í gær. Þeir létu hvorki hann né heimsfaraldurinn truf la sig við knatt-
leikinn og sendu boltann fimlega á milli sín og skutu á markið þegar færi gafst. Á þessum síðustu tímum fækkar mjög því sem ungviðið getur dundað sér við og hefur spark- og gervigras-
völlum sums staðar verið lokað á höfuðborgarsvæðinu og víðar með það að markmiði að fækka mögulegum smitleiðum og frekari lokanir eru til skoðunar. Sjá síðu 4. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON.
EFNAHAGSMÁL Meðal breytinga
sem efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis leggur til á aðgerðapakka
ríkisstjórnarinnar vegna kóróna-
veirunnar er að banna arðgreiðslur
fyrirtækja sem njóta ríkisábyrgðar
á brúarlánum. Þá verði þeim einn-
ig óheimilt að kaupa eigin hluta-
bréf.
Í upphaf legum áformum ríkis-
stjórnarinnar var gert ráð fyrir
að ríkisábyrgð væri möguleg á
allt að helmingi lánsf járhæðar
en nefndin leggur til að það hlut-
fall verði aukið í 70 prósent. Við
það myndi heildarábyrgð ríkisins
hækka úr 35 milljörðum króna í 50
milljarða. Þá er meðal tillagnanna
að opinberum gjalddögum fyrir-
tækja verði frestað enn frekar en
áformað var. – jþ
Breytingar á
aðgerðapakka í
farvatninu