Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 6
Einhverjir munu deyja. Sem er leitt. En svona er lífið. Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu MENNING „Mér barst fjöldinn allur af áskorunum strax eftir að verkið var afhjúpað á Listahátíðinni Cycle haustið 2018. Aðallega voru þetta hvatningarraddir um að steypa skúlptúrinn í brons og koma honum svo aftur fyrir í Tjörninni,“ segir Steinunn Gunnlaugsdóttir listakona. Verk hennar Litla hafpulsan vakti mikla athygli þegar það stóð í Reykjavíkurtjörn í desember árið 2018 og nú hefur Steinunn boðið Reykjavíkurborg verkið að gjöf. Nýtt eintak af verkinu yrði afhent borginni á þessu ári. „Verkið var á sínum tíma mjög umdeilt svo ég geri ráð fyrir að í Borgarráði muni misjafnar skoð- anir koma fram,“ segir Steinunn aðspurð um væntanleg viðbrögð borgarinnar. „Ég hef þó enn sem komið er aðeins mætt jákvæðni en ég bíð spennt eftir svari hvort að skúlptúrnum verði veitt viðtaka,“ bætir hún við. Í tillögu Steinunnar til borgar- innar kemur fram að hún sjálf muni standa allan straum af kostnaði við gerð verksins. Hún segir kostnaðinn afar háan og að leiðir til fjármögn- unar verksins verði í takt við verkið sjálft, í gegnum einhverskonar lýð- virkjun. „Það er ekki steypt í brons hér á landi og því þarf að láta steypa verkið erlendis og flytja það heim,“ segir Steinunn. Þann tíma sem verkið stóð uppi í Tjörninni segir Steinunn að það hafa vakið athygli um allan heim. „Viðbrögðunum er best lýst sem sprengingu, svo mikil voru þau, og það var mér gersamlega ómögulegt að sjá þau fyrir,“ segir hún. Daginn eftir að verkið var sett upp fékk Steinunn hundr uð sk ilaboða frá bæði íslenskum og erlendum blaðamönnum, allir vildu þeir vita um hvað Litla hafpulsan snerist. Verkið hafði þá strax farið sem vírus um internetið. „Á meðan verkið stóð uppi var það ljósmyndað í bak og fyrir og einnig mikið notað í sjálfumyndir. Svo hafði fólk líka sterkar og ólíkar skoðanir á því og hafði gaman af að tjá þær á netinu og í raunheimi. Mest afgerandi fannst mér þó vera að verkið vekti upp gleði og kátínu,“ segir Steinunn. „Þegar styttan svo brotnaði í miðjum desember 2018, rétt eftir fullveldisafmælið, þá höfðu margir samband við mig og voru hreinlega sorgmæddir yfir þessu. Í kjölfarið komu enn fleiri áskoranir um endurgerð Litlu hafpulsunnar og ég vona svo sannarlega að það takist því hún virðist eiga erindi við marga,“ segir Steinunn. birnadrofn@frettabladid.is Býður Reykjavíkurborg Litlu hafpulsuna að gjöf  SA M FÉ L AG „Okkur langaði að ef la tæknifærni fullorðinna. Við náðum einu góðu námskeiði áður en öllu var skellt í lás. Núna erum við að leita leiða til að vera með fjar- kennslu,“ segir Rannveig Ernudóttir, virkniþjálfi og umsjónarkona í félagsstarfi fullorðinna í Reykja- vík. Í febrúar fór af stað námskeið í tæknilæsi fyrir eldra fólk, allt frá því að nota heimabanka til sam- félagsmiðla. Margt eldra fólk er nú í sjálf- skipaðri sóttkví vegna COVID-19 faraldursins. Félagsmiðstöðvar fyrir fullorðna hafa verið lokaðar og heimsóknir á hjúkrunarheim- ili bannaðar. Þórunn Sveinbjörns- dóttir, formaður Landssambands eldri borgara, sagði við Fréttablaðið nýverið að skrifstofan hefði vart undan að útvega leiðbeiningar fyrir snjalltæki. „Þetta er oft lokaður heimur sem margir veigra sér við að fara inn í. Bæklingarnir sem Landssamband eldri borgara gaf út eru algjör snilld, en það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir beina kennslu og end- urtekningar, fá fólk til að vera ekki smeykt við að prófa alla takkana á símanum,“ segir Rannveig. Huginn Þór Jóhannsson, sonur Rannveigar, átti hugmyndina að námskeiðinu. Hann starfar einnig á velferðarsviði Reykjavíkurborg- ar ásamt því að vera nemandi í Tækniskólanum, þar áður var hann kennari hjá Skema, fyrirtæki sem heldur tækninámskeið fyrir börn og unglinga. Sjálf starfar Rannveig við félagsstarf á Dalbraut í Reykjavík. Fengu þau mæðginin gott teymi til liðs við sig við námskeiðið sem hófst í febrúar. „Fyrsta námskeiðið gekk alveg glimrandi vel. Við vorum byrjuð að tala um einhvers konar fjarkennslu. Svo hefur lítið getað unnist í þessu vegna ástandsins. Núna hefur þörf- in samt aldrei verið meiri,“ segir Rannveig. „Með því gefst okkur kost- ur á að vera með kennslu fyrir miklu fleiri og á öllum stöðum á landinu.“ Vandinn er núna hvernig skipu- leggja megi kennslu í gegnum tækni fyrir fólk sem þarf að læra tækni. „Við stefnum á að byrja að taka upp kennslumyndbönd á mánudaginn og setja þau á Facebook. Þeir sem kunna á tölvupóst geta nálgast efnið með því að senda okkur póst á taeknilaesifullordinna@ g ma il .com,“ seg ir R a nnveig . „Óskastaðan væri svo að koma þessu í sjónvarpið.“ Rannveig veit vel hvernig fólki líður þegar það kann ekki á tækni. „Ég gleymi því aldrei þegar amma mín, sem lést árið 2011, sagði mér að hún væri hætt að fá símreikn- inginn sinn. Svörin sem hún fékk þegar hún hringdi var að hún gæti nálgast allar upplýsingar á netinu. Hún sagði mér að henni fyndist hún hreinlega ekki vera læs á umhverfið sitt lengur. Þetta hefur setið í mér síðan.“ arib@frettabladid.is Leita að tækni til að kenna fólki á tækni Mæðgin settu á fót námskeið til að kenna eldri borgurum á ýmis snjalltæki. Í samkomubanninu hyggjast þau nú nýta aðferðir fjarkennslu, en standa frammi fyrir þeirri áskorun að þurfa að nota tækni til að kenna fólki á tækni. Mæðginin Rannveig og Huginn Þór standa að námskeiðinu fyrir eldri borgara ásamt góðum hópi. AÐSEND MYND. Uppi voru sterkar og ólíkar skoðanir á Litlu hafpulsunni þegar hún stóð uppi í Tjörninni fyrir rúmu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR GUNNARSSON BRASILÍA Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hótaði á laugardag að reka heilbrigðisráðherrann, Luiz Henrique Mandetta, ef hann gagnrýndi aðgerðir sínar til að bregðast við COVID-19 faraldrinum opinberlega. Mandetta hefur verið gagnrýninn á Bolsonaro, sem hefur talað hættuna niður og hagar sínu eigin lífi með lítilli varúð. Nærri 4 þúsund tilfelli hafa komið upp í landinu og 114 hafa látist. Ríkisstjórar í einstökum fylkjum landsins hafa reynt að beita hörðum aðgerðum, en hinn hægripopúlíski forseti beitti valdi sínu til að koma í veg fyrir það. Værukærð Bolsonaro kom til að mynda fram á blaðamannafundi síðastliðinn föstudag. Þar var hann spurður um dánartíðnina. „Einhverjir munu deyja. Sem er leitt. En svona er lífið,“ sagði forsetinn. Samkvæmt dagblaðinu Estado de Sao Paulo reyndi Mandetta að s a n n f ær a B ol sona ro u m alvarleika faraldursins á fundi á laugardag, en þar voru einnig v a r n a r m á l a r á ð h e r r a n n o g dómsmálaráðherrann viðstaddir. Spurði Mandetta meðal annars hvor t landið vær i undirbúið undir verstu sviðsmyndina, að sjá hertrukka keyra um götur með líkpoka og fólk streyma myndum af því í símum sínum á netið. Tók forsetinn fálega í þessar spurningar. Fáar prófanir hafa verið gerðar í Brasilíu, sem var fyrsta Suður- Ameríkulandið þar sem COVID- 19 greindist. Talið er að allt að 1,1 milljón manns gætu látist úr faraldrinum í Brasilíu ef ekkert verður að gert, en aðeins rúmlega 44 þúsund ef hörðum aðgerðum verður beitt. – khg Hótar að reka heilbrigðisráðherrann Bolsonaro er harðlega gagnrýndur fyrir aðgerðaleysi. MYND/EPA Verkið var á sínum tíma mjög umdeilt svo ég geri ráð fyrir að í Borgarráði muni misjafnar skoðanir koma fram. Steinunn Gunnlaugsdóttir, listakona 3 0 . M A R S 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.