Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 6
HEILBRIGÐISMÁL Mikið álag er á
heilbrigðisstofnunum landsins
vegna COVID-19 faraldursins.
Áhersla er lögð á að koma í veg fyrir
smit meðal aldraðra og langveikra
sjúklinga en þó að umfangið sé
meira en áður eru slíkar varúðar-
ráðstafanir eðlilegur hluti af
starfsemi stofnana.
„Umgangspestir koma á hverju
ári og við erum vön því að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að verja
sjúklinga okkar og okkur sjálf fyrir
þeim,” segir Guðríður Kristín Þórð-
ardóttir, sérfræðingur í hjúkrun
hjartasjúklinga á Landspítalanum.
Ef sjúklingur smitast af inflúensu
eða COVID-19 getur heilsu hans
hrakað mjög hratt. Á hátækni-
sjúkrahúsi er hægt að ganga mjög
langt til þess að halda sjúklingum
á lífi en í mörgum tilvikum liggja
ekki fyrir upplýsingar um hvort
það sé vilji einstaklingsins. Að sögn
Guðríðar sýna rannsóknir að oft fá
aldraðir sjúklingar meðferð sem
þeir kæra sig ekkert endilega um að
fá. Úr því sé mikilvægt að bæta og
það sé aðeins hægt með opinskáu
samtali.
„Ef alvarlegar aðstæður koma
upp þá er ekki víst að umfangsmikil
inngrip dugi til. Ef viðkomandi
hefur svo veikindin ekki af þá hefur
aðdragandi þess andláts verið
mun erfiðari og lengri en hefði
þurft ef inngrip hefðu verið færri.
Þeir sem lifa af slíkar hremmingar
eiga síðan oft og tíðum langt og
strangt endurhæfingarferli fyrir
höndum, sem jafnvel ber ekki
árangur. Lífsgæði þeirra skerðast
gjarnan með skertri athafnagetu
og sjálfstæði þeirra er ógnað. Álag á
umönnunaraðila eykst ásamt þörf
fyrir f lutning á hjúkrunarheimili.
Þetta eru aðstæður sem við störfum
við allan ársins hring með tilheyr-
andi sveiflum sem tengjast flensu-
tímabilum,” segir Guðríður.
Að hennar sögn myndi það auð-
velda slíkar aðstæður gríðarlega
fyrir alla aðila ef fyrir lægi hver vilji
sjúklingsins væri.
„Allt of fáir fá tækifæri til að svara
þeirri spurningu tímanlega og við
yfirvegaðar aðstæður, hvort þeir
vilji að lífi þeirra sé viðhaldið ef
viðkomandi á ekki afturkvæmt til
sömu eða betri heilsu en hann lifir
við í dag,” segir Guðríður.
Hennar reynsla sé sú að aldraðir
einstaklingar óttist ekki dauðann.
„Þeir óttast kannski aðdraganda
hans, en ekki dauðann sjálfan. Aldr-
aðir með vaxandi hrumleika óttast
frekar að missa sjálfstæði sitt vegna
enn meiri hrumleika. Sjúklingar
mínir hafa tjáð mér að það sem
skipti þá mestu máli sé að geta búið
heima við ásættanleg lífsgæði og
öryggistilfinningu og að vera ekki
öðrum háður. Þá hefur fólk tjáð mér
að það óttist það mest að vera byrði
á fjölskyldu sinni,” segir Guðríður.
Guðríður segir að erfitt geti
reynst að byrja samtal milli ástvina
um slíkar aðstæður en oft sé mikill
léttir sem fylgi því að ræða slíkt.
„Það getur verið ákveðin hug-
hreysting fyrir einstakling að vita
að á ögurstundu séu það hans ósk-
ir og lífsviðhorf sem höfð eru að
leiðarljósi við val á meðferð. Að
þrátt fyrir alla óvissu á þessum
hamfaratímum hafi einstaklingur
þó þessa stjórn á aðstæðum sínum,”
segir hún.
Guðríður hvetur alla til að ígrunda
og ræða hvað skipti mestu máli í
daglegu lífi og hvort einhverjar óskir
séu varðandi lífslok. Ákjósanlegast
væri að óskirnar væru skráðar í
sjúkraskrá, til að tryggja sem best
að þeim verði framfylgt. „Þeim
upplýsingum er svo alltaf hægt að
breyta ef áherslur breytast,“ segir
Guðríður.
bjornth@frettabladid.is
Mikilvægt að tala um
hinstu óskir aldraðra
Hjúkrunarfræðingur ráðleggur öldruðum sjúklingum með langvinna sjúk-
dóma og aðstandendum að ræða saman um óskir og vilja sjúklinganna ef ske
kynni að ástand þeirra yrði lífshættulegt. Það sé mikilvægt á öllum tímum.
Guðríður segir oft erfitt að ræða þessi mál en að það auðveldi starf hjúkrunarfræðinga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
n Hvað skiptir mig mestu máli í
mínu lífi?
n Hvaða færni/getu get ég ekki
hugsað mér að lifa án?
n Við hvaða aðstæður myndir þú
ekki vilja lifa?
n Hvernig myndi ég vilja deyja?
n Hvar og hverja myndi ég vilja
hafa hjá mér?
n Hvaða læknisfræðilega inngrip
myndi ég ekki kæra mig um ef
mér stæði það til boða?
n Hvernig vil ég alls ekki deyja?
n Hver væri best/ur til þess fallinn
að tala mínu máli ef ég gæti það
ekki sjálf/ur?
n Ef þú yrðir bráðkvaddur/-kvödd,
myndir þú vilja að reynt yrði að
lífga þig við?
✿ Gagnlegar hugleiðingar Það getur verið
ákveðin hughreyst-
ing fyrir einstakling að vita
að á ögurstundu séu það
hans óskir og lífsviðhorf
sem höfð eru að leiðarljósi
við val á meðferð.
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Hressir viðmælendur á
línunni og 80s tónlist er
númer 1, 2 og 3 hjá Sigga Hlö
ALLA LAUGARDAGA
MILLI 16:00 OG 18:30.
VEISTU HVER
ÉG VAR?