Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 35
B-vítamín gegna því hlutverki að viðhalda góðri heilsu og vellíðan. Þau taka þátt í
nýtingu orku úr fæðunni og eru
mikilvæg fyrir ýmsa líkamsstarf-
semi svo sem starfsemi ónæmis-
kerfis, meltingarfæra, tauga, heila,
vöðva, augna, hjarta, æðakerfis og
myndunar rauðra blóðkorna.
B-vítamín draga einnig úr þreytu
og lúa og viðhalda eðlilegri slím-
húð ásamt viðhaldi húðar, hárs og
nagla.
Er ofskammtur hættulegur?
Þessar átta tegundir B vítamína
þjóna mismunandi hlutverkum í
líkamanum. Þau eru vatnsleysan-
leg og þarf því að neyta þeirra
reglulega. Ef við tökum
þau inn í meira magni
en líkaminn þarf á
að halda á hverj-
um tíma, skilst
umfram magn
út með þvagi og
því ætti ekki að
hafa áhyggjur af
ofneyslu.
B-vítamín eru
sérstaklega mikil-
væg fyrir eldra fólk og
konur sem eru barnshafandi og
með barn á brjósti. Fólínsýra, sem
heitir öðru nafni B-9, er sérstak-
lega nauðsynleg fyrir konur sem
huga á barneignir eða eru barns-
hafandi en það hjálpar til við
þroska fósturs og dregur úr hættu
á fæðingargöllum.
Aukin orka og betri svefn
Þó svo að B-vítamínin sjálf
gefi okkur ekki orku, eru þau
nauðsynleg til orkumyndunar.
Líkaminn notar kolvetni, fitu og
prótein sem orkugjafa, og þá er
mikilvægt að B-vítamínin séu til
staðar svo líkaminn geti nýtt þessa
orkugjafa og umbreytt í nýtanlega
Líkaminn þarf á
um 13 vítamínum
að halda og þar af eru 8
þeirra B-vítamín.
Ástæða járnskorts
er oftast ónógt járn
í fæðunni, blóðmissir,
sjúkdómar og meltingar-
vandamál, aukin járn-
þörf (t.d. vegna með-
göngu) eða lélegt frásog.
Til framleiðslu á rauðum blóðkornum þarf m.a. járn, B12-vítamín og fólínsýru.
Ef skortur er á einhverju þessara
efna minnkar framleiðsla rauðra
blóðkorna sem leiðir á endanum
til blóðleysis.
Blóðskortur veldur því að
rauðum blóðkornum, sem flytja
súrefni um líkamann, fækkar og
f lutningsgeta þeirra minnkar. Við
þetta tapa frumurnar orku sem
getur valdið ýmsum líkamlegum
kvillum.
Járnskortur
Járnskortur er einn algengasti
næringarefnaskortur í heiminum
og snertir u.þ.b. 25% jarðarbúa.
Það eru þó nokkur vel þekkt og
algeng einkenni járnskorts sem
gott er að vera vakandi fyrir:
n Orkuleysi
n Svimi og slappleiki
n Hjartsláttartruflanir
n Föl húð
n Andþyngsli
n Minni mótstaða gegn veik-
indum
n Hand- og fótkuldi
Ýmsir sjúkdómar og kvillar geta
svo einnig valdið blóðskorti
þannig að það er ráðlegt að leita
læknis þegar grunur leikur á að
við þjáumst af blóðleysi. Bæði til
að finna orsökina og svo skiptir
það líka máli að vera ekki með of
mikið járn.
Færðu nóg járn úr fæðunni?
Allir þurfa að huga að næringunni
og passa að fá öll næringarefni
úr matnum eins og kostur er. Við
lifum ekki í fullkomnum heimi
og oft er erfitt að næra sig vel,
Járnskortur er algeng orsök
blóðleysis meðal jarðarbúa
Margir lenda í vandræðum með meltinguna við inntöku á járni í bætiefnaformi. Munnúðarnir frá
Better You eru byltingarkennd nýjung, járnið frásogast beint út í blóðrásina frá slímhúð í munni
og sneiða alfarið fram hjá meltingarfærum. Þeir fást í tveimur styrkleikum og eru bragðgóðir.
Hugmyndir að járnríkum mat.
B-vítamín fyrir taugar, orku og ónæmiskerfið
B-complete inniheldur allar þær átta tegundir af B-vítamínum sem eru mikilvæg fyrir tauga-
kerfið og styðja við náttúrulegt orkuumbrot líkamans ásamt því að draga úr þreytu og lúa.
Þau stuðla einnig að eðlilegri virkni ónæmiskerfis sem og eðlilegri sálfræðilegri starfsemi.
sem getur haft þær afleiðingar að
meltingin frásogar ekki öll þau
næringarefni sem við þurfum á
að halda. Sumir eru svo hreinlega
ekki nógu duglegir að borða járn-
ríkan mat, eins og rauðrófur, rautt
kjöt, grænt grænmeti, baunir,
hnetur, fræ og f leira.
Engin hægðatregða
Meltingarvandamál og hægða-
tregða er vel þekktur fylgikvilli
þess að taka inn járn í bætiefna-
formi. Munnúðarnir frá Better
You eru byltingarkennd nýjung
þar sem járnið frásogast gegnum
slímhúð í munni. Þannig er alfarið
sneitt fram hjá meltingarfærum.
Núna býður Better You upp á járn
munnúða í tveimur styrkleikum,
5 mg og 10 mg.
Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og
heilsuhillur stórmarkaða.
B-complete munnúði er nú loksins fáanlegur á Íslandi.
B-vítamín
eru mikilvæg fyrir
ýmsa líkamsstarf-
semi, svo sem starf-
semi ónæmiskerfis,
meltingarfæra, tauga-
kerfis, vöðva, hjarta
og æðakerfis.
Nýtt
orku. Margir sem byrja að taka
inn B-vítamínblöndu finna fljótt
gríðarlegan mun á sér. B-vítamínin
hafa meðal annars góð áhrif á
taugarnar og geta því haft slakandi
áhrif á líkamann og þannig leitt
til betri svefns. Þegar við náum
góðum svefni hvílist líkaminn vel
og nær að endurnýja sig; tauga-
kerfið endurnærist og andlega
hliðin styrkist.
Mataræðið skiptir máli
Flestir fá nóg af B-vítamínum
með fjölbreyttu mataræði. Samt
sem áður getur ýmislegt haft
áhrif á upptöku næringarefna úr
fæðunni. Unnar matvörur eða
matur sem hefur verið eldaður
við háan hita getur tapað miklu
af þeim vítamínum sem eru til
staðar í fæðunni frá náttúrunnar
hendi. Svo geta undirliggjandi
sjúkdómar (sérstaklega tengdir
meltingarveginum), mikil áfengis-
neysla, ýmis lyf ásamt streitu og
álagi sem tengist nútíma lífs-
stíl einnig haft áhrif á upptöku
bætiefna. Þekktasta vandamálið
er skortur á B-12 vítamíni sem
getur m.a. aukið hættu á tauga-
sjúkdómum.
Einkenni um skort á
B-vítamínum geta verið:
n Útbrot á húð
n Sprungur í húð kringum munn
og hreistruð húð á vörum
n Bólgin tunga
n Þreyta og máttleysi
n Blóðleysi
n Pirringur eða þunglyndi
n Ógleði
n Magakrampar, niðurgangur,
hægðatregða
n Dofi eða náladofi í fótum og
höndum.
B-complete – munnúði sem
tryggir upptöku
Better You vítamínin koma í formi
munnúða sem tryggir góða upp-
töku gegnum slímhúð í munni.
Örsmáar sameindir vítamínana
frásogast hratt í munni og eiga
þannig greiða leið út í blóðrás
líkamans. Munnúðar eru einföld
leið til að taka inn vítamín og fyrir
þá sem eiga erfitt með að kyngja
töflum eða hafa undirliggjandi
meltingarvandamál koma þeir
sér sérlega vel. B-complete
munnúðinn inniheldur náttúru-
leg bragðefni af ferskjum, plómum
og hindberjum.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 4 . A P R Í L 2 0 2 0