Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 66
á sjónarsviðið árið 1999, og var
titlaður sem helsti andstæðingur
Tigers, hefur sviðsljósið beinst að
Sergio og hegðun hans. Strax á fyrsta
ári sínu sem atvinnukylfingur missti
hann stjórn á skapi sínu og grýtti
öðrum skónum í auglýsingaskilti.
Þegar umboðsmaður hans kom með
skóinn aftur sparkaði hann sama skó
í burtu og var skórinn hársbreidd frá
því að lenda á dómara. Átta árum
seinna náðist myndband af honum
að hrækja í holu eftir að missa fugla-
pútt í skolla.
Árið 2010 slapp Garcia vel þegar
hann trylltist eftir innáhögg í
sandglompu og tók út reiði sína á
glompunni. Garcia var ekki refsað
en hann missti aftur stjórn á sér í
fyrra í Sádi-Arabíu og átti það hlut
í ákvörðun mótanefndar um að
reka hann úr mótinu. Á sama móti
kvörtuðu leikmenn undan því að
Garcia hefði eyðilagt fimm flatir í
pirringi. Það reyndist ekki kenna
honum neitt því stuttu síðar missti
hann stjórn á skapi sínu á ný og
réðst á teiginn með drivernum.
Ekkert kemst þó í líkingu við
tilhneigingu Garcia til að kasta
kylfunum frá sér í bræðiskasti eftir
slæmt högg. Árið 2011 sást hann
fyrst kasta kylfu út í vatnið á móti
í Taílandi og ári síðar kastaði hann
kylfu í hljóðnema frá ESPN sem var
að sýna frá mótinu. Sex árum síðar
þurfti hann að troðast inn í runna
og leita að drivernum sínum eftir að
hafa kastað honum frá sér í bræði
eftir slakt upphafshögg.
Á opna breska meistaramótinu í
golfi náði aðdáandi myndbandi af
því þegar Garcia kastaði drivernum
enn og aftur frá sér. Nú var það í
blindni og var kylfusveinn Garcia
heppinn að fá kylfuna ekki í sig.
Enn þann dag í dag hefur Garcia
aldrei verið dæmdur í bann og
er ólíklegt að það verði nokkurn
tímann gripið til þess. Leikmenn á
mótaröðinni virðast hafa fengið nóg
og sagði einn þeirra, sem vildi ekki
koma fram undir nafni í samtali
við Telegraph, að leikmenn vissu
ekki hvað hann þyrfti að gera til að
honum yrði refsað.
ÉG ER TILFINNINGARÍKUR
LEIKMAÐUR, ÞAÐ ER BÆÐI
EINN AF STYRKLEIKUM
MÍNUM OG VEIKLEIKUM.
ÉG ER AÐ VINNA Í ÞVÍ AÐ
HAFA BETRI STJÓRN Á ÞVÍ.
Sergio Garcia árið 2019
Sergio Garcia er tilfinn-ingaríkur á vellinum og átti erfitt með að ráða við tilfinningarnar þann 10. apríl fyrir þremur árum. Loksins tókst Spánverj-
anum að landa fyrsta risatitlinum
í golfi í 74. tilraun og nítjándu til-
raun á Augusta-vellinum og það á
60 ára afmælisdegi hins sáluga Seve
Ballesteros, átrúnaðargoðs Garcia,
sem lést árið 2011 eftir baráttu við
heilaæxli.
Með því varð spænski kylf-
ingurinn þriðji spænski kylf-
ingurinn til að vinna eitt af
r isamótunum f jór um á ef tir
Seve og José María Olazábal.
Garcia þurfti að fara í bráðabana
gegn Justin Rose og var tölfræðin
honum ekki hliðholl. Spánverjinn
var búinn að tapa fimm sinnum
í síðustu sjö bráðabönum, þar á
meðal á Opna breska meistaramót-
inu tíu árum áður, þar sem Garcia
var með þriggja högga forskot fyrir
lokadaginn en þurfti að horfa á eftir
titlinum.
Þetta árið var hins vegar komið
að Garcia og fékk hann góða hjálp
frá andstæðingi sínum, Rose sló
upphafshöggið inn í skóg í bráða-
bananum. Þar með tókst Garcia að
koma í veg fyrir að vera í umræð-
unni um besta kylfinginn sem
aldrei vann risamót til framtíðar
og mátti búast við því að fleiri titlar
myndu fylgja eftir en árangurinn
hefur látið á sér standa.
Á þeim þremur árum sem liðin
eru frá sigrinum á Augusta-vell-
inum hefur Garcia ekki enn unnið
mót á PGA-mótaröðinni. Þá missti
hann af niðurskurðinum á f leiri
mótum (8) en hann náði niður-
skurðinum (6) árið 2018.
Titilvörnin ári síðar fór í súginn
strax á fyrsta degi þegar Garcia setti
fimm bolta í sömu tjörnina og lék
holu á þrettán höggum á sömu holu.
Eftir að hafa unnið sinn fyrsta risa-
mótstitil hafði Garcia orð á því að
hann væri búinn að þroskast og full-
orðnast en það er f lest sem bendir
til þess að það sé ekki satt.
Skapið er hans versti óvinur
Allt frá því að hann skaust fram
Skapheiti
Spánverjinn
Auðvelt var að samgleðjast Sergio Garcia
þegar hann vann loksins fyrsta risamótið
árið 2017 eftir langa bið. Síðan þá hefur
hinn skapheiti Spánverji verið rekinn úr
tveimur mótum og verið kallað eftir banni.
Í golfíþróttinni er lögð mikil áhersla á góða hegðun og þykir óásættanlegt að kasta kylfunum í bræðiskasti þótt höggið hafi verið slæmt, eins og Garcia hefur lagt í vana sinn undanfarin ár.
Það mátti sjá á Garcia að það var gríðarlegur léttir þegar honum tókst
loksins að vinna sinn fyrsta risatitil á Masters árið 2017. MYND/GETTY
Ekki í fyrsta
sinn sem Garcia
grýtir skóm en
í þetta skiptið
var það til
aðdáanda til
að þakka fyrir
stuðninginn í
Rydernum.
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall@frettabladid.is
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð