Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 58
Þökk sé hjartahlýju fólki á Íslandi útskrifast ár hvert fleiri en 500 unglingar úr verkmenntasmiðjum í fátækrahverfum Kampala, höfuðborg Úganda. Eftir árs nám í iðngrein í smiðjunum fær unga fólkið langflest vinnu í borginni og getur séð fyrir sér á þann hátt sem þau kjósa. Hjálparstarf kirkjunnar hefur rekið smiðjur með innlendum hjálparsamtökum sem heita Ugandan Youth Development Link, UYDEL, í þremur hverfum Kampala frá byrjun árs 2017. UYDEL hafa áratuga reynslu af því að vinna með ungu fólki í fá- tækrahverfum og eru leiðandi í baráttunni gegn mansali og barnaþrælkun í Úganda. Hjálparstarf Lútherska heimssambandsins í Úganda, hefur milligöngu um samstarfið og gegnir eftirlitshlutverki með starfinu í Kampala. Úgandabúar eru nær 46 milljónir talsins en nær helmingur þeirra (48,5%) er yngri en 15 ára. Þrátt fyrir að langflestir, um 80%, búi í sveitum landsins og lifi af landbúnaði flykkist fólk í síauknum mæli til höfuðborgarinnar í leit að betra lífi. Þar búa hins vegar um 700 þúsund af 1,7 milljónum íbúa við sára fátækt. Fátæktin rekur unga fólkið til þess að taka þátt í glæpagengjum eða jafnvel til að selja líkama sinn svo þau eigi fyrir mat og öðrum nauðsynjum. Aðstæðurnar gera það einnig að verkum að unglingarnir verða auðveldlega fíkniefnum að bráð. UYDEL rekur smiðjur fyrir börn og ungmenni á aldrinum 13–24 ára í fátækrahverf- unum til þess að gefa unglingunum þar tækifæri til betra lífs. Árið 2020 mun Hjálparstarf kirkjunnar senda alls 16 milljónir króna til reksturs þriggja þeirra út árið. Peningarnir koma frá fólki á Íslandi. Annars vegar frá íslenskum stjórnvöldum en utanríkisráðuneytið hefur samþykkt að greiða 80% af kostnaði við verkefnið á hverju ári til ársloka 2023. Hins vegar frá hjartahlýjum einstaklingum sem leggja starfinu lið með mánaðarlegu framlagi sem Hjálparliðar eða með stökum styrk. Draumarnir rætast með þinni hjálp! Aðstæður í fátækrahverfum Kampala, höfuðborgar Úganda eru mjög bágbornar. Ekkert rennandi vatn er þar og engin sorphirða. Börnin fara í skólann eldsnemma á morgnana, oft ekki nema með hnefafylli af hnetum til að borða yfir daginn. Anna Nabulya yfirfélagsráðgjafi UYDEL og Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar í smiðjunni í Makindye-hverfi. Bjarni fer einu sinni á ári til Kampala til að ræða við starfsfólk UYDEL um það hvernig verkefnið gangi og fylgist um leið með því að peningarnir frá Íslandi séu vel nýttir. Hann skoðar starfið í smiðjunum og hittir krakkana í þeim og líka krakka sem hafa útskrifast úr smiðjunum. 8 – Margt smátt ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.