Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 10
 Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði til nýsköpunar- og þróunarverkefna árið 2020. Styrkir Ekki eru sérstök áherslu- eða forgangssvið en umsóknir skulu taka mið af þeim áskorunum sem markhópur framhaldsfræðslunnar stendur frammi fyrir um þessar mundir. Verkefnin skulu vera opin öllum fræðsluaðilum, mega ekki gera kröfu um umtalsverðan eða íþyngjandi kostnað, eða flókna sérfræðiþekkingu fyrir þá sem nýta sér afurðina. Verkefni sem raunhæft er að koma í framkvæmd fyrir lok árs 2020 og uppfylla önnur skilyrði auglýsingarinnar, Skilmála og úthlutunarreglna Fræðslusjóðs, njóta forgangs. Telji stjórn Fræðslusjóðs að umsóknir fullnægi ekki forsendum auglýsingarinnar, eða falli ekki að þörfum markhóps framhaldsfræðslu, áskilur hún sér rétt til að hafna einstökum eða öllum umsóknum. Umsækjendur þurfa að hafa faglega þekkingu og reynslu af að vinna verkefni sem sótt eru um styrki til. Að auki þurfa umsóknir að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Vera vandaðar og skýrt fram settar. Skýr tenging við markhóp laga um framhaldsfræðslu. Mæti sýnilegri þörf fyrir úrræði í framhaldsfræðslu. Hafi skýr skilgreind markmið og skilgreinda verkefnastjórn. Hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun. Skili hagnýtri afurð og verði vel kynnt. Umsóknarfrestur er þrjár vikur eða til 27. apríl 2020. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum á viðeigandi umsóknareyðublöðum. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is Í Fréttablaðinu í gær sagði að framlagningu fjármálaáætlunar væri frestað til hausts. Rétt er að stefnt er að því að leggja áætlunina fram nú á vorþingi. LEIÐRÉTTING SAMFÉLAG „Útivinna við grunn- inn hefur ekkert raskast. Henni á að ljúka í lok apríl eða byrjun maí. Mannskapurinn hjá verktakanum er nægjanlegur. Þetta er á tíma og er í lokafasa,“ segir Gunnar Svavars- son, framkvæmdastjóri Nýs Land- spítala ohf., sem heldur utan um Hringbrautarverkefnið. Starfsemi verkefnaskrifstofunnar að b a k i u ppby g g i ng u ný s Landspítala hefur raskast aðeins vegna COVID-19 en ekki svo að áætlanir standist ekki. Fólkið er komið að mestu heim og vinnur rafrænt þaðan. Næsta skref er að klára grunn- inn og hefja smíði á um 70 þúsund fermetra meðferðarkjarna og í kjöl- farið hliðsettum bílakjallara. „Það er búið að ljúka forvali á uppsteypu á meðferðarkjarnanum, það er von okkar að innan nokkurra daga fái verktakafyrirtækin fimm, sem sendu inn þátttökubeiðni, öll útboðsgögnin í kjölfar heimildar. Þá er gert ráð fyrir því að uppsteypa hefjist, miðað við stöðuna í dag, í júní,“ segir Gunnar. „Þegar ÍAV sem eru að vinna núna á staðnum fer í burtu þá kemur eitt af þessum fimm verktakafyrirtækjum og tekur við beint í kjölfarið.“ Ýmis önnur útboð eru í farvatn- inu, bæði tengd meðferðarkjarnan- um og öðrum verkefnum á svæðinu. „Þetta útboð um uppsteypuna, sem hljóðar upp á nokkuð marga millj- arða, er stóra málið, en Alþingi veitti því brautargengi á fjárlögum ársins. Uppsteypan mun taka um tvö og hálft ár. Þetta er mjög umfangsmikið en verktakinn mun ráða við það. Í tilboðsfasanum munu fyrirtækin reikna út verð á steypu, járnum, stjórnun o.þ.h. svo er þetta hrein samkeppni þeirra á milli um verðið því hæfis- og hæfnisvalinu er lokið í forvali,“ segir Gunnar. Verktakarnir fimm sem um ræðir eru Eykt, Íslenskir aðalverktakar, Ístak, Rizzani De Eccher og ÞG verk- takar. Veðrið í vetur hefur lítillega sett strik í reikninginn við vinnuna utandyra á verkstað, meira en COVID-19 faraldurinn, og hafa nokkur verk þurft að bíða vors, sem sagt frágangur grassvæða. „Gatnamótin við Snorrabraut voru opnuð seinna en áætlað var, en það kom ekki að sök.“ Í j a n ú a r a u g l ý s t i H r i ngbr aut a r verkef n ið ef t i r verkefnastjórum til að styrkja innviði félagsins, mjög mörg störf verða þó útvistuð. Talsverður fjöldi umsókna barst og var sú vinna komin langt á leið þegar hún var sett á bið vegna COVID-19 faraldursins. „Þetta mun ekki setja strik í reikninginn. Við erum í dag með verkefnastjóra í vinnu sem geta sinnt núverandi verkefnum, nýtt fólk og nýir útvistaðir aðilar verða komnir þegar uppsteypuverkið fer á fulla ferð í sumar. Áætlanir taka mið af agaðri uppbyggingu. Aðalmálið er að allir standi saman um að koma verkinu í loftið.“ arib@frettabladid.is Veðrið sett stærra strik í reikninginn en faraldurinn Lengi hefur verið beðið eftir nýjum spítala sem á að rísa við þann gamla. Framkvæmdir við Landspítala á Hring- braut raskast ekki vegna COVID-19 farald- ursins. Ráðningum hefur verið frestað en veðrið hefur haft meiri áhrif en faraldurinn. FRAKKLAND Dauðsföll í Frakklandi af völdum COVID-19 eru að aukast en í gær létust 1.120 manns af völd- um veirunnar í Frakklandi. Tæplega 65 þúsund tilfelli af kórónaveirunni hafa fundist í Frakklandi og má búast við að útgöngubannið sem gildir til 15. apríl verði framlengt. Heilbrigðismálaráðherra Frakk- lands, Jérôme Salomon, tilkynnti í gær að 5.091 manns hefðu látið lífið á sjúkrahúsum landsins af völdum COVID-19 en inn í þá tölu vantar þá sem létust á elliheimilum. Frönsk yfirvöld birtu í fyrsta sinn í gær fjölda látinna á elliheimilum og það voru þá 1.416 manns. Aðeins á Ítalíu og Spáni hafa fleiri látist af völdum kórónaveirunnar í Evrópu. –kpt 1.120 dauðsföll í Frakklandi á einum degi Það er tómlegt við Eiffel-turninn í París á vordögum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Uppsteypan mun taka um tvö og hálft ár. Þetta er mjög umfangs- mikið en verktakinn mun ráða við það. Gunnar Svavars- son, fram- kvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf. BANDARÍKIN Bill de Blasio, borgar- stjóri New York, hefur biðlað til Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að senda heilbrigðisstarfsfólk af öllu landinu til borgarinnar. „Ef það verður ekki farið af stað með átak til að fá lækna, hjúkr- unarfræðinga og sjúkraliða af öllu landinu á þá staði þar sem þeirra er mest þörf þá sé ég ekki fram á að við verðum með nóg af fólki til að koma okkur í gegnum þetta,“ sagði de Blasio við MSNBC í gær. New York-borg er miðpunktur COVID-19 faraldursins í Bandaríkj- unum. Þar hafa meira en 50 þúsund tilfelli verið staðfest. Þá hafa meira en 1.500 manns látið lífið, þar af um þúsund í vikunni sem er að líða. Búist er við því að ástandið komi til með að versna næstu tvær til þrjár vikurnar. Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, fyrirskipaði í gær að öllum öndunarvélum og öðrum lækningatækjum í ríkinu skyldi forgangsraðað til sjúklinga með COVID-19. Yfirlæknir á bráðamóttöku á spít- ala í New York sagði við Telegraph í gær að það væru komnar öndunar- vélar en það þyrfti starfsfólk sem kynni á þær. „Margt af okkar fólki er veikt heima og enginn vill koma til að hjálpa, ég skil það mjög vel. Þetta er helvíti á jörðu,“ hefur Telegraph eftir lækninum. Staðan fer einnig versnandi ann- ars staðar í Bandaríkjunum. Í öllu landinu eru tilfellin orðin f leiri en 261 þúsund, þar af 15 þúsund í gær. Alls hafa 6.699 látist. Útgöng uba nn er á veg u m ríkjanna sjálfra, en ekki alríkisins. Mikill þrýstingur er nú á Trump að setja á útgöngubann á landsvísu, úrræði sem hann telur óþarfa á svæðum þar sem engin tilfelli hafa greinst. Mikill fjöldi tilfella hefur greinst í Louisiana, Pennsylvaníu og Kali- forníu. Alls er gert ráð fyrir að allt að 240 þúsund manns muni deyja af völdum veirunnar í landinu. – ab Þetta er helvíti á jörðu Sjúkratjöldum hefur verið komið fyrir í Central Park í New York. MYND/EPA 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.