Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2020, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 04.04.2020, Qupperneq 35
B-vítamín gegna því hlutverki að viðhalda góðri heilsu og vellíðan. Þau taka þátt í nýtingu orku úr fæðunni og eru mikilvæg fyrir ýmsa líkamsstarf- semi svo sem starfsemi ónæmis- kerfis, meltingarfæra, tauga, heila, vöðva, augna, hjarta, æðakerfis og myndunar rauðra blóðkorna. B-vítamín draga einnig úr þreytu og lúa og viðhalda eðlilegri slím- húð ásamt viðhaldi húðar, hárs og nagla. Er ofskammtur hættulegur? Þessar átta tegundir B vítamína þjóna mismunandi hlutverkum í líkamanum. Þau eru vatnsleysan- leg og þarf því að neyta þeirra reglulega. Ef við tökum þau inn í meira magni en líkaminn þarf á að halda á hverj- um tíma, skilst umfram magn út með þvagi og því ætti ekki að hafa áhyggjur af ofneyslu. B-vítamín eru sérstaklega mikil- væg fyrir eldra fólk og konur sem eru barnshafandi og með barn á brjósti. Fólínsýra, sem heitir öðru nafni B-9, er sérstak- lega nauðsynleg fyrir konur sem huga á barneignir eða eru barns- hafandi en það hjálpar til við þroska fósturs og dregur úr hættu á fæðingargöllum. Aukin orka og betri svefn Þó svo að B-vítamínin sjálf gefi okkur ekki orku, eru þau nauðsynleg til orkumyndunar. Líkaminn notar kolvetni, fitu og prótein sem orkugjafa, og þá er mikilvægt að B-vítamínin séu til staðar svo líkaminn geti nýtt þessa orkugjafa og umbreytt í nýtanlega Líkaminn þarf á um 13 vítamínum að halda og þar af eru 8 þeirra B-vítamín. Ástæða járnskorts er oftast ónógt járn í fæðunni, blóðmissir, sjúkdómar og meltingar- vandamál, aukin járn- þörf (t.d. vegna með- göngu) eða lélegt frásog. Til framleiðslu á rauðum blóðkornum þarf m.a. járn, B12-vítamín og fólínsýru. Ef skortur er á einhverju þessara efna minnkar framleiðsla rauðra blóðkorna sem leiðir á endanum til blóðleysis. Blóðskortur veldur því að rauðum blóðkornum, sem flytja súrefni um líkamann, fækkar og f lutningsgeta þeirra minnkar. Við þetta tapa frumurnar orku sem getur valdið ýmsum líkamlegum kvillum. Járnskortur Járnskortur er einn algengasti næringarefnaskortur í heiminum og snertir u.þ.b. 25% jarðarbúa. Það eru þó nokkur vel þekkt og algeng einkenni járnskorts sem gott er að vera vakandi fyrir: n Orkuleysi n Svimi og slappleiki n Hjartsláttartruflanir n Föl húð n Andþyngsli n Minni mótstaða gegn veik- indum n Hand- og fótkuldi Ýmsir sjúkdómar og kvillar geta svo einnig valdið blóðskorti þannig að það er ráðlegt að leita læknis þegar grunur leikur á að við þjáumst af blóðleysi. Bæði til að finna orsökina og svo skiptir það líka máli að vera ekki með of mikið járn. Færðu nóg járn úr fæðunni? Allir þurfa að huga að næringunni og passa að fá öll næringarefni úr matnum eins og kostur er. Við lifum ekki í fullkomnum heimi og oft er erfitt að næra sig vel, Járnskortur er algeng orsök blóðleysis meðal jarðarbúa Margir lenda í vandræðum með meltinguna við inntöku á járni í bætiefnaformi. Munnúðarnir frá Better You eru byltingarkennd nýjung, járnið frásogast beint út í blóðrásina frá slímhúð í munni og sneiða alfarið fram hjá meltingarfærum. Þeir fást í tveimur styrkleikum og eru bragðgóðir. Hugmyndir að járnríkum mat. B-vítamín fyrir taugar, orku og ónæmiskerfið B-complete inniheldur allar þær átta tegundir af B-vítamínum sem eru mikilvæg fyrir tauga- kerfið og styðja við náttúrulegt orkuumbrot líkamans ásamt því að draga úr þreytu og lúa. Þau stuðla einnig að eðlilegri virkni ónæmiskerfis sem og eðlilegri sálfræðilegri starfsemi. sem getur haft þær afleiðingar að meltingin frásogar ekki öll þau næringarefni sem við þurfum á að halda. Sumir eru svo hreinlega ekki nógu duglegir að borða járn- ríkan mat, eins og rauðrófur, rautt kjöt, grænt grænmeti, baunir, hnetur, fræ og f leira. Engin hægðatregða Meltingarvandamál og hægða- tregða er vel þekktur fylgikvilli þess að taka inn járn í bætiefna- formi. Munnúðarnir frá Better You eru byltingarkennd nýjung þar sem járnið frásogast gegnum slímhúð í munni. Þannig er alfarið sneitt fram hjá meltingarfærum. Núna býður Better You upp á járn munnúða í tveimur styrkleikum, 5 mg og 10 mg. Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða. B-complete munnúði er nú loksins fáanlegur á Íslandi. B-vítamín eru mikilvæg fyrir ýmsa líkamsstarf- semi, svo sem starf- semi ónæmiskerfis, meltingarfæra, tauga- kerfis, vöðva, hjarta og æðakerfis. Nýtt orku. Margir sem byrja að taka inn B-vítamínblöndu finna fljótt gríðarlegan mun á sér. B-vítamínin hafa meðal annars góð áhrif á taugarnar og geta því haft slakandi áhrif á líkamann og þannig leitt til betri svefns. Þegar við náum góðum svefni hvílist líkaminn vel og nær að endurnýja sig; tauga- kerfið endurnærist og andlega hliðin styrkist. Mataræðið skiptir máli Flestir fá nóg af B-vítamínum með fjölbreyttu mataræði. Samt sem áður getur ýmislegt haft áhrif á upptöku næringarefna úr fæðunni. Unnar matvörur eða matur sem hefur verið eldaður við háan hita getur tapað miklu af þeim vítamínum sem eru til staðar í fæðunni frá náttúrunnar hendi. Svo geta undirliggjandi sjúkdómar (sérstaklega tengdir meltingarveginum), mikil áfengis- neysla, ýmis lyf ásamt streitu og álagi sem tengist nútíma lífs- stíl einnig haft áhrif á upptöku bætiefna. Þekktasta vandamálið er skortur á B-12 vítamíni sem getur m.a. aukið hættu á tauga- sjúkdómum. Einkenni um skort á B-vítamínum geta verið: n Útbrot á húð n Sprungur í húð kringum munn og hreistruð húð á vörum n Bólgin tunga n Þreyta og máttleysi n Blóðleysi n Pirringur eða þunglyndi n Ógleði n Magakrampar, niðurgangur, hægðatregða n Dofi eða náladofi í fótum og höndum. B-complete – munnúði sem tryggir upptöku Better You vítamínin koma í formi munnúða sem tryggir góða upp- töku gegnum slímhúð í munni. Örsmáar sameindir vítamínana frásogast hratt í munni og eiga þannig greiða leið út í blóðrás líkamans. Munnúðar eru einföld leið til að taka inn vítamín og fyrir þá sem eiga erfitt með að kyngja töflum eða hafa undirliggjandi meltingarvandamál koma þeir sér sérlega vel. B-complete munnúðinn inniheldur náttúru- leg bragðefni af ferskjum, plómum og hindberjum. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 4 . A P R Í L 2 0 2 0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.