Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 04.04.2020, Blaðsíða 6
HEILBRIGÐISMÁL Mikið álag er á heilbrigðisstofnunum landsins vegna COVID-19 faraldursins. Áhersla er lögð á að koma í veg fyrir smit meðal aldraðra og langveikra sjúklinga en þó að umfangið sé meira en áður eru slíkar varúðar- ráðstafanir eðlilegur hluti af starfsemi stofnana. „Umgangspestir koma á hverju ári og við erum vön því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja sjúklinga okkar og okkur sjálf fyrir þeim,” segir Guðríður Kristín Þórð- ardóttir, sérfræðingur í hjúkrun hjartasjúklinga á Landspítalanum. Ef sjúklingur smitast af inflúensu eða COVID-19 getur heilsu hans hrakað mjög hratt. Á hátækni- sjúkrahúsi er hægt að ganga mjög langt til þess að halda sjúklingum á lífi en í mörgum tilvikum liggja ekki fyrir upplýsingar  um hvort það sé vilji einstaklingsins. Að sögn Guðríðar sýna rannsóknir að oft fá aldraðir sjúklingar  meðferð sem þeir kæra sig ekkert endilega um að fá. Úr því sé mikilvægt að bæta og það sé aðeins hægt með opinskáu samtali. „Ef alvarlegar aðstæður koma upp þá er ekki víst að umfangsmikil inngrip dugi til. Ef viðkomandi hefur svo veikindin ekki af þá hefur aðdragandi þess andláts verið mun erfiðari og lengri en hefði þurft ef inngrip hefðu verið færri. Þeir sem lifa af slíkar hremmingar eiga síðan oft og tíðum langt og strangt endurhæfingarferli fyrir höndum, sem jafnvel ber ekki árangur. Lífsgæði þeirra skerðast gjarnan með skertri athafnagetu og sjálfstæði þeirra er ógnað. Álag á umönnunaraðila eykst ásamt þörf fyrir f lutning á hjúkrunarheimili. Þetta eru aðstæður sem við störfum við allan ársins hring með tilheyr- andi sveiflum sem tengjast flensu- tímabilum,” segir Guðríður. Að hennar sögn myndi það auð- velda slíkar aðstæður gríðarlega fyrir alla aðila ef fyrir lægi hver vilji sjúklingsins væri. „Allt of fáir fá tækifæri til að svara þeirri spurningu tímanlega og við yfirvegaðar aðstæður, hvort þeir vilji að lífi þeirra sé viðhaldið ef viðkomandi á ekki afturkvæmt til sömu eða betri heilsu en hann lifir við í dag,” segir Guðríður. Hennar reynsla sé sú að aldraðir einstaklingar óttist ekki dauðann. „Þeir óttast kannski aðdraganda hans, en ekki dauðann sjálfan. Aldr- aðir með vaxandi hrumleika óttast frekar að missa sjálfstæði sitt vegna enn meiri hrumleika. Sjúklingar mínir hafa tjáð mér að það sem skipti þá mestu máli sé að geta búið heima við ásættanleg lífsgæði og öryggistilfinningu og að vera ekki öðrum háður. Þá hefur fólk tjáð mér að það óttist það mest að vera byrði á fjölskyldu sinni,” segir Guðríður. Guðríður segir að erfitt geti reynst að byrja samtal milli ástvina um slíkar aðstæður en oft sé mikill léttir sem fylgi því að ræða slíkt. „Það getur verið ákveðin hug- hreysting fyrir einstakling að vita að á ögurstundu séu það hans ósk- ir og lífsviðhorf sem höfð eru að leiðarljósi við val á meðferð. Að þrátt fyrir alla óvissu á þessum hamfaratímum hafi einstaklingur þó þessa stjórn á aðstæðum sínum,” segir hún. Guðríður hvetur alla til að ígrunda og ræða hvað skipti mestu máli í daglegu lífi og hvort einhverjar óskir séu varðandi lífslok. Ákjósanlegast væri að óskirnar væru skráðar í sjúkraskrá, til að tryggja sem best að þeim verði framfylgt. „Þeim upplýsingum er svo alltaf hægt að breyta ef áherslur breytast,“ segir Guðríður. bjornth@frettabladid.is Mikilvægt að tala um hinstu óskir aldraðra Hjúkrunarfræðingur ráðleggur öldruðum sjúklingum með langvinna sjúk- dóma og aðstandendum að ræða saman um óskir og vilja sjúklinganna ef ske kynni að ástand þeirra yrði lífshættulegt. Það sé mikilvægt á öllum tímum. Guðríður segir oft erfitt að ræða þessi mál en að það auðveldi starf hjúkrunarfræðinga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI n Hvað skiptir mig mestu máli í mínu lífi? n Hvaða færni/getu get ég ekki hugsað mér að lifa án? n Við hvaða aðstæður myndir þú ekki vilja lifa? n Hvernig myndi ég vilja deyja? n Hvar og hverja myndi ég vilja hafa hjá mér? n Hvaða læknisfræðilega inngrip myndi ég ekki kæra mig um ef mér stæði það til boða? n Hvernig vil ég alls ekki deyja? n Hver væri best/ur til þess fallinn að tala mínu máli ef ég gæti það ekki sjálf/ur? n Ef þú yrðir bráðkvaddur/-kvödd, myndir þú vilja að reynt yrði að lífga þig við? ✿ Gagnlegar hugleiðingar Það getur verið ákveðin hughreyst- ing fyrir einstakling að vita að á ögurstundu séu það hans óskir og lífsviðhorf sem höfð eru að leiðarljósi við val á meðferð. 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Hressir viðmælendur á línunni og 80s tónlist er númer 1, 2 og 3 hjá Sigga Hlö ALLA LAUGARDAGA MILLI 16:00 OG 18:30. VEISTU HVER ÉG VAR?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.