Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 16
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Þegar það verður vonum við að hefðir, siðir og venjur lifni við á ný. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Konungsbók Eddukvæða er gersemi og þar er geymdur gimsteinn. Í Hávamálum er að finna lífsspeki – hversdagslegar ráðleggingar og háspeki. Hávamál hafa fylgt okkur í gegnum aldir og margar af hendingunum lifað góðu lífi með þjóð- inni og hún gripið til þeirra við ýmis tilefni. Ein er sú sem um þessar mundir hefur sérstaka þýðingu: Ungur var eg forðum, fór eg einn saman, þá varð eg villur vega, auðigur þóttumst er eg annan fann, maður er manns gaman. Það er sum sé auðvelt að villast af leið séu menn einir og hafi sér engan til halds og trausts. Líklegra er að finni menn sér förunaut finni þeir réttu leiðina í lífinu þar sem ánægja fylgi því að njóta félagsskapar annarra. Þessi ábending Hávamála kemur í hugann nú þegar við búum við samkomubann og takmörkum samvistir við aðra sem mest við megum. Þeim sem vanir eru að heilsa með handabandi líður eins og þeir séu óupp- dregnir dónar og menn leggja jafnvel lykkju á leið sína til að forðast að stíga inn fyrir tveggja metra radíus þeirra sem á vegi þeirra verða. Þessu er erfitt að venjast. Bent hefur verið á að þeir sem verst verða úti á þessum samneytislausu tímum séu þeir sem eru rosknir eða veilir og því viðkvæmari fyrir sóttinni en hinir yngri og fullfrísku. Fjölskyldur hætta að heimsækja afa og ömmu og þeir sem ekki eru fullfrískir halda sig að mestu innanhúss og hitta fáa. En þetta eru þeir sem rannsóknir sýna að sé sá hópur sem er mest einmana alla jafna. Á þessum tímum er ýmislegt annað að varast. Van- traust grefur um sig og tortryggni verður vart. Er örugg- lega verið að segja okkur satt? Kviksögur eiga reiprenn- andi farveg. Kvarðar með margs konar tölfræði verða að meginatriði. Enginn veltir fyrir sér hvort fleiri tapi lífinu við fall í stiga árlega en þeir sem veiran verður að aldurtila. Og ef á fyrir mönnum að liggja að deyja, fyrr eða síðar, voru orð Kára Stefánssonar í helgarblaðsviðtali Fréttablaðsins um síðustu helgi forvitnileg þegar hann var spurður um hvort hann óttaðist að smitast: „Ég vona að ef ég sýkist þá jafni ég mig en ef ég jafna mig ekki þá er ég búinn að lifa býsna góðu lífi.“ Æðruleysið verður varla tærara. En mikilvægast í öllu þessu er að tapa ekki gleðinni. Gleðjast yfir stóru og smáu og hugsa með tilhlökkun til þess tíma þegar þetta allt verður að baki. Sá dagur nálgast þó mörgum finnist föstudagurinn langi vera daglega. Þegar það verður, vonum við að hefðir, siðir og venjur lifni við á ný. Heimsóknir til ömmu og afa, vina- fundir, faðmlög og handabönd verði eins sjálfsagðir og áður. Þá verður næstum allt eins og fyrrum var. Og maður verður manns gaman á ný. Manns gaman  Ég sest við stofuborðið með fartölvuna til að skrifa pistil. Innan úr barnaherberginu heyrast hlátra-sköll. Því næst: „Hei, taktu mynd af rassinum á mér.“ Í venjulegu árferði hefði uppástungan orðið til þess að foreldri kæmi sem stormsveipur inn í herberg- ið með ygglda brún og umvandanir. En á tímum þegar kórónaveiran veikir verklag og ryður burt leikreglum hafa hefðbundnir uppeldisstaðlar verið settir til hliðar. Hér í London þar sem ég bý ríkir svo gott sem útgöngubann vegna COVID-19. Í tvær vikur höfum við kúldrast fjögur í íbúð, tvö fullorðin og tvö börn. Eftir hnökra í byrjun þar sem foreldrarnir sátu daglangt með höfuð í höndum sér og veinuðu „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ tókst okkur að finna nýjan lífstakt. Í veröld þar sem hinir fullorðnu teljast enn starfs- menn milli níu og fimm á daginn en einnig kennarar, matráðar, ræstitæknar, íþróttaþjálfarar og skemmti- kraftar er lykillinn að því að komast lífs af að finna gleðina í hinu smáa: Kaffibolla morgunsins, óvenju- góðum COVID-19 brandara á Facebook, óvenjugóðum prumpubrandara frá börnunum, Joe Exotic þáttunum á Netflix, súkkulaðimolanum eftir kvöldmatinn og gleðiópunum sem kveða við þegar einkadóttirin aðstoðar við kökubakstur og hrópar „ég braut egg, ég braut egg“ af svo einlægum ákafa að ætla mætti að hún hefði fundið upp bóluefni við kórónaveirunni. Veru- leikinn er kannski eins og ef kvikmyndirnar Ground- hog Day og Armageddon rynnu saman í eina – en góðu fréttirnar eru þær að með hverjum degi sem líður færumst við einum degi nær því að mega opna Nóa páskaeggin sem bárust okkur með pósti frá Íslandi. Eftir tvær vikur í stofufangelsi taldi ég mig hafa neglt nýja lífsstílinn. En skyndilega runnu á mig tvær grímur. Að vera og gera Fyrir ári rakst ég á færslu á Facebook sem sat lengi í mér. Í henni lýsti einkar skarpskyggn Facebook-vinur áhyggjum sínum af óhóflegum kröfum samtímans til tilverunnar: - Þú þarft ekki bara að vera í leikfimi – þú þarft að vera í formi eins og atvinnumaður. - Þú þarft ekki bara að vera í góðri vinnu – þú þarft að vera leiðtogi. - Þú þarft ekki bara að eiga börn – þau þurfa að vera framúrskarandi. - Þú þarft ekki bara að fara í frí – þú þarft að vera í Víetnam. - Þú þarft ekki bara að borða hollt – þú þarft að vera vegan. - Þú þarft ekki bara að vera vel menntuð/aður – þú þarft doktorspróf. - Þú þarft ekki bara að stunda útivist – þú þarft að vera landvættur. - Þú þarft ekki bara að eiga fallegt heimili – það þarf að fylgja nýjustu tískustraumum. Ef kórónavírusinn kenndi okkur aðeins eina lexíu var ég ekki í nokkrum vafa um hver hún yrði: Að láta af þeim ósið að líta á lífið sem keppnisíþrótt. Umsókn minni um starf völvu vikunnar hefur hins vegar verið hafnað. Lífsgæðakapphlaupið víkur nú fyrir súper-sóttkví. Þau skilaboð berast fólki í sjálfseinangrun að það eigi að nýta tímann í að skapa, skrifa, lesa, mála, prjóna, halda matarboð á Zoom – hægeldað og lífrænt – greiða sér á morgnana, hlaupa maraþon á svölunum, sinna góðgerðarmálum, taka doktorspróf í faraldsfræði til að mega tjá sig um kórónavírusinn, hugleiða, baka, skipuleggja skápana og lakka gólfin. Komir þú ekki úr sóttkvínni með nýja háskólagráðu upp á vasann, tvö ný tungumál á hraðbergi og fjölskylduna uppstrílaða í heimasaumuðu hefur þér mistekist. Úr einangruninni í London vil ég hins vegar miðla af tveggja vikna reynslu og senda umheiminum eftir- farandi ráð: Nýtið tímann í að vera en ekki gera. Komir þú úr sóttkví með nokkur ný grá hár á höfði og eilítið skelkað bros á vör hefur þér tekist vel upp. Súper-sóttkví Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra. Styrkirnir eru ætlaðir til verkefna sem efla atvinnulíf og nýsköpun. Umsóknarfrestur er til 27. apríl 2020. Umsóknir berist rafrænt í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Allar nánari upplýsingar á anr.is Styrkir til verkefna og viðburða 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.