Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 24

Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 24
Laddi og hlær. „Þannig að það er svolítið skemmtilegt og við vorum alveg vön því að leika svona par sko. Bara komin á efri ár. Þetta var bara næstum því eins hjá okkur í þáttun­ um. Að ég hitti semsagt hana, æsku­ ástina, bara upp úr öðru leikriti.“ Spennandi dramatík Þótt Laddi dragi kannski ekkert upp sérstaklega aðlaðandi mynd af Benedikt er persónunni ekki alls varnað og leikarinn kemur honum til varnar með sálfræðilegum rökum. „Hann lenti í áfalli og þá fór allt í baklás hjá honum. Skildi við kon­ una og allt og var bara, þú veist, einn þarna í sjálfsvorkunn og aumingja­ skap í meira en 30 ár. Var svona svolítið einmana og bara í vosbúð og volæði.“ Jarðarförin mín var lengi í þróun en Laddi segir tíu ár síðan Jón Gunn­ ar Geirdal lagði hugmynd sína að þáttunum fyrir hann. „Svo vorum við að hittast svona annað kastið einu sinni á ári. Þetta var alltaf að teygjast og þetta hefur nú breyst svolítið frá fyrsta handritinu sem ég fékk að sjá. Þá var þetta meira farsakennt. Átti að vera meira grín en svo breyttist þetta þannig að þetta er orðið meira drama. Eða hvað heitir þetta, kómedídrama?“ Einn í skel Dramedía er einnig tilnefnd en Laddi hallast að lokum að því að gamla góða tragikómedían lýsi þáttunum ef til vill bara best. „Þótt mér hafi fundist handritið skemmtilegt í byrjun þá fannst mér þetta verða eitthvað allt annað og miklu meira spennandi. Fyrir mig allaveganna. Þannig að ég las handritið alveg fram og aftur og fór að hugsa um þennan karakter, Benedikt. Og fann, eins og ég segi, svona aðeins tengingu við hann. Ekki það að ég sé svona ofboðslega fúll eins og hann,“ segir Laddi en bætir við að í gegnum tíðina hafi honum alltaf fundist gott að vera einn með sjálfum sér. „Hann var svolítið svoleiðis. Hann lokaði sig inni í sinni skel og ég var nú svolítið svoleiðis lengi Laddi er ekkert að djóka með kórónumálverkinu sem hann kláraði nýlega. framan af. Maður var svona inni í skelinni. Var feiminn og allt þetta. Þannig að ég náði alveg að tengja við kallinn. En þótt hann hafi verið þumbari og svona þá held ég að Benni sé nú góður kall sko. Innst inni. Hann er samt svolítið leiðinlegur við son sinn en það er ástæða fyrir því. Hann lenti í þessu áfalli þannig að sonurinn gleymdist bara. Fékk voða litla ást frá pabba sínum. Þannig að það er mikil dramatík í þessu.“ Heima yfir sjónvarpinu Jarðarförin mín verður aðgengileg í Sjónvarpi Símans um miðja næstu viku, rétt fyrir páska í miðju kóróna veirufárinu. Kannski viðeigandi að Laddi birtist þá í grá­ glettnum þáttum þar sem feigðin svífur yfir vötnum. Laddi segist fara að öllu með gát á þessum viðsjárverðu tímum enda þau hjónin, hann og Sigríður Rut Thorarensen, komin á áhættualdur og hann þar að auki með háan blóð­ þrýsting. „Maður er næstum því bara í sjálfskipaðri sóttkví heima og við horfum á sjónvarpið út í eitt. Maður fer aðeins út og við komum hingað á Krúsku að borða þegar hádegis­ traff ík in, sem hefur náttúrlega minnkað, er búin. Það er ekki hægt að segja að það sé traffík lengur,“ segir Laddi um ástandið í sam­ komu banninu. „Þannig að þegar við komum hérna þá eru mjög fáir þannig að það er ekkert smit. Svo fer ég niður á verkstæði seinni partinn og mála. Og svo bara heim að horfa á sjón­ varpið.“ Slakað á striga Laddi byrjaði að fást við máln­ ingu á striga upp úr sextugu eftir að Sigríður Rut reið á vaðið þegar hann var lítið heima við í kringum afmælissýninguna Laddi 6­tugur. „Þá var ég voða lítið heima,“ segir Laddi og rifjar upp það sem löngu frægt er orðið að sýningarnar sem áttu að vera örfáar enduðu í 130. Slík reyndist eftirspurn þjóðarinnar vera eftir sínum ástsælasta grínara undanfarna áratugi. „Þá byrjaði konan að teikna og mála,“ segir Laddi sem hafði ekki hugmynd um þennan falda hæfi­ leika Sigríðar. „Ég hafði aldrei neitt spekúlerað í þessu en hún var bara mjög flink í þessu og þá byrjaði ég. Ákvað bara að gera þetta.“ Þegar betur er að gáð var þetta þó ekki alveg út í bláinn hjá Ladda. „Ég hef alltaf verið teiknandi alla mína hundstíð en hafði aldrei málað eða farið út í olíumálningu, akrýl eða eitthvað svoleiðis.“ Laddi segist áður hafa grínast með að það væri svo mikið að gera að hann myndi byrja að teikna aftur og mála í ellinni. „En ég er byrjaður á því á fullu og búinn að halda tvær einkasýningar. Það er voðalega fínt að hafa þetta einmitt núna þegar það er nægur tími og þarna er maður bara einn og smitar engan og smitast ekki,“ segir Laddi sem eins og fleiri finnur hugarró fyrir framan strigann og ekki þarf hann heldur að kvarta yfir viðtökunum á þessum vettvangi en allar myndirnar á síðustu sýningu seldust. „Þýðir ekkert að vera að mála þetta vegna þess að þetta selst alltaf upp.“ Leðurblökur á sveimi Laddi telur ekki nokkra einustu ástæðu til þess að draga úr alvar­ leika ástandsins í samfélaginu og heiminum öllum síðustu daga og vikur en þó hljóti að mega gera örlítið grín að þessu. Rétt bara svona til að halda geðheilsunni. „Eins og einhver sagði, það má gera svona góðlátlegt grín að kórónu. Enda er ég búinn að mála eitt mál­ verk af henni,“ segir hann og brosir sínu Ladda­glotti. „Ég setti verkið nú reyndar á netið um leið og ég kláraði það í síðustu viku. Svona bara af því að það er þessi tími og fólk var mjög ánægt með það og þetta er ekkert grín sko. Þar er bara fólk á gangi með sitt fyrir andlitinu og allt og svo eru kórónuveirur fljúgandi út um allt og leðurblökur í staðinn fyrir fugla.“ Veiruskaup 2021? Laddi er eldri en tuttugu vetra þegar áramótaskaup RÚV eru ann­ ars vegar og aðspurður segist hann ekki geta metið strax hvort tíma­ bært verði að gantast með veiruna í næsta skaupi. „Ég veit það ekki. Þetta verður náttúrlega um allan heim alveg fram eftir árinu. Það verður pott­ þétt mál og margt sem breytist. Til dæmis íþróttir og alls konar keppnir og svona,“ segir hann og nefnir sérstaklega sitt sport, golfið, þar sem allt er upp í loft. „Ég var í landsliði öldunga og við áttum að spila úti í sumar. Það er búið að hætta við það.“ Trufluð tilvera Sömu sögu er að segja af árlegri golfferð til Spánar sem 150 Íslend­ ingar fara alltaf í apríl. „Þetta er agalegt og mjög erfitt af því þetta er svo skemmtilegur túr en hann verður færður til haustsins. Það verður vonandi hægt að fara þá,“ segir Laddi og bætir við að hugsan­ lega séu þeir bræður og sveitungar hans úr Hafnarfirði, Jakob Bjarnar og Atli Geir Grétarssynir, þeir einu sem taki þessu verr en hann. Þeir þykja enda heldur kvartsárir og þá sérstaklega sá fyrrnefndi. „Ég held að þeir séu verri en ég.“ Laddi segist þó binda vonir við að þessi truflun tilverunnar muni að lokum láta eitthvað gott af sér leiða. „Maður er að hugsa að kannski leiði þetta eitthvað gott af sér. Vonandi. Heimurinn verður ekki samur á eftir og maður vonar að það fari ekki allt í sama farið aftur. Að fólk hugsi áfram örlítið um sjálft sig og náungann og svona. Og að öll þessi veikindi, smit og dótarí verði til þess að fólk fari almennt varlega. Ég veit að ég geri það og þvæ mér núna miklu oftar um hendurnar. Það er alveg pottþétt og vonandi fer þetta bara í vana og að það fyrsta sem maður gerir þegar maður kemur heim sé að þvo sér um hend­ urnar.“ ÉG LAGÐIST TIL DÆMIS OFAN Í KISTU OG ALLT ÞAÐ FYRIR EINHVERJAR MYNDATÖKUR OG ÞÁ FÓR MAÐUR NÚ AÐ HUGSA SKO. Laddi segist ekki vera jafn ofboðslega fúll og sá sem hann leikur í Jarðarförin mín en þeir eiga þó sitthvað sameiginlegt. Til dæmis að hafa kúrt hlédrægir í skeljunum sínum. 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.