Fréttablaðið - 04.04.2020, Page 26

Fréttablaðið - 04.04.2020, Page 26
Mj ö g m a r g i r hafa veikst og enn f leiri eiga ef tir að gera það, andlát eru f jöldamörg á heimsvísu og þeim fer fjölgandi. Það reynir á almenning sem býr við verulega breytta heimsmynd, skert frelsi til þess að koma saman og allt annað umhverfi en við eigum að venjast í leik og starfi. Það reynir þó ekki síst á starfs­ fólk í heilbrigðisþjónustu á öllum vígstöðvum, allt frá heilsugæslu og læknavakt til hjúkrunarheimila og svo auðvitað sjúkrahúsa þar sem hinir alvarlega veiku þurfa mikla umönnun. Þetta er ekki búið og við eigum eftir að vera í þessu lang­ hlaupi talsvert í viðbót. Flestir hafa á einhverjum tíma þurft að ganga í gegnum erfiðleika, áföll og jafnvel veikindi. Þá erum við líka vön því að þurfa stundum að leggja eitt­ hvað meira á okkur til að ná árangri, læra undir próf, þjálfa okkur í ein­ hverri íþrótt, tryggja að samskipti við maka, fjölskyldu eða aðra gangi upp. Það eru hinar eðlilegu áskor­ anir lífsins og það sem styrkir okkur og mótar ásamt öllu hinu sem ég taldi ekki upp. Samstaða og æðruleysi Í þessum kringumstæðum sem við núna stöndum frammi fyrir þurfum við að gera meira en venjulega, fylgja leiðbeiningum og komast í gegnum þennan storm sem öll heimsbyggðin er að glíma við. Það eru mótandi tímar og má segja að hér á landi sé fólk almennt reiðu­ búið að taka áskorunum af æðru­ leysi og standa saman til að leysa úr þeim vanda sem steðjar að. Við höfum iðulega gert það og núna er engin undantekning. Fyrir heilbrigðisstarfsfólk gildir að geta varist veirunni sjálft og halda heilsu. Þannig tryggjum við að hægt sé að sinna þeim sem veikjast og þurfa aðstoð okkar. Til þess að geta varist er nauðsynlegt að eiga góð samskipti, vera vel upplýst um stöðu mála og fá þann hlífðar­ búnað sem þarf á hverjum stað fyrir sig. Vinna samkvæmt ferlum sem eru lagðir upp á mismunandi stöðum heilbrigðiskerfisins og geta reitt sig á samstarfsfólk þegar á þarf að halda. Það er fyrir utan það að passa svefn, næringu og mataræði auk hreyfingar á sama tíma til að komast í mark án þess að verða bensínlaus á leiðinni. Síðast en ekki síst að treysta á almenning, að hann aðstoði við verkefnið með því að reyna að draga úr nýsmiti með þeim leiðbeiningum sem gefnar eru út hverju sinni. Við megum heldur ekki þrátt fyrir þetta ástand gleyma að sinna öllum hefðbundnu verkefnunum sem fara hvergi, veikindi og undirliggjandi sjúkdómar þurfa okkar nálgun sem og bráðatilvik sem munu alltaf koma upp. Það er deginum ljósara að við getum komist á þann stað að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir hérlendis líkt og kollegar okkar úti heimi, ef álag verður mikið og við höfum ekki nægjanleg úrræði til meðferðar. Heilbrigðisstarfsfólk í ósanngjarnri stöðu Í kringumstæðum sem þessum og við ofálag getur heilbrigðisstarfs­ fólk bugast, gert mistök og sagt eða gert hluti sem það sér eftir. Það er sett í stöðu sem er ósanngjörn og óleysanleg líkt og við höfum fylgst með í löndunum í kringum okkur. Það hefur verið mikið rætt um kuln­ un og brottfall starfsfólks, það getur aukist eftir svona faraldur. „Moral injury“ er líka notað talsvert í dag sem þýða mætti sem samvisku­ áverka, en orðatiltækið á rætur að rekja til hersins og er skilgreint sem andleg vanlíðan sem orsakast af aðgerðum eða aðgerðaleysi sem hefur neikvæð áhrif á siðferðisvit­ und einstaklings. Þetta er ekki geðsjúkdómur líkt og áfallastreituröskun. Hins vegar er talið að sjálfsmyndin skaðist. Upplifun einstaklinga af sjálfum sér eða umhverfi geti orðið nei­ kvæð og leitt til depurðar eða kvíða, langvarandi vanlíðunar og jafnvel sjálfsvígshugsana. Að sama skapi geta slík atvik styrkt einstaklinga og aukið þrautseigju þeirra og getu til að takast á við ný verkefni. Hvora leiðina einstaklingar fara veltur mikið á stuðningi fyrir, á meðan og eftir að hafa gengið í gegnum slíka lífsreynslu. Við þurfum því að tryggja að heilbrigðisstarfsfólk haldi líkamlegri og andlegri heilsu. Við þurfum að vera vakandi fyrir líðan þess og gefa tækifæri til viðr­ unar og meðferðar á öllum stigum faraldursins, en ekki síst að honum loknum. Það gamla orðatiltæki að standa í lappirnar gildir nú sem áður fyrir alla einstaklinga, en við þurfum líka að passa að standa með fólkinu okkar nú meira en áður. ÞAÐ ER DEGINUM LJÓSARA AÐ VIÐ GETUM KOMIST Á ÞANN STAÐ AÐ ÞURFA AÐ TAKA ERFIÐAR ÁKVARÐ- ANIR HÉRLENDIS LÍKT OG KOLLEGAR OKKAR ÚTI Í HEIMI. Nýfædd börn 14 – 17 klst./dag 12 mánaða 10 klst./nóttu + 4 klst. lúrar 2 ára 11 – 12 klst./nóttu + 1 til 2 klst. lúr 3 – 5 ára 10 – 13 klst. 6 – 13 ára 9 – 11 klst. 14 – 17 ára 8 – 10 klst. Fullorðnir 7 – 9 klst. Heimild: Mayo Clinic Hvað eigum við að sofa mikið? Vísindamenn við Oxford­háskóla hafa sýnt fram á að hlátur geti á margvís­ legan hátt verið heilsubætandi. Við eigum þó enn langt í land með að skilja fullkomlega hvað gerist, en svo virðist sem við reynum tals­ vert á okkur þegar við hlæjum. Blóðf læði eykst, súrefnisupptaka batnar, blóðþrýstingur lækkar sem og spenna í vöðvum. Við styrkjum ónæmiskerfið, drögum úr streitu og síðast en ekki síst virðist hlátur hafa áhrif á verkjanæmi sem dregur úr þörf á lyfjum svo dæmi sé tekið. Heilinn finnur mun á innilegum hlátri og þeim tilgerðarlega Þeir sömu segja að heilinn geti áttað sig á því sem kalla mætti innilegan losandi hlátur og þeim tilgerðar­ lega og er munur á losun endorfína eftir því hvort er. Líkamlegu áhrifin eru hins vegar svipuð. Það er hollt að vera í kringum fólk og hlæja, við höfum eiginlega alltaf vitað það. Svo virðist hins vegar sem það að hlæja jafnvel í iðkun eins og hlátur­ jóga geti bætt heilsu okkar. Það er því ekki eftir neinu að bíða með að kitla hláturtaugarnar strax í dag. Hlátur er allra meina bót Það er ekki bara gaman að hlæja – það er beinlínis hollt. MYND/GETTY Vísindin eru sammála um að það er okkur nauðsynlegt að sofa, en ekki bara það, heldur ná á sama tíma að hvílast. Það er munur á milli þess hversu mikinn svefn við þurfum. Hann minnkar eftir því sem við eldumst miðað við börnin og unglingana. Það er líka þekkt að ýmislegt hefur áhrif á svefn annað en aldur. Hið augljósa er álag, streita og áhyggjur en þar má líka nefna áfengisneyslu sem almennt skerðir svefngæði okkar. Undirliggjandi sjúkdómar, kæfisvefn, lyfjanotkun og fíknisjúk­ dómar hafa töluverð áhrif í þessu samhengi. Vaktavinnufólk er einnig sérstakur áhættuhópur sem og þeir sem ferðast mikið á milli tímabelta líkt og flugþjónar og flugmenn. Svefnskuld Stundum þurfum við hreinlega að sofa meira en eðlilegt þykir, til dæmis við svefnskuld, og þar sem við höfum gengið á batteríin okkar. Ófrískar konur hafa líka aukna þörf og þannig mætti lengi telja. Við vitum líka í dag að það er mjög margt sem skertur svefn getur leitt af sér í formi lífsstílssjúk­ dóma. Helst má þar nefna hjarta­ og æðasjúkdóma, offitu og svo jafnvel tengingu við þróun krabbameina. Svefntruflun ekki eðlileg Ef við viljum nálgast svefntruflun með réttum hætti þarf að taka góða sögu og skoðun og átta sig á sam­ hengi hlutanna og umhverfi ein­ staklingsins, enda er augljóst að þar geta verið einföld ráð til að bæta úr og skyldi alltaf byrja þar. Það hefur sýnt sig að markviss meðferð líkt og hugræn atferlismeðferð (HAM) er mjög öflug og ætti að íhuga á undan svefnlyfjum. Leiðréttingar á undir­ liggjandi vanda og sjúkdómum, skimun og meðferð gegn kæfisvefni er líka geysilega mikilvæg. Munum það að svefntruflun er ekki eðlilegt ástand og þarfnast skýringar ef hún er ekki augljós. Þá getur hún skapað ýmsa kvilla sem maður vill fremur vera án. Ef þú getur ekki leyst vand­ ann sjálfur fáðu þá aðstoð fagfólks. Svefninn okkar Svefntruflun er ekki eðlileg og getur skapað ýmsa kvilla og ætti því að taka alvarlega. MYND/GETTY Að standa í lappirnar Við erum að fara í gegnum erfiðleika í heiminum vegna þessarar veiru sem geisar og skapar okkur verulega mikil vandræði. Margir hafa veikst og fleiri eiga eftir að veikjast. Mikið hefur verið rætt um kulnun og brottfall starfsfólks í heilbrigðisgeiranum og getur það aukist við þær aðstæður sem nú eru uppi. MYND/GETTY Teitur Guðmundsson læknir 4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.