Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 32
„Stjórnvöld verða að huga sérstak-
lega að fólki sem býr við fátækt og fé-
lagslega einangrun af hennar völd-
um, bæði með tilliti til heilbrigðis-
þjónustu nú þegar við glímum við
kórónuveiru og COVID-19 faraldur en
ekki síður í þeim efnahagsþrengingum
sem eru framundan,“ segir Vilborg
Oddsdóttir, félagsráðg jafi, sem stýrir
verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar
innanlands. Auk Vilborgar starfa
tveir félagsráðg jafar að því að veita
fólki í félagslegri neyð ráðg jöf og
efnislega aðstoð ásamt því að
skipulegg ja verkefni sem öll miða að
aukinni virkni og bættri sjálfsmynd
og sjálfsöryggi þátttakenda. Vilborg
sem er ötull talsmaður fyrir almenna
farsæld hefur undanfarnar vikur
rætt í fjölmiðlum um nauðsyn þess að
samfélagið ráðist að rótum vanda
fólks sem býr við fátækt og að
aðgerðir stjórnvalda til að útrýma
henni séu skipulagðar með þátttöku
fólksins sjálfs. „Stjórnvöld eiga ekki
að taka ákvörðun án þess að fólkið
sjálft komi að borðinu og að sjónarmið
þeirra heyrist,“ segir Vilborg.
„Hér hjá Hjálparstarfi kirkjunnar
breyttum við aðferðum okkar í starfi
fyrir margt löngu til þess að þjónusta
okkar leiddi til raunverulegra breyt-
inga í lífi fólks. Við hurfum frá ölmusu-
hugsun til þess að veita notendastýrða
þjónustu sem byggir á réttindum
fólks til mannsæmandi lífs.
Ég vil taka það fram að með virðingu
fyrir mannréttindum á ég ekki við að
fólki eigi rétt án þess að bera samtím-
is skyldur. Fagleg vinnubrögð felast í
því að taka ekki ábyrgð á eigin lífi frá
einstaklingnum. Við legg jum okkur
fram um að hlusta á fólkið sem til
okkar leitar og aðstoða það við að ná
markmiðum sem það hefur sjálft sett
sér. Reynslan okkar hér hefur sýnt
okkur að valdefling er aðferð í starfi
sem virkar.“
„Stjórnvöld verða að vernda fólk sem býr
við fátækt gegn efnahagsþrengingum“
Júlía Margrét Rúnarsdóttir, Sædís Arnardóttir og Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafar Hjálparstarfs kirkjunnar, hafa brugðist við breyttum aðstæðum fólks vegna
COVID-19 faraldursins með því að bjóða upp á þjónustu símleiðis og á netinu. Auk efnislegrar aðstoðar felst þjónusta ráðgjafanna nú í auknum mæli í sálrænum
stuðningi við fólk í félagslegri neyð sem ber kvíðboga fyrir framtíðinni vegna faraldursins.
Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálpræðisherinn skipuleggja í júní sumarfrí fyrir
ölskyldur sem búa við kröpp kjör og eiga þess ekki kost að fara í sumarfrí
saman. Fríið er í fallegu umhverfi við Úlfljótsvatn og áhersla er lögð á hvíld,
sameiginlegar máltíðir og afþreyingu fyrir stóra sem smáa. Hver ölskylda
fær sérherbergi í sumarbúðum skáta á meðan dvöld stendur.
Samvera og góðar minningar
Sumarfrí fyrir barna ölskyldur sem búa við kröpp kjör
í sumarbúðum skáta við Úlfljótsvatn 9.– 12. júní 2020
Umsóknarfrestur er 24. apríl 2020 hjá
Hjálpræðishernum eða Hjálparstarfi kirkjunnar.
Boðið verður upp á boltaleiki, ratleiki, gönguferðir, sundferð, vatnasafarí og kanóa-
og hjólabátasiglingu. Unglingaklúbbar og kvöldvökur verða einnig á dagskrá.
Sumarfríið er þátttakendum að kostnaðarlausu en mikilvægt er að þátttakendur láti
vita hvort þeir komi á einkabíl eða óski eftir að fara með rútu á vegum sumarfrísins.
Við viljum vekja athygli á því að sumarfríið er fyrir ölskyldur með að minnsta kosti
eitt barn yngra en 14 ára og elstu börn verða að vera yngri en 18 ára.
Upplýsingar um staðinn er hægt að nálgast á
www.skatar.is/ulfljotsvatn og www.ulfljotsvatn.is
6 – Margt smátt ...