Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 60

Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 60
Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna ... Hjálparstarf kirkjunnar sendi síðasta haust 7,4 milljóna króna framlag til mannúðaraðstoðar við þúsundir íbúa sem áttu um sárt að binda eftir að felli- bylurinn Idai reið yfir landið í mars 2019. Framlagið er að meðtöldum frábærum stuðn- ingi utanríkisráðuneytisins við starfið. Í kjölfar fellilbylsins hóf Hjálp- arstarf kirkjunnar í Malaví að aðstoða þá 8.800 íbúa í hér- uðunum Phalombe og Chikwawa sem verst urðu úti og útvegaði þeim næringarríka fæðu og tryggði þeim aðgengi að drykkj- arhæfu vatni og hreinlætisað- stöðu. Sérstök áhersla var lögð á að börn yngri en fimm ára fengju næga næringu en einnig var unnið að því að íbúarnir og þá sérstaklega börnin nytu sál- ræns stuðnings til að takast á við streitu í kjölfar hamfar- anna. Þá hefur verið unnið að því að styrkja viðbragðsgetu samfélagsins við hamförum og bændur hafa fengið aðstoð við að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað. Stærsta verkefni Hjálpar- starfs kirkjunnar í þróunar- samvinnu til lengri tíma er með sárafátæku fólki sem býr á miklum þurrkasvæðum í Sóma- lífylki í Eþíópíu. Frá ársbyrjun 2018 hefur Hjálparstarfið starfað þar með 3.000 fjöl- skyldum sem búa við mjög slæm skilyrði í héraðinu Kebri Beyah að því að tryggja fæðu- öryggi þeirra. Meginmarkmið verkefnisins eru að bæta að- gengi að drykkjarhæfu vatni, að fólkið geti aukið fæðuör- yggi sitt með umhverfisvernd og bættum aðferðum í land- búnaði og að styrkja stöðu kvenna, samfélaginu öllu til farsældar. Verkefniskostnað- ur nam 41 milljón króna starfsárið 2018–2019 og nýtur Hjálparstarfið stuðnings utan- ríkisráðuneytisins við verk- efnið samkvæmt verklagsregl- um þess um styrki til verkefna borgarasamtaka í þróunar- samvinnu. Í sveitahéruðum í Lyantonde og Rakai í Úganda aðstoðar Hjálparstarf kirkj- unnar börn sem búa við örbirgð. For- eldrar barnanna eru annað hvort látnir af völdum alnæmis eða mjög lasburða og eru ekki færir um að tryggja heilsu þeirra og tækifæri til mannsæmandi lífs. Fjölskyldurnar búa í kofahreysum og hafa hvorki nægan aðgang að vatni og hrein- lætisaðstöðu né næringarríkri fæðu. Aðstoðin er veitt í samstarfi við inn- lendu grasrótarsamtökin RACOBAO en þau hafa starfað í þágu HIV-smit- aðra í Úganda í meira en áratug. Hún felst fyrst og fremst í því að reist er einfalt múrsteinshús fyrir börnin, aðgengi að drykkjarvatni er tryggt með 4000 lítra tanki fyrir rigningar- vatn, sem reistur er við hlið hússins og útikamar er reistur til að stuðla að bættu hreinlæti. Til þess að stuðla að góðri heilsu barnanna fá fjöl- skyldurnar geitur til ræktunar, áhöld og útsæði til að hefja matjurtarækt á landspildu sem nágrannar leyfa þeim að nota. Á starfsárinu 2018–2019 varði Hjálparstarf kirkjunnar 11,2 milljónum til aðstoðarinnar og naut góðs stuðnings utanríkisráðuneytis til þess. Börn í fermingarfræðslu þjóð- kirkjunnar gengu í hús í sóknum um land allt í október síðast- liðnum með bauk frá Hjálpar- starfi kirkjunnar í hönd. Börnin gáfu þannig af tíma sínum til að safna fé til verkefna Hjálpar- starfsins í Afríku. Alls söfnuðu tilvonandi ferm- ingarbörn 7.102.351 krónu og er framlag þeirra og fólksins sem tók vel á móti þeim afar dýrmætt. Kærar þakkir! Börn sem búa við sára fátækt geta stundað nám og eru á heimavist, þökk sé hjartahlýju fólki frá Íslandi, en frá árinu 1989 hafa Hjálparstarf kirkj- unnar og Fósturforeldrar stutt starf Sameinuðu indversku kirkjunnar, United Christian Church of India eða UCCI, í And- hra Pradeshfylki í austurhluta Indlands. UCCI rekur þar skóla, heimavist og spítala ásamt því að gefa fjölskyldum sem búa við sára fátækt mat. Um mitt ár 2019 nutu 225 börn og unglingar stuðnings Fósturforeldra og Hjálparstarfsins til náms en auk þess greiðir Hjálparstarfið laun átta kennara við skólann. Heildarframlag til starfs UCCI nam 10,7 milljónum króna á starfsárinu 2018–2019. … í Malaví … á Indlandi. … í Eþíópíu … í þágu munaðarlausra vegna HIV/alnæmis í Úganda Kærar þakkir fyrir frábæran stuðning! 10 – Margt smátt ...
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.