Fréttablaðið - 04.04.2020, Síða 64
Eggert, sem býr í bænum Goroka, seg ist ek k i viss um að útlendingar aðlagist nokkurn tíma fullkomlega samfélag-inu á eyjunni í Suð-
vestur-Kyrrahafi. „Það er gjörólíkt
því sem við eigum að venjast á svo
margan máta. Hér býr obbi þjóðar-
innar, eða í kringum 80 prósent,
í dreif býli þar sem er stundaður
sjálfsþurftarbúskapur og það sem
er afgangs er selt á mörkuðum í
þéttbýli.
Þjóðin er samsett úr um 800
ættbálkum sem hver um sig á sitt
tungumál eða mállýsku. Þegar
þjóðin fékk sjálfstæði frá Ást-
rölum árið 1975 varð það úr að þrjú
tungumál urðu fyrir valinu: enska
er stjórnsýslumálið og mál þeirra
sem hafa náð einhverju menntunar-
stigi. Motu er málið sem stærsti ætt-
bálkurinn talar og loks pidgin sem
er sett saman úr nokkrum tungu-
málum.
Megnið af landinu er í eigu ætt-
bálkanna og oft er nokkuð heitt í
kolunum þar sem þeir berjast svo
hatrammlega að mannfall verður.“
Eggert segir barist um eðalmálma,
gas, olíu og fleira sem landið gefur af
sér. „Stjórnarfar hér er sett upp í ein-
menningskjördæmum að breskri
fyrirmynd og er oft fjör á þinginu
þegar það situr.“
Fjölskyldur standa saman
Eggert segir fjölskyldur stórar og að
oftast búi þær saman. „Ef eitthvað
bjátar á svo sem atvinnumissir eða
veikindi kemur fjölskyldan iðulega
til hjálpar. Það er mjög sterk tenging
við fortíðina en með tilkomu krist-
inna trúfélaga sem eru mjög öflug
hér og þeirri staðreynd að þjóðin er
að þróast eru þeir sem búa í borgum
farnir að líkjast borgarbúum annars
staðar í heiminum æ meira. Eins er
farið að sjá fyrir endann á því að
ættbálkahöfðingjar og þorpsbúar
ráði hér ríkjum öllu lengur. Með
menntun og áhrifum annars staðar
frá hefur þjóðfélagið breyst mikið
bara á þeim rúmu fjórum árum sem
ég hef verið hér.“
Eggert starfaði lengst af við
framleiðslu sjónvarpsefnis hér
á landi og meðal annars sá hann
um framleiðslu og leikstjórn á
Stundinni okkar. „Ég vann við það
verkefni í 13 ár þegar Björgvin
Franz Gíslason var umsjónarmaður.
Frá árinu 2006 rak ég mitt eigið
framleiðslufyrirtæki sem gerði
heimildamy ndir, einkum um
listamenn, ódýr myndbönd og
tónlistarþætti. Árin 2014 til 2016
framleiddi ég svo þættina um
Ævar vísindamann sem unnu til
Edduverðlauna fyrir allar þrjár, átta
þátta seríurnar.“
Tilviljun réði för
Það var einmitt þegar Eggert var að
vinna að þriðju seríu Ævars vísinda-
manns haustið 2015 að hann fékk
tölvupóst frá Gísla Snæ Erlings-
syni sem þá bjó í Singapúr. Vinur
vinar hans var þá að leita að ein-
hverjum sem gæti tekið við rekstri
sjónvarpsstöðvar í Port Moresby á
Papúa Nýju-Gíneu. „Ég veit ekki af
hverju honum datt ég í hug en ég
svaraði í hálf kæringi: Já, til er ég.
Þar með fór ferli af stað og í byrjun
árs var ég lentur í Port Moresby og
farinn að vinna sem sjónvarpsstjóri
TVWAN sem er í eigu írsks farsíma-
fyrirtækis, Digicel. Ég kláraði auð-
vitað að vinna þáttaröðina með
Ævari áður en ég lagði í 32 tíma
ferðalagið frá Íslandi til Papúa
Nýju-Gíneu.“
Aðspurður hve ætlunin sé að
vera lengi ytra svarar Eggert: „Ég
hafði hugsað mér að vera hér
til langframa en með tilkomu
COVID-19 breyttust forsendurnar
nokkuð og stutta svarið við þessari
spurningu er: Ég bara veit það ekki.“
Myndir um loftslagsmál
Eggert starfar nú fyrir Centre for
Social and Creative Media, rann-
sók narsetur við háskólann í
Goroka, bæ á austurhálendi lands-
ins. „Það var kærkomið að koma
hingað eftir dvölina í Port Moresby
sem er að mörgu leyti erfið borg að
búa í vegna glæpa og mikils hita.“
Rannsóknarsetrið vinnur heim-
ildamyndir um loftslagsmál og
eins og nafnið gefur til kynna fleira
sem við kemur þeim sem í landinu
búa. „Þó setrið sé hér við háskólann
ferðumst við mikið í tengslum við
þær myndir sem við vinnum. Það
hefur gefið mér færi á að ferðast um
landið þvert og endilangt og á öllum
hugsanlegum farartækjum, eins og
svokölluðum bananabátum, smáum
og stórum f lugvélum, jeppum,
farþegabifreiðum og fótgangandi
þegar farartæki komast ekki lengra.“
Landinu lokað
Eggert segir Papúa Nýju-Gíneu
vera eitt örfárra ríkja þar sem
COVID-19 hafi ekki breiðst hratt
út. „Það verður þó að hafa í huga
að heilbrigðiskerfið hér er fjársvelt.
Fyrir um einni og hálfri viku var
landinu lokað, það er að öllu flugi til
og frá erlendum áfangastöðum var
hætt og innanlandsflug lagt niður
tveimur dögum seinna.“ Eggert
segir að þannig hafi í raun tekist
að setja alla þjóðina í sóttkví enda
vegasamgöngur á milli landshluta
bágbornar. „Að auki er hér eins
konar útgöngubann og fólk er hvatt
til að vera heima.“
Aðspurður hvort ekki hafi komið
til greina að halda heim segir Eggert
það vissulega hafa komið upp og sé
enn í skoðun. „Það sem setti strik í
reikninginn var það að hér lokaðist
allt og eins og er kemst maður hvorki
lönd né strönd,“ segir Eggert en ætlar
að skoða málið á næstu dögum og
vikum.
Vísindaskáldsagan rætist
Eggert hefur nýverið lokið við
sína fyrstu skáldsögu sem hann
segir virkilega eiga erindi nú þegar
heimsbyggðin stendur á tímamót-
um. „The Banana Garden varð að
vissu leyti til af sjálfu sér. Ég hef
lengi dundað mér við að skrifa
allra handa prósa og leit á þá texta
sem æfingar. Þegar frá leið sá ég svo
að það var samhljómur í þessum
textabrotum og fór að spinna lengri
sögu úr þeim.“ Eggert segist flokka
bókina sem vísindaskáldsögu en í
henni verði heimurinn fyrir gríðar-
legu veðrafári sem setji allt á annan
endann. „Veðravítin eru af völdum
loftslagsbreytinga og allt stjórnkerfi
heimsins fer meira og minna úr
sambandi. Kerfi sem okkur þykja
sjálfsögð hætta að virka og útlitið er
ansi svart.“
En ætli Eggert finni samhljóm
með söguþræðinum og þeirri vá sem
heimsbyggðin stendur nú frammi
fyrir?
„Já, það geri ég. Faraldurinn sem
nú geisar hlýtur að verða til þess
að heimurinn allur verði að skoða
sinn gang; efnahagslega og stjórnar-
farslega, enda viðbrögð ríkisstjórna
margra ríkja mjög ámælisverð. Í
grunninn er þetta það sem skáldsaga
mín fjallar um, að mannkynið þarf
að skilja að við erum öll stödd á
sömu plánetunni og hvort sem okk-
ur líkar það betur eða verr eru örlög
okkar samtvinnuð. Alheims plágan
COVID-19 sýnir það og sannar.
Þessi fyrsta skáldsaga Eggerts
mun koma út á ensku í kilju og
raf bók hjá Olympia Publishing í
London og hóf Eggert söfnun fyrir
útgáfu hennar á Karolina Fund þar
sem styrkjendum býðst að kaupa
bókina fyrir fram. „Þegar þetta
viðtal birtist eru aðeins örfáir dagar
til stefnu á Karolina Fund. Ástæðan
fyrir því að ég fór þá leið að reyna
hópfjármögnun er sú að þar sem
ég er enn óútgefinn höfundur og er
ekki með umboðsmann þarf ég að
taka þátt í kostnaði við útgáfu fyrstu
bókarinnar,“ segir Eggert að lokum
en söfnuninni lýkur þann 10. apríl
næstkomandi.
FARALDURINN SEM NÚ
GEISAR HLÝTUR AÐ VERÐA
TIL ÞESS AÐ HEIMURINN
ALLUR VERÐI AÐ SKOÐA
SINN GANG, EFNAHAGS-
LEGA OG STJÓRNARFARS-
LEGA.
Erum stödd á sömu plánetunni
Eggert Gunnarsson flutti alla leið til Papúa Nýju-Gíneu fyrir fjórum árum til að taka við starfi sjónvarpsstjóra hjá
stöð í eigu írsks farsímafyrirtækis en hefur nú nýlokið við að skrifa vísindaskáldsögu um veðrafár í heiminum.
Eggert fyrir utan Digicel HQ en í baksýn eru gervihnattamóttöku- og sendibúnaður stöðvarinnar.
Eggert er hér ásamt tökumanni sjónvarpsstöðvarinnar TVWAN sem er að
mynda rúgbýleik en rúgbý er mjög vinsæl íþrótt á Papúa Nýju-Gíneu.
Mynd tekin á Goroka Show á síðasta ári, þar kemur fólk hvaðanæva af
landinu saman, dansar þjóðdansa og klæðist hefðbundnum búningum.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð