Fréttablaðið - 04.04.2020, Side 84
Lífið í
vikunni
29.03.20-
04.04.20
PERSÓNUR EIGA
HEIMA Í ÍBÚÐUM SEM
VINIR MÍNIR ÁTTU HEIMA Í OG
ERU AÐ GERA SVIPAÐA HLUTI
OG VIÐ GERÐUM.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
LICATA
sófar og stólar
Ný og glæsileg lína í DORMA.
Sófar, stólar og skammel úr
fallegu og slitsterku áklæði.
Breyttur afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 12–18
Laugardaga kl. 12–18
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
á
do
rm
a.i
s
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
KLIKKAÐU Á VÖRU
OG ÞÚ FERÐ BEINT
INN Í VEFVERSLUN
DORMA.IS
HEIMA ER BEST
tilboðin
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
RÚM 2–13 | Mjúkvara og d
únn 14–17 | Stólar 18–19 | S
ófar 20–29 | Hillur, borð o
g skápar 30–33 | Affari og
smávara 34-42
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Aðeins 187.493 kr.
LICATA
hornsófi
Hornsófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri
tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm
Fullt verð: 249.990 kr.
25%
AFSLÁTTUR
HEIMA ER BEST
TILBOÐ
ALLT Í PLATI
Jóhannes Ásbjörnsson veitinga-
maður bauð ókeypis klósettrúllu
með öllum viðskiptum á Aktu
taktu. Jóhannes segir að mörgum
hafi fundist þetta svo sniðugt að
fáir hafi áttað sig á að um aprílgabb
var að ræða.
STÓRA LITLA PARTÝIÐ
Hljómsveitin Skítamórall sló upp
tónleikum í beinni útsendingu á
RÚV2. Giggið var sent út frá Eld-
borgarsviðinu en fyrirhuguðum
stórtónleikum sem Skítamórall
ætlaði að halda þar hefur verið
frestað til 16. júní.
FANN ÁSTINA Á ÍSLANDI
Ljósmyndarinn Owen Fiene kom til
Íslands ásamt félögum sínum árið
2012 í stutta heimsókn sem svo
átti eftir að breyta gangi lífs hans.
Nú átta árum síðar er hann hér enn,
kvæntur, á dóttur og býr í Vestur-
bænum.
STÍGUR ÚR SKUGGANUM
Rétt tæpum fjórum áratugum
eftir að Björgvin Halldórsson gerði
epísku ballöðuna Vetrarsól ódauð-
lega á plötunni Himinn og jörð
ákvað Krummi sonur hans að gera
atlögu að laginu og taka það sínum
eigin „bluegrass“-tökum.
Þótt Óttar M. Norðfjörð sæt i útgöng uba nni í Barcelona á Spáni heldur hann áfram að dansa f imlega milli bóka og kvikmynda.
Hann hefur átt góðu gengi að fagna
á Netflix undanfarið sem aðalhand-
ritshöfundur glæpaseríunnar The
Valhalla Murders, eða Brot, og fyrir
helgi gaf Forlagið út Dimmuborgir,
nýja glæpasögu sem hann hefur þó
verið með í vinnslu lengi.
„Framleiðslufyrirtækið Mystery
keypti nýlega kvikmyndaréttinn
á bókinni,“ segir Óttar, sem sjálfur
ætlar að skrifa handritið enda ýmsu
vanur þegar kemur að aðlögun eigin
bóka að kvikmyndum.
Órólegar persónur
Dimmuborgir er tíunda skáldsaga
höfundarins sem var sex ár að klára
hana meðal annars vegna þess að
kvikmyndaverkefni, til dæmis Brot,
trufluðu hann við skrifin.
Tafirnar tóku nokkuð á þar sem
persónur bókarinnar vildu síður
sitja þegjandi hjá. „Persónurnar létu
mig ekki í friði í öll þessi ár, þótt ég
hefði engan tíma til að sinna þeim,
og bönkuðu sífellt fastar og fastar á
hurðina til að fá að komast að,“ segir
Óttar um kláðann eftir því að klára
bókina.
„Það var svo í feðraorlofinu mínu
fyrir tæpum tveimur árum sem ég
fékk loksins frið frá bíóverkefnun-
um, allir leikstjórarnir og framleið-
endurnir létu mig í friði, að ég hafði
tíma til að klára loksins bókina.
Forlagið samþykkti að gefa hana út
stuttu síðar og síðan þá hef ég verið
að laga smotterí hér og þar.“
Alvöru innblástur
Óróann má sjálfsagt ekki síst rekja
til þess að Óttar sækir innblástur í
eigin fortíð og raunverulegt eineltis-
mál í grunnskólanum hans, sem er
Háteigsskóli í dag, og endaði mjög
illa.
Óttar segir þolandann hafa verið
strák sem var nokkrum árum eldri
en hann. „Sögusviðið er því mikið
sótt í eigið líf. Persónur eiga heima í
íbúðum sem vinir mínir áttu heima
í og eru að gera svipaða hluti og við
gerðum.“
Óttar bætir við að bókin gerist
á tveimur tímaskeiðum, þó mest
í samtímanum. „En líka að hluta
til fyrir 25 árum, þarna í kringum
Æfingaskólann og Hlíðarnar. Þetta
er samt fyrst og fremst skáldsaga
sem sækir þó talsvert í reynsluheim
sem ég þekki vel.“
toti@frettabladid.is
Friðlausar persónur
Útgöngubann slær rithöfundinn Óttar Norðfjörð ekki út af laginu
þannig að atburðir úr æsku hans bergmála í Dimmuborgum.
Bókmenntarýni berast óvænt upp-
lýsingar um andlát vinar hans fyrir
25 árum og leggst í morðrannsókn.
Óttar hefur verið í eins konar sóttkví í þrjár vikur í Barcelona þar sem hann býr. MYND/ELO VÁZQUEZ
4 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð