Feykir - 07.06.2017, Blaðsíða 10
Öryggismál sjómanna
Viðtal við Auði B. Guðmundsdóttur
Auður um borð í skólaskiipinu Sæbjörgu ásamt Hilmari Snorrasyni skipstjóra og nokkrum nemendum. MYNDIR: VÍS
Auður segir að margar af
stærstu útgerðum landsins séu
með tryggingar hjá VÍS og er
áhersla lögð á forvarnir, auk
þess að bjóða faglega trygg-
ingaráðgjöf. Sem hluta af trygg-
ingaþjónustu er fyrirtækjum í
forvarnarsamstarfi boðið að
taka upp atvikaskráningarforrit
VIÐTAL
Páll Friðriksson
þeim að kostnaðarlausu. „Við
leggjum áherslu á markvissa
skráningu á slysum og næstum
slysum, þannig kortleggjum
við hvar hætturnar liggja.
Forritið, sem við köllum Atvik,
einfaldar og auðveldar skrán-
ingu og einnig geta stjórnendur
með einföldum hætti fengið
góða yfirsýn yfir helstu atvik,
vinnuslys og hættur sem skráð-
ar eru í kerfið. Við vitum að
slysin gera boð á undan sér,“
segir Auður. Hún segir
að sýnilegur árang-
ur sé af þessu
starfi sem
s k i l a r
sér í
Tryggingafélagið VÍS hefur verið í fararbroddi í
öryggismálum sjómanna og m.a. fyrst tryggingafélaga til að
ganga til liðs við Slysavarnarskóla sjómanna og á í góðu
samstarfi við að bæta öryggismenningu hjá þeim útgerðum
sem tryggja hjá því. VÍS hefur gefið skólanum 70
björgunargalla síðustu árin til þjálfunar og æfinga fyrir
nemendur skólans og saman er unnið að því að fyrirbyggja
slys og tjón með öflugri fræðslu, markvissri þjálfun og
miðlun þekkingar. Feykir hafði samband við Auði B.
Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs VÍS,
og forvitnaðist um öryggismál sjómanna og tengsl hennar
við Skagafjörð.
fækkun slysa og tjóna og það sé
allra hagur; starfsmanna, fyrir-
tækja og samfélagsins í heild
sinni. Að huga vel að forvarnar-
og öryggismálum er samfélags-
ábyrgð sem öll fyrirtæki eiga að
tileinka sér. „Það er gaman að
segja frá því að samstarf okkar
við FISK Seafood hefur gengið
feykilega vel og er fyrirtækið
leiðandi fyrirtæki í öryggis-
málum, ekki einungis meðal
sjómanna heldur einnig í
fiskvinnslunni. Það var árið
2014 sem við veittum FISK
Forvarnarverðlaun VÍS fyrir
framúrskarandi árangur í
þessum efnum og er fyrirtækið
gott dæmi um hve miklum
árangri er hægt að ná í þessum
efnum þegar yfirstjórn sýnir
forvörnum og öryggismálum
raunverulegan og sýnilegan
stuðning. Það er horft til
þeirra um hvernig inn-
leiða eigi öfluga öryggis-
menningu um borð í
fiskiskipum og gaman
er að fylgjast með því
hvernig þessi menn-
ing hefur smitað frá
sér til annarra fyrir-
tækja og í raun til
samfélagsins í
heild,“ segir Auður.
Forvarnir skila
árangri
Að sögn Auðar hafa
sjómenn almennt
tekið vel á öryggis-
málum og er sam-
vinnan góð. „Áhersla
okkar er að skapa
öryggismenningu um
borð í skipunum og er
lykilatriði í þeim efnum
að stjórnendur taki virkan
þátt og verði til fyrirmyndar í
þessum málum og sýni gott
fordæmi. Í samstarfi okkar við
Slysavarnarskóla sjómanna hafa
verið haldin sérstök öryggis-
námskeið fyrir áhafnir skipa
sem tryggð eru hjá okkur.
Námskeiðin fara fram um borð
í hverju skipi og þar af leiðandi í
umhverfi sem sjómennirnir
gjörþekkja. Það kemur skip-
verjum oft á óvart hversu margt
má færa til betri vegar, án mik-
illar fyrirhafnar, til að auka
öryggi þeirra. Forvarnir byggja
fyrst og fremst á góðri fræðslu
og markvissri þjálfun því örugg,
rétt og skjót viðbrögð áhafnar
skipta sköpum þegar slys ber að
höndum.“
Hún segir að unnið sé að
forvarnarsamstarfi við fleiri
fyrirtæki á svæðinu eins og með
Kaupfélagi Skagfirðinga og
Vörumiðlun. „Í fyrra tók Stein-
ull hf. á Sauðárkróki á móti
forvarnarverðlaunum VÍS og
ein megináhersla okkar nú í
samstarfi okkar við sveitarfél-
agið Skagafjörð er að efla for-
varnir og vinna að öryggis-
málum íbúum sveitarfélagsins
til heilla. Við höfum náð að efla
öryggisvitund og aðstoða við að
innleiða bætta öryggismenn-
ingu hjá fyrirtækjum í viðskipt-
um við okkur. Þetta skilar sér í
fækkun slysa og tjóna,“ fullyrðir
Auður enda sýnir reynslan að
með öflugu forvarnarsamstarfi
við fyrirtæki tekst ekki aðeins
að efla öryggismál fyrirtækja,
heldur myndast einnig bæði
beinn og óbeinn fjárhagslegur
ávinningur fyrir fyrirtækin og í
raun fyrir samfélagið í heild.
Tengslin við
Skagafjörð
Auður kemur reglulega í Skaga-
fjörðinn þar sem fjölskylda
hennar á lítinn sumarbústað á
Reykjum á Reykjaströnd. Þar
segir Auður dásamlegt að vera
og reynir fjölskyldan að komast
þangað eins oft og tækifærin
leyfa.
„Við njótum náttúrufegurð-
arinnar á Reykjum og úti-
verunnar á svæðinu. Á veturna
förum við á skíði í Tindastól,
veiðum rjúpu í fjalllendinu
okkar þegar rjúpnatímabilið er
og njótum þess að vera í ró og
næði, borða góðan mat og hafa
það kósí. Það er fastur liður í
hverri ferð að fara í sund á
Króknum og fá okkur kaffi og
kruðerí í bakaríinu á eftir.
Bakaríið á Króknum er
uppáhalds bakaríið mitt. Á
sumrin veiðum við silung úr
sjó, förum í göngur um svæðið
og eyðum sem mestum tíma úti
við. Að horfa á sólarlagið við
sjóndeildarhringinn og Drang-
ey getur verið alveg magnað.
Þvílík fegurð fyrirfinnst ekki
víða,“ segir Auður.
Mig langar til að óska
sjómönnum og fjölskyldum
þeirra til hamingju með
sjómannadaginn.
Í auglýsingum frá VÍS
sendum við kveðju að þessu
sinni með táknmáli þeirra.
Þannig bregðum við á leik með
merkjafána sem tákna stafi í
stafrófinu og eru notaðir til að
koma skilaboðum frá skipum.
Við bendum öllum sem vilja
senda sjómönnum kveðju í
tilefni dagsins á að heimsækja
vis.is/sjomenn“ eða að fylgjast
með Facebook síðu VÍS og
senda sjómönnum skemmtileg
skilaboð og kveðju. Til ham-
ingju með daginn sjómenn!
Góð samvinna við
sjómenn tryggir árangur
10 22/2017