Feykir - 23.05.2018, Qupperneq 6
X18 SPURNINGAR TIL ODDVITA : Ragnhildur Haraldsdóttir lögregluþjónn
N-listi Nýs framboðs Húnavatnshreppi
Við erum hópur ungs
fjölskyldufólks með ákveðna
framtíðarsýn á það hvernig við
viljum sjá samfélag Húnavatns-
hrepps þróast á næstu árum og
áratugum.
Hvaða mál eru sett á oddinn
hjá þínu framboði?
-Við viljum sjá að sveitafélagið greiði
niður skólaakstur fyrir leikskólabörn.
Vegna fjarlægðar frá Húnavöllum, hafa
sum börn ekki geta nýtt sér þá frábæru
þjónustu sem leikskólinn á Húnavöllum
hefur upp á að bjóða. Það er ákveðin
þversögn fólgin í því að á sama tíma og
talað er um fækkun barna á Húna-
völlum að þá séu börn sem ekki geti
nýtt sér þjónustuna. Fyrir þá sem búa
hvað lengst frá er tæpur klukku-
stundar akstur aðra leið, að ætla fólki
að keyra fjórar ferðir á dag á ónýtum
vegum er ekki boðlegt. Við hjá
N-listanum viljum árétta það að mörg
börn á leikskólanum nýta sér nú þegar
þjónustu skólabílanna og hefur það
samkvæmt okkar bestu vitund gengið
vel. Hins vegar er staðreyndin sú að
sumir foreldrar borga dágóða upphæð
á einu skólaári fyrir akstur barna sinna
á meðan aðrir fá þessa þjónustu frítt.
Að okkar mati er lítil sanngirni fólgin í
þessu fyrirkomulagi.
N-listinn vill að byggt verði húsnæði
á Húnavöllum, bæði til kaups og leigu.
Mikill húsnæðisskortur er á svæðinu
og væri þetta einn liður í því að snúa
við neikvæðri íbúaþróun í sveitar-
félaginu. Teljum við þetta vera langtíma
fjárfestingu sem geti gefið af sér
fjölmennara og sterkara samfélag.
Viljum við að sveitafélagið sjái til
þess að bændur geti losað sig við
dauðar skepnur í hrægáma, enda með
öllu óheimilt að urða hræ í heimalandi.
Myndarlega hefur verið staðið að
þessum málum í Skagafirði og viljum
við geta veitt íbúum Húnavatnshrepps
samskonar þjónustu.
N-listinn vill auka félagslega þjón-
ustu við aldraða, öryrkja og þá sem
stríða við tímabundna erfiðleika.
Myndum við vilja sjá aukna heima-
þjónustu og jafnvel geta boðið fólki upp
á heimsendingu á mat.
Hver er helsta áskorunin sem þitt
sveitarfélag stendur frammi fyrir?
-Okkar helsta áskorun sem samfélagið
stendur frammi fyrir í dag er fólks-
fækkun. Börnum í Húnavallaskóla
fækkar, samfélagið verður eldra og
framleiðni verður minni. Hér þarf að
sýna kjark og grípa til aðgerða ekki
eingöngu í orði heldur líka í verki. Við
þurfum að gera Húnavatnshrepp að
aðlaðandi kosti fyrir ungt fjölskyldufólk,
svo það vilji setjast hér að, stunda
atvinnu og ala hér upp börn, með því
myndum við getað styrkt stöðu grunn-
og leikskóla á svæðinu.Tækifærin í
Húnavatnshreppi eru við hvert fótmál.
Hér höfum við mikil náttúrugæði,
stórar og grasmiklar jarðir ásamt
mörgum sögufrægum stöðum. Nýta
þarf hvoru tveggja til að stuðla að
aukinni verðmætasköpun í þessu litla
en víðfeðma samfélagi. Bæði á sviði
ferðaþjónustunnar en ekki síður til að
bæta okkar aðal lifibrauð, landbúnað-
inn.
Af hverju ætti fólk
að kjósa þinn flokk?
-Af því að við erum fólk sem búum
yfir kjarki, dug og áræðni og höfum
ákveðnar hugmyndir um það hvernig
megi gera gott samfélag að betra
samfélagi. Uppbygging og breytingar
taka tíma og kosta peninga en hins-
vegar teljum við það dýrast fyrir
samfélagið að sitja með hendur í skauti
án aðgerða.
X18 SPURNINGAR TIL ODDVITA : Guðmundur Egill Erlendsson lögfræðingur
Ð-listinn, Við öll Skagaströnd
Ð-listinn, Við Öll, er breiður hópur
einstaklinga á Skagaströnd með
fjölbreytta menntun og margvíslega
reynslu í farteskinu. Hluti listans var í
framboði til sveitarstjórnarkosninga
árið 2014 og náði þá inn tveimur
mönnum af fimm í sveitarstjórn.
Reynslan sem af því hlaust að sitja í
minnihluta hefur brýnt enn meira
vilja þeirra sem að framboðinu
standa, til verka sem gagnast
samfélaginu öllu.
Hvaða mál eru sett á oddinn
hjá þínu framboði?
-Skagaströnd stendur á tímamótum og
þrátt fyrir að ákjósanlegast væri að fara
fram með jákvæðnina eina að vopni
inn í kosningarnar er rétt að benda á að
raunsæi þarf að haldast í hendur við
hana. Það eru allmargir þættir sem vel
eru gerðir á Skagaströnd, inntaka barna
á leikskóla við 9 mánaða aldur,
menntunarstig frábærra kennara á
báðum skólastigum er mjög gott, það
hvað íbúum þykir svo raunverulega
vænt um bæinn sinn er líka jákvæður
þáttur svo fátt eitt sé upp talið.
En á síðustu 20 árum hefur íbúum
fækkað um tæp 25%, fyrirtæki hafa lagt
upp laupana í tugavís og störf hafa
tapast, fólk gefst upp og fer þegar
samfélagið verður fyrir svona blóðtöku.
Hver og einn einstaklingur skiptir svo
óendalega miklu máli að rödd þeirra
allra verður að fá að heyrast. Það er
mikilvægt að ábyrgð sveitarstjórnar sé
miklu meiri en þeir eru tilbúnir að axla
og viðurkenna og það er líka
nauðsynlegt að þessari þróun verði
snúið við. Hver og einn skiptir máli í
samfélaginu okkar.
Hver er helsta áskorunin sem þitt
sveitarfélag stendur frammi fyrir?
-Áherslur framboðsins eru í reynd
fjórþættar; atvinnumálum verður að
sinna og skapa þarf störf í sveitarfélag-
inu sem bæði sinna þörfum núverandi
íbúa en laða líka að nýtt blóð.
Umhverfismál hafa líka setið lengi á
hakanum hjá núverandi meirihluta og
nefna má helst að fráveitumál eru í
fullkomnum ólestri, skólamálin eru í
örum vexti upp á við en það vantar
skýra framtíðarsýn um í hvaða farvegi
því starfi verður áfram haldið. Síðast en
ekki síst er stjórnsýsla sveitarfélags-
ins ekki í takt við nútíma áherslur,
gagnsæi ákvarðana er lítið sem ekkert,
fagnefndir hafa verið sniðgengnar og
mikilvægar ákvarðanir eru teknar í
kyrrþey og án aðkomu íbúa sem hafa
allir ríkra hagsmuna að gæta og síðast
en ekki síst er aðgengi að fundum
sveitarstjórnar bágborið og upplýs-
ingaflæði um verk sveitarstjórnar í litlu
betra ástandi. Þessu þarf að breyta
strax.
Af hverju ætti fólk
að kjósa þinn flokk?
-Með því að veita Ð-listanum brautar-
gengi í kosningum eru kjósendur að
vakna upp af andvaraleysi og doða sem
gæti orðið samfélaginu að fjörtjóni.
Ð-listinn mun ekki unna sér hvíldar
fyrr en þessari þróun verður snúið við.
Henni verður ekki snúið við nema með
því að virkja alla bæjarbúa til góðra
verka, leggja öll spilin á borðið og leyfa
öllum að láta rödd sína heyrast og hafa
áhrif á framtíð Skagastrandar. Ð-listinn
hyggst blása til löngu tímabærrar
stórsóknar í atvinnumálum með
stuðningi allra bæjarbúa og í sátt.
Ð-listinn hyggst enn fremur tryggja
það að allar raddir heyrist, óháð því
hvaðan þær raddir koma með því að
virkja alla bæjarbúa til góðra verka og
ganga fram með góðu fordæmi.
6 20/2018