Feykir - 23.05.2018, Blaðsíða 19
175 g púðursykur
200 g smjör (mjúkt og
skorið í litla bita)
Fylling:
3 epli
50 g púðursykur
1 msk hveiti
kanill eftir smekk
lúku af möndluflögum dreift
yfir kökuna áður en hún
fer í ofninn
Aðferð: Stillið ofninn á 180 gráður.
Blandið saman sykri og hveiti og
blandið síðan smjörbitunum smátt
og smátt saman við með höndu-
num. Flysjið eplin, kjarnhreinsið,
skerið í litla bita og setjið í skál.
Blandið púðursykri, hveiti og kanil
saman við og hrærið. Setjið epla-
fyllinguna í 24 cm ofnfast form og
dreifið mylsnunni yfir. Bakið í 45-
50 mínútur.
Vanillusósa:
½ vanillustöng
3 dl mjólk
1½ dl rjómi
1 dl sykur
½ msk kartöflumjöl með 1 msk
mjólk
1 eggjarauða
Aðferð: Skerið vanillustöngina í
tvennt og skrapið vanillukornin
úr henni. Hitið mjólkina, rjóm-
ann, vanilluna og sykurinn varlega
á pönnu og hrærið í á meðan.
Lækkið hitann og leyfið þessu að
malla á meðan mjólkin er að taka
í sig vanillubragðið. Blandið
kartöflumjölinu saman við 1 msk
af mjólk, bætið út í og hitið
blönduna upp að suðu. Takið af
hitanum um leið og suðan fer að
koma upp. Bætið eggjarauðunni
saman við og pískið vel saman
þangað til sósan fer að kólna.
Berið fram með vanillusósu og ís.
Verði ykkur að góðu!
Ég skora á Evu Maríu Sveinsdóttur
og Björn Magnús Árnason að taka
við.
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS: Hlýri
Feykir spyr...
Hvað borðar
þú lambakjöt
oft í viku að
meðaltali?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Svona ca tvisvar.“
Albert Hansson
„Ég borða lambakét að minnsta
kosti tvisvar í viku og þá
í hakk formi eða söltu.“
Sædís Rós Alfsdóttir
„Einu sinni til þrisvar
í viku.“
Indriði Ragnar Grétarsson
„Ég borða mjög sjaldan
lambakjöt, kannski einu sinni
í viku að meðaltali.“
Saga Sjöfn Ragnarsdóttir
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Lýðræði er ekki bara kosningar, það er daglegt líf okkar..
– Tsai Ing-wen
Þorgerður Eva Þórhallsdóttir er ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði, sund-
þjálfari hjá Tindastóli og svæða og viðbragðsfræðingur hjáverk-
um. Hún segist vera fædd og uppalin á Sauðárkróki þar sem hún
býr enn, vera einstæð móðir og eiga tvö yndisleg börn, Sigrúnu
Þóru sem er á öðru ári í Menntaskólanum á Akureyri og Sindra Snæ
ellefu ára
„Ég hef alltaf haft gaman af að elda og á erfitt með að fylgja
uppskrift en hér koma tvær góðar,“ segir Þorgerður en hún býður
upp á fiskibollur með bleikri sósu og íslenskum jurtum og eplaköku
með vanillusósu og ís á eftir.
AÐALRÉTTUR
Fiskibollurnar
hennar Halldóru
með bleikri sósu og
íslenskum jurtum
600 g ýsa eða þorskur
1-2 laukar
2 egg
1 dl hveiti
1 tsk salt og pipar
2 tsk lyftiduft
2 msk kartöflumjöl
2 msk fiskikrydd
1 msk aromat
(engin mjólk)
Aðferð: Fiskurinn er settur í
matvinnsluvélina ásamt eggjum,
lauk, kartöflumjöli, hveiti og
kryddum. Þetta er maukað saman
þangað til er komin falleg áferð á
deigið. Bollur eru mótaðar með
matskeið og steiktar á pönnu upp
úr olíu og smjöri. Þegar kominn er
fallegur litur set ég þær í eldfast
mót á um það bil 180 gráður inn í
ofn á meðan ég bý til heita
tómatsósu.
Heit tómatsósa:
150 g smjörlíki
2-3 msk púðursykur
3-4 msk tómatsósa
3 dl rjómi
Aðferð: Smjörlíki og púðursykur
brætt í potti, tómatsósu bætt við og
látið krauma smá og rjómanum
hellt út í. Borið fram með
fiskibollum, hrísgrjónum og
íslenskum jurtum; ólafssúrum,
hundasúrum, maríustakki.
EFTIRRÉTTUR
Eplakaka með
vanillusósu og ís
Mylsnan:
300 g hveiti
Sudoku
Fiskibollur með bleikri
sósu og eplakaka
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Þorgerður Eva á Sauðárkróki
Frá vinstri: Þorgerður Eva, Sindri Snær og Sigrún. MYND ÚR EINKASAFNI
20/2018 19
Ótrúlegt – en kannski satt..
Íslendingar fengu fyrst kosningarétt með tilskipun sem Kristján 8.
Danakonungur gaf út 8. mars 1843 og var hann bundinn því að
menn væru orðnir 25 ára, hefðu óflekkað mannorð og ættu að
minnsta kosti 10 hundraða jörð eða múr- eða timburhús í kaupstað
sem metið væri á að minnsta kosti 1000 ríkisdali eða hefðu
lífstíðarábúð á 20 hundraða jörð. Ótrúlegt, en kannski satt, höfðu
karlmenn einir kosningarétt.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Ég á sjálfur systkini.
Sækist eftir kræklingi.
Tengdi skaft við hrífuhaus.
Hindra að flíkin skrolli laus.
FEYKIFÍN AFÞREYING