Feykir - 23.05.2018, Side 7
X18 SPURNINGAR TIL ODDVITA : Guðmundur Haukur Jakobsson bæjarfulltrúi og atvinnurekandi
L-listi fólksins Blönduósi
L-listinn á Blönduósi býður nú fram í
3. skipti til sveitarstjórnarkosninga.
Listinn hefur undanfarin átta ár unnið
ötullega að málefnum samfélagsins
og hefur hug á því að halda áfram á
þeirri braut. Listann skipar fjöl-
breyttur hópur fólks sem á það
sameiginlegt að hafa brennandi
áhuga á málefnum sveitarfélagsins
og hagsmunum íbúanna.
Hvaða mál eru sett á oddinn
hjá þínu framboði?
-Fyrst og fremst eru það atvinnu- og
húsnæðismálin. En við viljum leggja
áherslu á að skapa atvinnulífinu
aðstæður til að þróast og dafna og
koma á fót atvinnumálanefnd. Þá þarf
að fjölga byggingarlóðum og auka
hvata til nýbygginga. Þá eru
æskulýðsmál ofarlega á blaði en þar
viljum við taka upp heilsustefnu í bæði
leik- og grunnskóla með það að
markmiði að bæta heilsu og vellíðan
nemenda og starfsmanna. Þá er stefnt
að því að flytja félagsmiðstöðina
Skjólið á nýjan stað með áherslu á bætt
aðgengi sem og að auka afþreyingu á
svæðinu bæði fyrir heima- og
ferðamenn.
Að lokum leggjum við áherslu á að
auka gagnsæi innan stjórnsýslunnar og
auka aðkomu íbúanna að stefnumótun,
hugmyndavinnu og ákvarðanatöku
innan stjórnsýslunnar sem og að standa
vörð um hagsmuni íbúanna hvað
varðar heilbrigðisþjónustu, löggæslu og
slökkvilið.
Hver er helsta áskorunin sem þitt
sveitarfélag stendur frammi fyrir?
Helstu áskoranir sveitarfélagsins um
þessar mundir er skortur á húsnæði og
atvinnumál. Skortur er á íbúðarhúsnæði
sem og iðnaðarhúsnæði. Nú þegar er
búið að úthluta lóðum undir hvort
tveggja og er það vel. Hins vegar er
mikilvægt að auka lóðaframboð og
hvata til að stuðla enn frekar að aukinni
uppbyggingu á svæðinu.
Þá eru atvinnumálin að sjálfsögðu
grunnforsenda búsetu á svæðinu og því
verður að leita leiða til að skapa
atvinnulífinu ákjósanlegar aðstæður. Á
þessu kjörtímabili hefur sveitarfélagið
lagt grunn að gagnaversframkvæmd-
um og er tilbúið til að takast á við slíkt
verkefni ef svo ber undir.
Af hverju ætti fólk
að kjósa þinn flokk?
-L-listinn hefur undanfarin átta ár
staðið að mikilli uppbyggingu innan
sveitarfélagsins og hefur áhuga á að
halda því áfram. Listinn samanstendur
af mjög fjölbreyttum og drífandi hópi
einstaklinga með ólíkan bakgrunn og
reynslu sem er tilbúið að takast á við
verkefni sveitarfélagsins. Um er að
ræða kraftmikið fólk sem vill leggja sitt
af mörkum til að gera gott samfélag enn
betra. Listinn hefur undanfarin ár sýnt
vilja sinn í verki og vill halda áfram að
koma góðum hugmyndum og
verkefnum í verk.
X18 AUGLÝSING FRÁ V-LISTA Í SKAGAFIRÐI
Vinstri grænir og óháðir
Fyrir fólkið í firðinum
Það er gott að búa í Skagafirði,
fjölbreytt mannlíf, einstæð
náttúra og sagan við hvert fótmál.
Við eigum að gera samfélagið okkar
þannig úr garði að hér sé umfram allt
gott að lifa í hversdagsleikanum. Það
gerum við með því að leggja áherslu á
að grunnþjónustan sé góð og verðlagi á
henni stillt í hóf. Margt er nú þegar gott,
en ennþá má ýmislegt bæta. Við njótum
nú þess uppgangs sem er í samfélaginu
með mörgum hætti, m.a. í auknum
tekjum sveitarfélagsins. Við eigum að
nýta styrk þess til að byggja upp
blómlega byggð um allt héraðið með
góðri þjónustu og fjölskylduvænu
samfélagi. Til þess þurfa leikskólagjöld
að lækka, þau eru orðin með þeim
hæstu á landinu, eftir að hafa verið
lægst við upphaf kjörtímabilsins.
Sömuleiðis þurfa foreldrar að greiða of
mikið fyrir skólamáltíðir. Leysa þarf
dagvistunarmál í öllu héraðinu, þau eru
í uppnámi. Húsnæðisvandi leikskól-
anna er ekki nýr af nálinni. Það er
einkennilegt að það sé ekki búið að
leysa þessi mál þegar á sama tíma er
hægt að keyra sum önnur mál í
framkvæmdir á miklum hraða.
Við getum verið stolt af grunn-
skólunum okkar sem eru sérlega vel
mannaðir og standa í fremstu röð hvað
breytta kennsluhætti varðar. En
mannauðurinn innan skólanna, bæði
starfsfólk og nemendur, þarf betri
vinnuaðstöðu sem þýðir endurbætur á
skólahúsnæði á öllum stöðum. Að auki
þarf að byggja upp íþróttaaðstöðu utan
póstnúmers 550.
Að geta elst í sinni heimabyggð
og fá unga fólkið aftur heim
Þjónustu við eldra fólk þarf að bæta því
víða til sveita er lítil sem engin þjónusta.
Á sömu stöðum er þörf á að fjölga
störfum. Það getur því farið vel saman
að matar-, og heimaþjónustu við eldra
fólk sé sinnt af heimamönnum á
hverjum stað.
Við ættum að reyna allt til að fólk
geti elst í sinni heimabyggð, sé það ósk
viðkomandi. Þess vegna er mikilvægt að
eldra fólk eigi kost á sjúkraþjálfun
heima hjá sér og bættri aðhlynningu
almennt.
Við viljum líka að ungt fólk geti
komið aftur heim. Til þess þarf að skapa
fleiri tækifæri til fjölbreyttra starfa og
búsetu með auknu framboði á húsnæði
og auðvelda uppbyggingu þess. Fjölga
þarf lóðum og sveitarfélagið þarf að
auglýsa störf. Það þarf að efla þétt-
býliskjarna um allt héraðið með
sambærilegri og góðri þjónustu eins og
við verður komið.
Við viljum verða hluti af heilsu-
eflandi samfélagi, þar sem áhersla er
lögð á gott mataræði á leik- og
grunnskólum og fleiri vinnustöðum,
ásamt hreyfingu, með fleiri göngu- og
hjólastígum, leikvöllum og útivistar-
svæðum. Það fellur vel að þessari
heilsueflandi hugsun að stefna á
styttingu vinnuvikunnar á vinnustöð-
um sveitarfélagsins. Tilvalið væri að
byrja á leikskólum Skagafjarðar.
Við höfum talað fyrir hækkun
hvatapeninga strax upp í 30 þúsund og
um leið tryggja að þessi hækkun skili
sér til heimilanna, en fari ekki beint í
hækkun gjalda á þeirri afþreyingu sem
hvatapeningar greiða niður. Áfram þarf
að tryggja öflugt félags-, tómstunda-,
tónlistar- og íþróttastarf um allan
fjörðinn, það er aldrei ofsagt að þetta er
besta forvörnin fyrir börnin okkar. Við
viljum ekki eingöngu hafa orðið
'fjölskylduvænt samfélag’ á blaði, heldur
í raunverulegum forgangi.
Skagafjörður er víðfemur með
fjölbreyttu atvinnulífi. Þær atvinnu-
greinar þarf allar að styrkja, ekki síst
landbúnað og smábátaútgerð en þar
hefur verið á brattann að sækja. Hægt er
að greiða leið bænda til að vinna sínar
afurðir og selja beint frá býli og standa
með þeim í sinni hagsmunabaráttu og
hvað smábátaútgerð varðar þarf að
sækja sértækan byggðakvóta. Einnig
þarf að tryggja friðun Skagafjarðar fyrir
dragnótaveiðum.
Við viljum jafnræði til atvinnu-
uppbyggingar en það kom einmitt fram
í íbúakönnun Vífils Karlsonar nýverið
að hér er óánægja með möguleika á að
koma upp eigin atvinnurekstri. Því þarf
að breyta. Ekki einungis þarf að styðja
við nýsköpun og frumkvöðlastarf,
heldur þarf að tryggja að samkeppnis-
skilyrði fyrirtækja séu jöfn.
Opin stjórnsýsla og íbúalýðræði
Samfara þessu öllu viljum við opna
stjórnsýsluna. Hafa hana gegnsærri.
Opin stjórnsýsla örvar pólitíska og
samfélagslega þátttöku íbúa, styrkir
lýðræðið. Verkferlar verða að vera
skýrir og aðgengilegir. Íbúafundir,
þarfagreining og undirbúningsvinna
ásamt staðbundnu lýðræði. Það er ekki
bara mikilvægasta undirstaða fram-
kvæmda og breytinga heldur grund-
völlur þess að framkvæmdin heppnist
vel og verði árangursrík. Íbúar á
hverjum stað eru sérfræðingar í
nærumhverfi sínu, samráð við þá
stuðlar að vandaðri ákvörðunartöku
byggðri á réttum þekkingargrunni. Allir
eiga að hafa val um virka þátttöku í
ákvörðunum sem varða okkur öll.
Með réttri forgangsröðun er hægt að
framkvæma það sem hér er talið upp.
Með opinni stjórnsýslu, meira
gegnsæi og staðbundnu íbúalýðræði
verður forgangsröðun önnur og betri en
hún er í dag. Aðhald verður meira og
þannig verða til peningar í þau verkefni
sem skipta heimafólk máli. Að minnsta
kosti ef meirihluta fráfarandi sveitar-
stjórnar tekst ekki að leggja fjötra
leyndra langtíma fjárhagsskuldbind-
inga á samfélagið okkar vegna stuðnings
við eitt einkafyrirtæki, sem binda
hendur næstu sveitarstjórna.
Gerum samfélagið okkar þannig að
hversdagsleiki fólks sé ánægjulegur.
Með góðri grunnþjónustu, með því að
stilla gjöldum í hóf, hugsa vel um eldra
fólk, með raunverulega fjölskylduvænni
stefnu, þá verður Skagafjörður enn
eftirsóknarverðari, bæði fyrir gesti og
heimamenn, en ekki síst sem fram-
tíðarheimili unga fólksins okkar.
Við biðjum um ykkar stuðning til að
fylgja þessum hugmyndum eftir í verki.
Framboðslisti VÓ –
Vinstri Græn og Óháð Skagafirði.
20/2018 7