Feykir - 19.12.2018, Qupperneq 8
8 48/2018
Miðapantanir
í síma 855 5216
Fylgist með okkur
á Facebook
Jólakveðja
Sendum bíógestum nær og fjær
bestu óskir um gleðileg jól
og gott og farsælt nýtt Bíó ár.
Guðbrandur, Sigurbjörn, Bára,
Helga og bíókrakkarnir.
Sendum öllum Skagfirðingum,
Húnvetningum og nærsveitafólki
okkar bestu óskir um gleðileg jól
og farsæld á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Starfsfólk
Vinnuvéla Símonar
Vinnuvélar Símonar ehf. 550 Sauðárkrókur . Dalatún 8 . Sími 893 7413
má svo gleyma fjölskyldu
þátttakenda, en oft er
þetta fjölskyldufólk sem er
að heiman í ágætis tíma
á meðan á æfingum og
sýningum stendur.
En það er meira en
þátttakendur sem þarf til að
halda uppi leiklistarstarfsemi,
til að mynda gott húsnæði
og ýmsan tæknilegan búnað.
Eftir sameininguna varð til
fjármagn til að endurnýja
ljósabúnað Félagsheimilisins
á Hvammstanga og var
sá búnaður vígður aðra
helgina í desember
þegar fjölskylduleikritið
Snædrottningin eftir H.C.
Andersen var sýnt. Gaman
að segja frá því að meira
en helmingur þátttakenda
voru krakkar úr Grunnskóla
Húnaþings vestra.
Næstu skref leikflokksins er
uppsetning á söngleiknum
Hárið næstu páska og er
undirbúningur þegar hafinn.
- - - - - -
Ég skora á
Þóreyju Eddu Elísdóttur
sem næsta penna.
Sem barn skoðaði ég oft
myndaalbúm foreldra minna
sem innihéldu m.a. myndir
af föður mínum að taka
þátt í leiklistarstarfsemi hjá
ungmennafélaginu Gretti á
Laugarbakka. Sú starfsemi
var ekki í gangi á þeim
tíma og það var ekki fyrr en
áratug seinna sem hún var
endurvakin eftir 22 ára hlé.
Ég bjó þá í Reykjavík
og fékk þá hugdettu að
endurvekja leikfélagið og
ræddi við meðstjórnendur
mína í ungmennafélaginu.
Það var tekið vel í þessa
hugmynd og ákveðið að
setja upp gamanleikritið
Frænka Charlie‘s en hafði
það áður verið sett upp
af félaginu árið 1969.
Síðan eru liðin 14 ár, fimm
sýningar að baki og félagið
að fara í tvær uppsetningar
á þessu leikári en nú í
samfloti með Leikflokknum
á Hvammstanga en ákváðu
félögin að sameinast í haust
undir nafninu Leikflokkur
Húnaþings vestra.
Ég hef stundum velt því fyrir
mér hvað það er sem drífur
mann áfram í sjálfboðavinnu
eins og þessari. Ég held
að það sem fékk mig til að
byrja var saga félagsins,
skoðandi myndir úr
starfsemi félagsins síðustu
áratugi, hugsandi að þetta
hljótum við að geta gert í
dag eins og fyrir 80 árum
síðan. Félagsskapurinn, að
skemmta sveitungum og
öðrum og síðast en ekki síst
sjálfum sér. Fjárhagslega séð
er markmiðið að sýningin
borgi sig sjálf, en auðvitað er
það mikill kostur að sýningin
komi út með smá auka aur
svo að hægt sé að gera
gott fyrir þátttakendur eftir
framlag sitt síðustu vikur og
mánuði, tala nú ekki um
kaup á búnaði og öðru fyrir
starfsemina.
Eftir samstarf ofangreindra
félaga árið 2016 með
uppsetningu á rokkóperunni
Súperstar varð manni
ljóst að þetta gat orðið að
reglulegum viðburði, þótt
stór væri í sniðum, og í stað
þess að fara aftur í samstarf
að þá væri alveg eins gott
að sameina félögin og efla
starfsemina í leiðinni. Við
erum líka svo heppin að
þurfa ekki að leita út fyrir
svæðið að fólki, alveg sama
um hvaða hlutverk innan
leiklistarinnar er að ræða.
Leikstjórar, tónlistarfólk,
áhugaleikarar, hljóð- og
ljósamenn, förðun og hár,
smiðir og klæðskerar,
allt er þetta til staðar hér
í Húnaþingi vestra. Ekki
ÁSKORENDAPENNINN
Ingibjörg Jónsdóttir Syðsta-Ósi
Lífið er list
UMSJÓN
palli@feykir.is
Ingibjörg Jónsdóttir.
MYND ÚR EINKASAFNI
Afgreiðslan er opin mánudag til föstudags
frá kl. 8:00 til 17:00
Óskum starfsfólki okkar
og viðskiptavinum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári