Feykir - 19.12.2018, Blaðsíða 20
20 48/2018
fangið þitt þegar þú varst
krakki? Rugguhesturinn
minn.
Besti ilmurinn? Hross, hey og
nýbakað brauð.
Hver var uppáhaldstónlistin
þín þegar þú varst u.þ.b. 17
ára? Sinéad O´Connor, Billy
Idol, Pet Shop Boys, Depeche
Mode, A-ha og ýmislegt sem
var í tísku í þýskum tónlistar-
heimi.
Hvernig slakarðu á? Með
því að syngja, fara í reiðtúr
eða taka myndir. Svo er gott
að setjast niður með glas af
rauðvíni, kveikja á kertum og
lesa.
Hverju missirðu helst ekki
af í sjónvarpinu? Landinn og
glæpamyndir.
Besta bíómyndin? Þessu er
erfitt að svara. Ég hef farið
u.þ.b. tíu sinnum í bíó síðan
ég flutti til Íslands. Myndir
sem ég man eftir fyrir löngu
síðan eru hryllingsmyndin Pet
Cemetery eftir Steven King en
sennilega var Go Trabi Go í
uppáhaldi, sérlega skemmtileg
mynd um austurþýska fjöl-
skyldu sem ferðaðist til Ítalíu
á Trabantinum sínum.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Að
syngja í sturtu.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Folaldagúllas.
Hvernig er eggið best? Nýtt
og mjúkt ef soðið, gjarnan
með sinnepsósu. Annars
spælt.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu? Óþolinmæði.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Seinlæti.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Hver er elsta minningin
sem þú átt? Komin á hestbak
á dráttarhest hjá afa. Ég var
örugglega ekki eldri en tveggja
ára.
Hver er uppáhalds bókin
þín og/eða rithöfundur?
Ég á margar bækur en bind
mig ekki við neinn ákveðinn
rithöfund. Finnst margt vert
að lesa, allt á milli Grágásar
og nýjustu bókarinnar hennar
Yrsu.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Í alvöru?
Ef þú gætir farið til baka
í tímann, hvert færirðu?
Ég hugsa að ég færi aftur
á landnámsöld að fylgjast
með Lýtingi setjast að á
Lýtingsstöðum. Það væri
áhugavert að sjá hvernig allt
leit út á þessum tíma.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Þessi spurning veldur
mér heilabrotum en ég mun
komast að því þegar ég gef út
ævisögunna mína.
Ef þú gætir hoppað upp
í flugvél og réðir hvert
hún færi, þá færirðu... til
Mongólíu í hestaferð en með
stop over í Þýskalandi.
Hvernig nemandi varstu? Sá
besti.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Játn-
ingin hjá biskupnum sem
fermdi mig og hina krakkana.
Ég er sko kaþólsk.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór? Kokkur,
snyrtifræðingur, sjóntækja-
fræðingur, leikskólakennari
og rithöfundur. Ég hef örugg-
lega gleymt einhverju.
Hvert var uppáhalds leik-
NAFN: Evelyn Ýr.
ÁRGANGUR: 1973.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Sveini Kunningja á Lýtingsstöðum, við
eigum saman eðaleintakið hann Júlíus Guðna.
BÚSETA: Bý á Lýtingsstöðum í Lýtingsstaðarhreppi hinum
forna.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er fædd og uppalin
í Austur-Þýskalandi og sjálfkjörinn Lýtingur síðan
1995. Ég er eina dóttir foreldra minna og á tvo bræður
sitthvoru megin við mig. Mamma vann við bókhald í
keramikverksmiðju áður en hún stofnaði ferðaskrif-
stofu um leið og múrinn féll. Pabbi vann sem verk-
fræðingur í kjarnorkustöð áður en hann fór að vinna á
ferðaskrifstofunni hennar mömmu.
STARF / NÁM: Ferðaþjónustubóndi og bóndakona, húsmóðir
með mastersgráðu í menningarfræði, leiðsögumaður og
stundakennari í ferðamálum í Háskólanum á Hólum
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Það er kominn vetur og ég fer í hvíld – eða
þannig.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Evelyn Ýr