Feykir


Feykir - 19.12.2018, Page 23

Feykir - 19.12.2018, Page 23
48/2018 23 Menn þurfa að girða sig í brók og fara að vinna betur saman Völvuspá 2019 – Frá Spákonuhofinu á Skagaströnd Landsmálin Nú standa menn á Alþingi frammi fyrir erfiðleikum sem virðast óyfirstíganlegir en brátt rætist úr, mál leysast betur en búist var við og allir hafa lært sína lexíu. Sólin er rísandi en þó ber skugga á því veikindi eða aðrir erfiðleikar koma upp innan þingliðs. Fjármálaklúður virðist koma upp á fyrri hluta árs og kemur fólki í opna skjöldu. Aðstæður breytast og fólk ætti að halda vel um sitt og ekki taka óþarfa áhættu. Atvinna minnkar og skærur verða á vinnumarkaði. Nú ríður á að skynsemin ráði og að því kemur. Þær kröfur sem fram koma ná ekki brautargengi og því er hætt við að einhver telji sig bera skarðan hlut frá borði. Ríkistjórnin horfir fram á strembna tíð. Forsætisráðherra á í erfiðleikum með eigin liðsmenn en stjórnin heldur þó áfram að tóra. Þeir stjórnmálamenn sem hafa nú farið í leyfi, munu ekki mæta í náinni framtíð og fleira miður skemmtilegt er tengist hinu háa Alþingi mun koma á daginn, minnist orðanna: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum. En forðist máls- háttinn: Svo skal böl bæta, að benda á annað verra. Það er betra að skynsemin fái að ráða á stjórnarheimilinu. MYND: FE UMSJÓN Páll Friðriksson menn ættu að gæta orða sinna svo sannarlega í hámæli þessa dagana. Ríkisstjórnin hélt velli, eins og spáð var en mikill gustur var um menn og málefni. Fram kom í spánni að aðrar þjóðir sæktust í auknu mæli eftir gæðum landsins okkar og það kom á daginn að sala á bújörðum og umræður um orku landsins voru áberandi á árinu. „Margt fleira gekk eftir, annað greinilega eitthvað mistúlkað hjá okkur. En veðurspáin er greinilega alveg í samræmi við það sem við spáðum þ.e.s. fyrir okkar svæði hér Strandir og Norðurland vestra. Þess verður ekki langt að bíða að við tökum yfir veðurstofuna,“ segja spákonurnar sem hér leggja spilin á borðið í orðsins fyllstu merkingu. Enn á ný lögðust spákonurnar í Spákonuhofinu undir feld og kíktu í spil, köstuðu völum, rýndu í rúnir og kaffibolla. Spáin fyrir árið 2018 gekk að nokkru leyti eftir, og eru varnarorð þau er höfð voru um að Ráðherrar Nú tókum við upp norrænu goðafræðispilin okkar og dróg- um spil fyrir ráðherra, hvern fyrir sig til að sjá hvernig þeim farnast á árinu. Katrín, forsætisráðherra fékk Rindur, Gjallarbrú og Sigyn. Auðvitað stendur forsætisráð- herra mjög oft frammi fyrir stórri ákvörðun í sínum störfum en það er eitthvað mikið og mjög stórt sem hún Kata stendur frammi fyrir. En traust er hún sínu samstarfsfólki og svíkur ekki. Þarna þarf hún að ákveða hvaða götu hún ætlar að ganga og það verður ekki endilega auðveldasta leiðin sem hún velur. Hjá Bjarna Ben, fjármálaráð- herra, komu upp Irminn, Þór og Heldreginn. Það mun reyna mikið á Bjarna og upp koma óvænt atvik honum tengd, en hann þarf að sýna stillingu þó að að honum sé vegið. Þetta vekur upp hjá honum mikla reiði og það er eins og hann sé hafður fyrir rangri sök. Erfitt ár framundan hjá honum. Sigurður Ingi, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, þar birtust Ganglatur, Hnoss og Loki. Hann kemur áfram mál- um sem tengjast samgöngu- málum er hafa tekið allt of langan tíma, það veldur miklum deilum og snýst upp í andhverfu sína. Lítur vel út í byrjun, en verður ekki farsælt. Ásmundur Einar, félags- og jafnréttismálaráðherra, aldeilis góð spil sem hann hlaut, Gefjun, Darri og Frygg. Hann mun sýna kjark og þor í máli sem orkar tvímælis en verður til mikilla framfara þegar frá líður. Fyrir Guðlaug Þór, utanríkis- ráðherra komu upp spilin. Erna, Mímir, Naglfari. Guðlaugur vill vera allra vinur. Hann er klókur í samskiptum en ætti að fara varlega í þessum utanlands- ferðum sínum, þær geta verið varhugaverðar. Sigríður Andersen, dóms- málaráðherra, dröslast með mál fortíðar í farteskinu. Flókin mál og erfið úrlausnar. Vonandi leysist úr þeim, enda er konan skynsöm og veit að það er henni nauðsynlegt. Hún má passa sig að ætla sér ekki um of. Hennar spil voru Urður, Forseti og Hænir. Hjá Lilju Alfreðs, mennta- og menningarmálaráðherra, komu upp Ullur, Ganglöt, Móði. Hún er metnaðarfull og leggur sig fram. Stefnir hátt, en sumum finnst hún fara sér óþarflega hægt, en ekkert er vanhugsað og hún mun standa fyrir ýmsum nýjungum í mennta- málum sem verða til góðs. Næst var það heilbrigðisráð- herrann okkar, hún Svandís Svavars. Ja, það er allavega óhætt fyrir hana að fara að hlusta á hinn almenna borgara og leggja af einstefnuna. Hún vill koma á nýjungum en stefnir út í óvissuna, það er betra að fara með löndum. Það segja okkur spilin hennar þau Lóður, Móði, Njörður. Kristján Þór, sjávar- og land- búnaðarráðherra, fékk Gná, Rán og Móða. Sýnilegt að hvað sem öllu líður þá munu breyt- ingar og nýmæli í lögum um veiðigjöld bæta hag þjóðar- búsins í heild. Árið bara nokkuð farsælt hjá Kristjáni. Þórdís Reykfjörð, ferða-, iðn- aðar- og nýsköpunarmálaráð- herra. Fornjótur, Gandalfur og Heimdallur voru hennar spil. Það kemur upp eitthvað óvænt og óþægilegt mál er tengist henni. Hún þaf að leita leið- sagnar og fær trausta hjálp. Þetta mun ekki rýra traust hennar sem ráðherra þó ein- hverjir hrópi á afsögn. Að lokum er það Guðmundur Ingi, umhverfisráðherra, Þar birtust okkur spilin Drellingur, Stjórnin mun tóra en svo virðist sem forsætisráðherra muni eiga í erfiðleikum með eigin liðsmenn. MYND: STJÓRNARRÁÐIÐ.IS

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.